Færslur: 2012 Ágúst
31.08.2012 11:00
Ágúst Guðmundsson GK 95

262. Ágúst Guðmundsson GK 95 © mynd Ísland 1990
31.08.2012 08:00
Guðrún Jónsdóttir ÍS 267

67. Guðrún Jónsdóttir ÍS 267 © mynd Púki Vestfjörð, Sigurður Bergþórsson
31.08.2012 07:25
Glæsiskip komst ekki úr höfn
Skemmtiferðaskipið Caribbean Princess, sem liggur við Sundahöfn, komst ekki úr höfn í gærkvöldi vegna veðurs. Til stóð að skipið sigldi úr höfn klukkan 23 í gær, en það komst hvergi þrátt fyrir að tveir dráttarbátar væru fengnir til aðstoðar.
Mikið rok var í gær, suðaustan 17-18 m/s.
Samkvæmt upplýsingum frá hafnsögumönnum hjá Faxaflóahöfnum verður athugað með brottför skipsins síðar í morgun, klukkan átta.
Caribbean Princess er 112.894 brúttótonn, skráð á Bermúdaeyjum og tekur 3.600 farþega. Skipið er hið glæstasta, um borð er spilavíti, þar eru reglulega haldin listaverkauppboð, fjölmargar sundlaugar eru um borð, íþróttavellir, níu holu golfvöllur og hlaupabraut. Þá eru þar fjölmargar verslanir, fjöldi veitingastaða og heilsulind.
Þetta er í annað skiptið sem skipið kemur að höfn í Reykjavík í sumar.
31.08.2012 00:00
Hannes Þ. Hafstein, Máni II ÁR 7, Gullvagninn, Ragnar og Gissur
Tilefnið er að í gær var björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein sem hefur verið stopp núna í 6 vikur, tekinn niður með Gullvagninum í Skipasmíðastöð Njarðvíkur eftir mikla yfirhalningu, sem þó er ekki lokið og verður hann því við bryggju í Njarðvík meðan verið er að klára hann. Um leið og björgunarbáturinn var kominn í sjó kom Eyrarbakkabáturinn Máni II ÁR 7 í Gullvagninn sem flutti hann upp í slippinn og í lokinn sjáum við skipverjana Ragnar og Gissur sem voru þarna að fylgjast með landtöku Mána II.
Auk þess að vera í Gullvagninum sjáum við þá mætast þegar Hannes Þ, Hafstein er á förum en Máni II að koma að vagninum, Einnig sést björgunarbáturinn bruna út úr Njarðvikurhöfn og síðan þegar hann kemur til baka.





2310. Hannes Þ, Hafstein, á leið til sjávar í Gullvagninum



2310. Hannes :Þ. Hafstein, bakkar út í höfnina



2310. Hannes Þ, Hafstein bakkar enn út höfnina, en 1887. Máni II ÁR 7, kemur frá slippbryggjunni í átt að Gullvagninum.

1887. Máni II ÁR 7, siglir í átt að brautinn, sem Gullvagninn notar


1887. Máni II ÁR 7, nálgast upptökubrautina og 2310. Hannes Þ, Hafstein snýr sér til að sigla út úr höfninni.

2310. Hannes Þ. Hafsteinn snýr sér meira

1887. Máni II ÁR 7 kominn að upptökubrautinni, þar sem Gullvagninn bíður hans. 2310. Hannes Þ. Hafstein siglir út úr höfninni.

1887. Máni II ÁR 7 tilbúinn fyrir Gullvagninn


2310. Hannes Þ. Hafstein, fer í prufsiglingu út fyrir höfnina

1887. Máni II ÁR 7, á leið upp í Njarðvíkurslipp, með Gullvagninum

2310. Hannes Þ. Hafstein, kemur aftur til hafnar

Skipverjarnir á Mána II ÁR 7, Ragnar og Gissur, spá í spilin


Gullvagninn kominn með Mána II ÁR 7 á land, en aðstæður skoðaðar nánar áður en lengra er haldið

Gullvagninn kemur með Mána II ÁR 7, í átt að bátaskýlinu í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © myndir Emil Páll, 29. ágúst 2012
30.08.2012 23:00
Axel á Sunnu Rós SH
Þegar ég tók þessar myndir var hann í innan við 100 metra fjarlægð frá enda hafnargarðsins í Keflavík í gær



Axel á 7188. Sunnu Rós SH 133, skammt frá enda hafnargarðsins í Keflavík í gærdag © myndir Emil Páll, 29. ágúst 2012
30.08.2012 22:10
Síldarvinnslan kaupir BERG-Huginn í Vestmannaeyjum
Eftirfarandi kom fram um málið í Fiskifréttum:
Síldarvinnslan kaupir útgerðarfélagið Berg-Hugin
Magnús Kristinsson í Vestmannaeyjum selur.
Síldarvinnslan hf í Neskaupstað (SVN) hefur undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í útgerðarfélaginu Bergur-Huginn ehf (BH) í Vestmannaeyjum. Seljandi er hlutafélag í eigu Magnúsar Kristinssonar útgerðarmanns og fjölskyldu. Kaupverð er trúnaðarmál milli kaupanda og seljenda.
Bergur-Huginn gerir út tvo nýlega togara, Bergey VE-544 og Vestmannaey VE-444. Bæði skipin eru 29 metra löng og voru smíðuð fyrir útgerðina í Póllandi á árunum 2006 og 2007. Hjá félaginu starfa 35 manns. Bergur-Huginn rekur ekki landvinnslu og hefur stærsti hluti aflans farið á markað erlendis.
Með þessum kaupum eykur Síldarvinnslan aflaheimildir sínar í bolfiski umtalsvert.
Eftir þessi kaup hefur SVN yfir fjórum skipum að ráða til bolfiskveiða en ljóst er að þeim verður fækkað um eitt í hagræðingarskyni. Þá mun reksturinn allur verða endurskipulagður en stefnt er að því að gera bæði út frá Vestmanneyjum og Neskaupstað.
Höfuðstöðvar Síldarvinnslunnar eru í Neskaupstað, þar sem rekin er fiskimjölsverksmiðja og öflugt fiskiðjuver. Fyrirtækið rekur einnig fiskimjölsverksmiðjur á Seyðisfirði og í Helguvík. Þá tekur SVN þátt í rekstri fóðurverksmiðju á Akureyri og tengist útgerð á Akranesi.
Aflaheimildir sem Bergur-Huginn hefur yfir að ráða nema um 5.000 þorskígildistonnum á yfirstandandi fiskveiðiári. Heimildirnar eru eingöngu bolfiskur. Samanlagðar aflaheimildir beggja félaganna nema um 10.000 þorskígildistonnum í bolfiski.
Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf;
"Með þessum kaupum erum við að styrkja stöðu okkar í bolfiski sem við teljum vera rökrétt skref fyrir Síldarvinnsluna. Við skjótum þar með styrkari stoðum undir rekstur félagsins. Við þessi kaup tökum við yfir umtalsverðar skuldir en með hagræðingu teljum við að þær verði viðráðanlegar. Við munum nota þetta tækifæri til að endurskipuleggja reksturinn með það að markmiði að tryggja að útgerðin geti áfram skilað hagnaði.
Bergur-Huginn verður rekið sem sjálfstætt félag. Við munum nota næstu mánuði til að skipuleggja þær breytingar sem ráðast þarf í og reyna að ljúka því verki ekki síðar en um áramótin. Öll óvissa í þessum efnum er óþægileg, ekki síst fyrir starfsfólkið og því mikilvægt að henni ljúki svo fljótt sem kostur er.
Síldarvinnslan er sterkt félag sem ætlar sér að vera áfram í íslenskum sjávarútvegi. Með þessum kaupum tökumst við á hendur miklar skuldbindingar. Það gerum við í trausti þess að stjórnvöld á hverjum tíma muni bera gæfu til að standa vörð um heilbrigt starfsumhverfi í sjávarútvegi. "
Kaupsamningurinn er undirritaður með fyrirvara um samþykki samkeppniseftirlitsins.
30.08.2012 22:05
Kurr í smábátaeigendum
Með reglugerðinni gefst skipum, sem leyfi hafa haft til makrílveiða á línu og handfæri, kostur á að stunda veiðar í 10 daga eftir að heimiluðum makrílafla hópsins er náð. Aflinn náði viðmiðunarhámarki þann 27. ágúst sl., þannig að síðasti dagur sem heimilt er að veiða makríl með línu og handfærum er fimmtudagurinn 6. september 2012.
Þar með er ljóst að þeir smábátaeigendur sem ætluð sér á makrílveiðar, nú eftir 1. september, fá það ekki og því er nú ansi mikill kurr í þessum hópi smábátaeigenda.
30.08.2012 22:00
Álfur SH 414 og Guðbjörg Kristín KÓ 6

2830. Álfur SH 414 og 1765. Guðbjörg Kristín KÓ 6, við Keflavíkurhöfn í gær © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2012
30.08.2012 21:00
Hlöddi VE , Sunna Rós SH , Guðbjörg Kristín KÓ og Álfur SH


Já þessir fjórir voru að veiðum nánast í hafnarkjartinum í Keflavík í gær. F.v. 2381. Hlöddi VE 98, 7188. Sunna Rós SH 133, 1765. Guðbjörg Kristín KÓ 6 og 2830. Álfur SH 414. - einhverstaðar sagði ég að makrílbátarnir væru 5 en þeir eru auðvitað 6, því á þessa mynd vantar 2739. Sigga Bessa SF 97 og 1516. Fjólu GK 121 © myndir Emil Páll, 29. ágúst 2012
30.08.2012 20:10
Quest for Adventure, Grundarfirði



© myndir og texti: Heiða Lára, 30. ágúst 2012
30.08.2012 20:00
Hlöddi VE 98 í gær

2381. Hlöddi VE 98, að veiðum, stutt frá Keflavíkurhöfn í gær © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2012
30.08.2012 19:45
Norðurljós HF 73

2360. Norðurljós HF 73, í Hafnarfirði © mynd Emil Páll, 26. ágúst 2012




