Þeir mokfiska á Bárði SH-81. mbl.is/Björn Eftir metróður í fyrradag þar sem 24 tonn fengust í 3½ trossu voru net Bárðar SH 81 enn bunkuð út af Ólafsvík í gær. Eftir að hafa dregið eina trossu skutust Pétur Pétursson skipstjóri og hans menn í land og lönduðu tólf tonnum. Stefnan var síðan tekin út aftur til að draga tvær trossur í viðbót, að því er fram kemur í umfjöllun um fiskiríið á Breiðafirði í Morgunblaðinu í dag. "Síðustu 2-3 ár hefur verið mikið og vaxandi fiskirí hérna á Breiðafirðinum og ég held að þessi vetur ætli að toppa það," segir Pétur. "Ég er búinn að gera þennan bát út síðan 2001 og man ekki eftir öðru eins og hefur það þó oft verið gott." Spurður um afla annarra sagðist Pétur halda að allir fiskuðu vel. "Það hefur bara verið svo mikið að gera hjá mér að það hefur ekki verið tími fyrir talstöðvarspjall." "/>

02.02.2012 09:50

"Man ekki eftir öðru eins og hefur það þó oft verið gott"

mbl.is
Þeir mokfiska á Bárði SH-81. stækka Þeir mokfiska á Bárði SH-81. mbl.is/Björn

Eftir metróður í fyrradag þar sem 24 tonn fengust í 3½ trossu voru net Bárðar SH 81 enn bunkuð út af Ólafsvík í gær. Eftir að hafa dregið eina trossu skutust Pétur Pétursson skipstjóri og hans menn í land og lönduðu tólf tonnum.

Stefnan var síðan tekin út aftur til að draga tvær trossur í viðbót, að því er fram kemur í umfjöllun um fiskiríið á Breiðafirði í Morgunblaðinu í dag.

"Síðustu 2-3 ár hefur verið mikið og vaxandi fiskirí hérna á Breiðafirðinum og ég held að þessi vetur ætli að toppa það," segir Pétur. "Ég er búinn að gera þennan bát út síðan 2001 og man ekki eftir öðru eins og hefur það þó oft verið gott."

Spurður um afla annarra sagðist Pétur halda að allir fiskuðu vel. "Það hefur bara verið svo mikið að gera hjá mér að það hefur ekki verið tími fyrir talstöðvarspjall."