Færslur: 2010 Júlí
14.07.2010 08:42
Meira frá togarastefnumótinu
Í gær birtist fimm mynda syrpa af stefnumóti tveggja togara úti á rúmsjó, þar sem þeir voru að koma skipverja í milli skipa, þar sem hann þurfti að komast fjótt í land og fékk því far með Vigra, sem var á landleið. Ekkert á myndunum sýndi í raun atburðinn þ.e. að flytja mann á milli skipa, hvorki sáust menn né viðkomandi bátur sem notaður var til verksins. Í svona tilfellum er t.d. nóg að sýna hornið á bátnum þegar togaramyndirnar voru teknar, baksvipinn á mönnunum eða þegar farþeginn fór upp í hinn togarann. Þ.e. eitthvað sem sagði að þetta hefði átt sér stað, það lyftir svona myndum sem annars eru hálf dauðar, þ,.e. fimm myndir af tveimur skipum á reki í bongóblíðu úti á hafi. Ekki það að ég sé að gera lítið úr því.
Til að bæta þar úr stal ég í gær mynd af Facebook-síðu ljósmyndarans og vélstjórans á Frera, John Berry þar sem hann sást með togarann í baksýn og birti í gærkvöldi með færslunni. Sú mynd var ekki birt í samráði við hann, en ég vona að hann fyrirgefi mér það.
Nú hefur hann hinsvegar sent mér mynd af hinum skipverjanum sem fór með honum í bátnum til að ferja þann sem fór yfir í Vigra. Sá sem er á þessari mynd heitir Stanislav Tsvetkov og er pólskur, en til að forðast allan misskilning þá var það ekki hann sem fór yfir í Vigra, heldur voru það hann og John sem ferjuðu þann þriðja.
Nöfnin skipta kannski ekki aðalmáli heldur er þetta allt gert til að hafa efnið líflegra.
Nota ég tækifærið til að þakka Johnny eða John Berry eins og hann heitir fullu nafni fyrir myndasendingarnar nú og fyrr.
Stanislav Tsvetkov og Freri í baksýn © mynd John Berry, 12. júlí 2010
14.07.2010 00:00
Kambaröst SU 200 / Etale Star

1497. Kambaröst SU 200 © mynd Guðjón Smári Agnarsson

Dráttarbátur utan á Kambaröstinni, tilbúinn til að draga hana til Danmerkur í vélaskipti © mynd Kristín Jóhannsdóttir

Drátturinn til Danmerkur hafinn © mynd Kristín Jóhannsdóttir

1497. Kambaröst SU 200, komin til Danmerkur © mynd Sigurjón Snær

Gamla vélin hífð upp úr Kambaröstinni í Danmörku © mynd Sigurjón Snær

Gömlu vélinni slakað á bryggjuna © mynd Sigurjón Snær

Etale Star © mynd Sigurjón Snær, pluto.123.is
13.07.2010 21:34
Polonus

Polonus, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll, 13. júlí 2010
13.07.2010 19:41
Mettúr hjá Hrafni GK 111
Hrafn GK 111 kom úr mettúr um helgina. Aflaverðmæti skipsins eftir 32ja daga veiðitúr var 187 milljónir króna en gamla metið var slegið um 40 milljónir. Uppistaða aflans var grálúða, þorskur, ufsi og karfi.
Skipstjóri í veiðiferðinni var Bergþór Gunnlaugsson. Þess má geta til gamans að Bergþór og fjölskylda flutti nýlega til Grindavíkur og óhætt að segja að fengur sé í svona aflaklóm fyrir bæjarfélag eins og Grindavík.
13.07.2010 19:21
Muggur KE 57








2771. Muggur KE 57 © myndir Emil Páll, 13. júlí 2010
13.07.2010 15:01
Stefnumót Vigra RE og Frera RE






Stefnumót 1345. Frera RE 73 og 2184. Vigra RE 71 © myndir John Berry, 12. júli 2010
John Berry í ferðinni umræddu. 2184. Vigri RE 71 í baksýn
13.07.2010 14:38
Búið að opna fyrir umhverfissóðanna
Búið er að opna á ný fyrir veiðar umhverfissóða og annarra á hafnargarðinum í Keflavík. Hvaðan þrýstingur kom er hinsvegar ekki vitað.
Nú geta umhverfissóðar og aðrir veitt frjálst á hafnargarðinum í Keflavík
© mynd Emil Páll, 13. júli 2010
13.07.2010 13:42
Hofsós: Þerney SK 37

1224. Þerney SK 37

1224. Drekkhlaðinn af þorski, eftir veiðiferð á handfærum á Skalla um verslunarmannahelgi upp úr 1980

1224. Þerney SK 37, á lagnetum á Siglufirði
13.07.2010 13:37
Stöðvarfjörður: Heimir SU 100 / Hákon

1059. Heimir SU 100 © ljósmyndari ókunnur


Hákon, sem upphaflega var 1059. Heimir SU 100
13.07.2010 11:46
Keflavík: Hafnargarðinum lokað vegna sóðaskapar veiðimanna

Hérna sjáum við smá sýnishorn af hafnargarðinum og langt í frá það versta sem þarna sást

Hafnarvörður læsir garðinum í Keflavík vegna framkomu umhverfisóðanna

Tilkynningu um lokunina sett upp

Tilkynningin um lokunina © myndir Emil Páll, 13. júlí 2010
13.07.2010 11:43
Saga Ruby

13.07.2010 00:00
Fjarkinn







6656. Fjarkinn © myndir Emil Páll, 12. júlí 2010
12.07.2010 22:48
Kanadískur togari ex Álftafell SU 100

Ex 1630. Álftafell SU 100 © mynd af síðunni Pluto.123.is ljósm.: ókunnur


