Færslur: 2012 Febrúar
02.02.2012 15:40
Öllu starfsfólki Herjólfs sagt upp
- Í allt um 40 manns - Setur fólk í erfiða stöðu og skapar eðlilega óöryggi, segir Gunnlaugur Grettisson, rekstrarstjóri
02.02.2012 15:00
Bátur og kvóti til sölu vegna gjaldþrots
Auglýsingin sem birtist í dag
2500. Árni í Teigi GK 1, kemur inn til Keflavíkur © mynd Emil Páll, 13. okt. 2009
2500. Árni í Teigi GK 1, í Grindavík © mynd Emil Páll, 16. maí 2011
02.02.2012 14:20
Kópanes BA 99 / Mummi KE 120 / Dala-Rafn VE 508 / Erlingur SF 65
1379. Kópanes BA 99 © mynd úr Ægir
1379. Mummi KE 120, ( þessi sem er næst ljósmyndaranum) © mynd Emil Páll
1379. Dala - Rafn VE 508 © mynd Snorrason
1379. Dala - Rafn VE 508 © mynd Snorrason
1379. Erlingur SF 65 © mynd Hilmar Bragason
1379. Erlingur SF 65 © mynd Guðmundur St. Valdimarsson
1379. Erlingur SF 65 © mynd MarineTraffic, Andri Snær Þorsteinsson
1379. Erlingur SF 65 © mynd Hilmar Bragason
Smíðanúmer 53 hjá Slippstöðinni hf., Akureyri 1974. Smíði nr. 11 af 14 í raðsmíðaflokki 105 - 150 tonna stálskipa hjá stöðinni. Yfirbyggður 1986. Lengdur 1994.
Báturinn var smíðaður fyrir Einhamar hf., Bildudal, en vegna vanskila misstu þeir bátinn og því er systurfyrirtæki Mumma hf., Rafn hf., Sandgerði fyrsti útgerðaraðili bátsins.
Nöfn: Kópanes BA 99, Mummi KE 120, Mummi GK 120, Ölduljón VE 130, Dala-Rafn VE 508, Haförn EA 955 og núverandi nafn: Erlingur SF 65
02.02.2012 13:35
Menn halda fast í plássin
"Það er mikið hringt. Bæði hafa samband menn sem eru þrælvanir og svo strákar sem langar að spreyta sig á þessu og allir þessir segja mér að nánast ógjörningur sé að komast í skipsrúm. Þar kemur bæði til að menn halda fast í það sem þeir hafa og önnur veigamikil ástæða er sú að skipum hefur fækkað," segir Ólafur sem hefur verið til sjós síðan á unglingsaldri.
En hvað þurfa menn að hafa ef þeir vilja helga sig sjómennskunni?
Áhugi og dugnaður skipta mestu, segir Ólafur. "Þetta þurfa að vera frískir menn, duglegir og sæmilega að manni. En það er ekki bara þetta sem ræður," segir Ólafur og heldur áfram:
"Núna þurfa menn til dæmis að hafa farið í gegnum Slysavarnaskóla sjómanna svo megi lögskrá þá í áhöfn og auðvitað er ekkert nema gott eitt um slíkt að segja," útskýrir Ólafur sem segir aðspurður að laun sjómanna í dag séu alveg ágæt. Hjá sjómönnum á línubátum sé hásetahlutur á mánuði oft í kringum
1.200 þúsund kr. og stundum hærri - en bestar eru tekjurnar yfir veturinn þegar þorskurinn
gefur sig.
Viðtal: Finnur.is
02.02.2012 13:25
Bakkafoss
1394. Bakkafoss, í Reykjavík © mynd Hilmar Snorrason, um 1980
02.02.2012 12:05
Pétur Jóhannsson SH 207 / Seley SU 10 / Erling KE 45
1361. Pétur Jóhannsson SH 207 © mynd úr Ægir
1361. Seley SU 10 © mynd Emil Páll, 1982
1361. Erling KE 45, fyrir lengingu © mynd Emil Páll
1361. Erling KE 45 © mynd Emil Páll
1361. Erling KE 45 © mynd Gísli Aðalsteinn Jónasson, 27. feb. 1988
1361. Erling KE 45 © mynd Snorrason
1361. Erling KE 45 © mynd Þorgrímur Aðalgeirsson
Smíðanúmer 34 hjá A/S Eidsvik Skipsbyggeri, Uskedalen, Noregi 1969. Yfirbyggður og breyt túr togskipi í nótaskip hjá Vélsmiðjunni Herði hf., Njarðvík 1978. Lengdur 1986 hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur. Stykkið sem sett var í Erling KE í Njarðvíkurslipp var smíðað upp í sveit í Danmörku og flutt hingað til lands. Strandaði á Bogarboða utan við Hornafjörð 11. des. 1990 og sökk.
Nöfn: Stjernöysund, Pétur Jóhannsson SH 207, Seley SU 10 og Erling KE 45
02.02.2012 10:00
Fylla gamla flugskýlið af bátum
02.02.2012 09:50
"Man ekki eftir öðru eins og hefur það þó oft verið gott"
Eftir metróður í fyrradag þar sem 24 tonn fengust í 3½ trossu voru net Bárðar SH 81 enn bunkuð út af Ólafsvík í gær. Eftir að hafa dregið eina trossu skutust Pétur Pétursson skipstjóri og hans menn í land og lönduðu tólf tonnum.
Stefnan var síðan tekin út aftur til að draga tvær trossur í viðbót, að því er fram kemur í umfjöllun um fiskiríið á Breiðafirði í Morgunblaðinu í dag.
"Síðustu 2-3 ár hefur verið mikið og vaxandi fiskirí hérna á Breiðafirðinum og ég held að þessi vetur ætli að toppa það," segir Pétur. "Ég er búinn að gera þennan bát út síðan 2001 og man ekki eftir öðru eins og hefur það þó oft verið gott."
Spurður um afla annarra sagðist Pétur halda að allir fiskuðu vel. "Það hefur bara verið svo mikið að gera hjá mér að það hefur ekki verið tími fyrir talstöðvarspjall."
02.02.2012 08:30
Þerney RE: 1. veiðiferð 2012 - 3. hluti
Hlerarnir teknir innfyrir til að mæla bakstroffur
Skipstjórinn mættur til að löggilda mælingarnar
Höfrungur III
Yfirstýrimaðurinn Frikki, þungt hugsi
Einkaþjálfarinn að koma upp úr lestinni
Björn að tjá vaktformanninum frá birgðarstöðu umbúða
Siggi kokkur að störfum í eldhúsinu
© myndir Hjalti Gunnarsson, 30. jan. 2012
02.02.2012 00:00
Addi afi (eldri) + Jónas, Kristján, Margeir, Óskar og Pétur
6682. Addi afi, komin að Sólplasti, Sandgerði © myndir Kristján Nielsen, 1. feb. 2012
Margeir Jónsson hjá Jóni & Margeiri og Óskar kenndur við Adda afa
F.v. Jónas Jónsson, útgerðarmaður og ljósmyndari, Óskar og Pétur eigandi Sæúlfs GK 137 © myndir Kristján Nielsen, 1. feb. 2012
Margeir Jónsson fylgist með
Kristján uppi í bátnum og Óskar fyrir neðan
6682. Addi afi kominn á réttan stað © myndir Jónas Jónsson, 1. feb. 2012
Kristján Nielsen og Óskar framan við 6936. Sandvík ÍS 707
Kristján Nielsen og Óskar á Adda afa. Í baksýn er flutningabíllinn frá Jóni og Margeiri
© myndir Jónas Jónsson, 1. feb. 2012
01.02.2012 23:00
Sæúlfur GK 137
6821. Sæúlfur GK 137 og Kristján Nielsen, hjá Sólplasti
6821. Sæúlfur GK 137 í dag © myndir Jónas Jónsson, 1.feb. 2012
01.02.2012 22:30
Sandgerði í dag
Sandgerði í dag © myndir Kristján Nielsen, 1. feb. 2012
01.02.2012 22:20
Dóri GK 42 í dag
2622. Dóri GK 42, við Vélsmiðju Sandgerðis í dag © myndir Kristján Nielsen, 1. feb. 2012
01.02.2012 22:00
Þórsnes II SH 109 í Sandgerði í dag
1424. Þórsnes II SH 109, í Sandgerði í dag © myndir Kristján Nielsen, 1. feb. 2012

