Færslur: 2010 Desember
29.12.2010 22:21
Júpiter ÞH 61 í síldarsmugunni 2004




130. Júpiter ÞH 61, í síldarsmugunni 2004 © myndir af síðu Víkings AK 100, ljósm.: Guðmundur J. Hafsteinsson
29.12.2010 21:35
Víkingur AK 100: Síldarsmugan 2004



220. Víkingur AK 100 í síldarsmugunni, 2004 © myndir Guðmundur J. Hafsteinsson
29.12.2010 20:10
GEORG OTS

Rússneska skipið GEORG OTS © mynd MarineTraffic. 19. jan. 2006
29.12.2010 18:00
Hermann Sif

Hermann Sif © mynd Shipspotting
29.12.2010 17:28
Þetta íslenska skip liggur nú á botni

Sjá nánar um miðnætti í nótt
29.12.2010 16:22
Skrifað undir samninga við Vísi, Þorbjörn og TM
Knattspyrnudeild Grindavíkur skrifaði í hádeginu undir samstarfssamninga við þrjá af sínum öflugustu bakhjörlum undanfarin ár, útgerðarfélögin Vísi og Þorbjörn í Grindavík og svo TM. Allir samningarnir eru til tveggja ára en þessi þrjú fyrirtæki eiga það sameiginlegt að hafa stutt vel við bakið á fótboltanum í Grindavík í gegnum tíðina.
Sigurður Viðarsson forstjóri TM mætti til Grindavíkur til þess að skrifa undir samninginn við knattspyrnudeildina. Pétur H. Pálsson forstjóri Vísis hf. og Eiríkur Tómasson forstjóri Þorbjörns hf. skrifuðu undir samninginn fyrir hönd sinna fyrirtækja.
Myndin var tekin við undirskriftina í dag en á henni eru fulltrúar knattspyrnudeildar, TM, Vísis og Þorbjarnar ásamt Róberti Ragnarssyni bæjarstjóra.
29.12.2010 15:00
Nýsmíði hjá Bláfelli

Nýsmíði á grásleppubát sem á að vera tilbúinn fyrir vorið og síðan er báturinn til hægri 7410. Þröstur SH 19 í miklum breytingum og endurbótum sem á að verða tilbúinn fyrir vorið, er strandveiðitímabilið hefst. Þá eru tveir aðrir bátar í smiðum hjá fyrirtækinu og einn sem ekki er hafin vinna við að auki, sá er að gerðinni Sómi 990. © mynd Emil Páll, 29. des. 2010
29.12.2010 14:28
Ósk KE 5

1855. Ósk KE 5, siglir inn Stakksfjörð © mynd Emil Páll, 29. des. 2010
29.12.2010 12:08
Fjöður GK, fyrir og eftir breytingar
Í morgun hef ég fengið nokkrar óskir um að birta myndir af bátnum eins og hann leit út fyrir breytingar og nú eftir þær, til samanburðar. Birti ég því mynd af honum sem ég tók af honum í Grindavíkurhöfn 2009, þá eina af honum á strandstað 9. maí sl. og eins og hann leit út í gær þegar hann var nýsjósettur í Grófinni að nýju.
6489. Fjöður GK 90, í Grindavík, 2009
6489. Fjöður GK 90, á strandstað rétt við Fuglavík sunnan við Sandgerði. 9. maí 2010
6489. Fjöður GK 90, í Grófinni í gær, 28. des. 2010
© myndir Emil Páll
29.12.2010 09:25
Superstar

Farþegaskipið Superstar frá Estona © mynd MarineTraffic, Juhani Mehto, í nóv. 2010
29.12.2010 00:00
Fjöður GK 90: Gjörbreyttur og viðgerður bátur
Síðan þá hafa staðið yfir miklar breytingar á bátnum, endubætur og viðgerð og sem dæmi þá var það ekki aðeins skrokkurinn sem tekinn var í gegn heldur nánast skipt um allan tækjabúnað nema sjálfa aðalvélina.
Hér kemur 12 mynda syrpa sem tekin var þegar bátnum var ekið til byggða á ný og sjósettur í Grófinni í Keflavík.

Einn fullkomnasti bátaflutningsbíll landsins, frá Jóni og Margeiri í Grindavík flutti bátinn og hér er hann staðsettur á hafnarvoginni við Keflavíkurhöfn þar sem báturinn er viktaður.

Komið eftir Ægisgötunni í Keflavík og niður í Gróf

Þá er að koma sér fyrir áður en híft er

Um að gera að vera sem næst bryggjubrúninni

Allt klárt til að hífa

Bátnum lyft upp af palli flutningabílsins

Hér nálgast báturinn bryggju kanntinn

Hafist handa við að slaka niður að sjónum

Hér er komið niður fyrir bryggjubrún

Eigandinn fylgist vel með á bryggjunni

Já, allt í lagi báturinn er sestur á sjóinn

Eigandinn kominn um borð og búið að losa allar stoffur af bátnum
© myndir Emil Páll, 28. des. 2010
28.12.2010 22:00
Hirta

Hirta, frá Englandi © mynd MarineTraffic, Sean Boyce, í sept 2010
28.12.2010 21:00
Fairplay 21

Fairplay 21 © mynd MarineTraffic, R.Osthoorn, í sept 2009


