Færslur: 2010 Október
28.10.2010 07:00
Katrín VE 47
Þessi náði 45 ára aldri áður en hann fór í pottinn fræga og bar ýmis nöfn eins og kemur fram hér fyrir neðan myndirnar.
Hér sjáum við bátinn á strandstað, en hann náðist út
236. Katrin VE 47, í Vestmannaeyjum eftir breytingar
Smíðanúmer 29 hjá Ödens Mek. Verksted A/S, Trondheim, Noregi 1963. Yfirbyggður 1987 og 1994.
Lagt við bryggju í Njarðvík eftir að vélin ónýttist á árinu 2007 og lá þar þangað til að Siggi Þorsteins ÍS 123 dró hann með sér til Danmerkur í brotajárn 30. júlí 2008.
Nöfn: Bergur VE 44, Katrín VE 47, Sindri VE 60, Frigg VE 41, Víkurnes ST 10, Mánatindur SU 359, Dagfari GK 70 og Haukur EA 76
28.10.2010 00:00
Um borð í 1282. Hugborgu SH 87

Bergmundur Ögmundsson, skipstjóri að greiða úr, einhvern tímann á árunum 1978 til 1980

Kristinn heitinn Þorgrímsson að taka
pokann á árunum 1989 til 1990

Jóhann Sigurðsson teigir sig í gilsinn

1282. Hugborg SH 87 © mynd Alfons Finnsson
Smíðanúmer 29 hjá Trésmíðju Austurlands hf., Fáskrúðsfirði 1972 eftir teikningu Egils Þorfinnssonar
Strandaði á Balatá við Keflavíkurbjarg milli Hellissands og Rifs 29. sept. 1994 og brotnaði það ill að ákveðið var að brenna hann á staðnum. Til þess kom þó ekki, þar sem það gerði norðaustan rok á staðnum 2-3 dögum síðar og brotnaði þar í salla.
Nöfn. Haffari RE 126, Hugborg SH 173 og Hugborg SH 87.
27.10.2010 23:00
Sævar KE 19 á strandstað



867. Sævar KE 19 á strandstað við Sandgerði í feb. 1980
Smíðaður í Nykobing M., Danmörku 1960 eftir teikningu Egils Þorfinnssonar
Strandaði í Sandgerðishöfn 15. febrúar 1980.
Slysavarnarsveitn Sigurvon í Sandgerði fékk bátinn gefins frá Vélbátatryggingu Reykjaness, þar sem hann var á strandstað í Sandgerðishöfn. Rifu þeir það nýtilega úr honum og brenndu síðan skrokkinn í grjótfyllingu í höfninni 30. ágúst 1980.
Nöfn: Valafell SH 157 og Sævar KE 19.
27.10.2010 22:00
Gunnar Bjarnason SH 25

144. Gunnar Bjarnason SH 25 © mynd Alfons Finnsson
Smíðanúmer 3 hjá Hjörungavaag Mek. Verksted A/S, en skrokkurinn hafði smíðanúmer 48 hjá Ankerlökkin Verft A/S í Florö, eftir teikningu Sveins Ágústssonar. Kom í fyrsta sinn hingað til lands og þá til Dalvíkur 16. júlí 1963. Yfirbyggður 1985.
Seldur úr landi til Noregs 30. mars 1995, en ekki vitað um sögu eða nöfn þar, en held að hann sé nú kominn í pottinn.
Nöfn: Loftur Baldvinsson EA 124, Baldur EA 124, Baldur RE 2, Hagbarður KE 116 og Gunnar Bjarnason SH 25.
27.10.2010 21:00
Bræðurnir með guðlaxinn


Hallgrímur G. Færseth (t.v.) og Björgvin Færseth © mynd Emil Páll
27.10.2010 20:00
Blíðfari GK 275

1979. Blíðfari GK 275 © mynd Alfons Finnsson
27.10.2010 19:05
Gullborg RE 38 og VE 38

490. Gullborg RE 38 á strandstað við Grindavík fljótlega eftir að skipið kom til landsins. En samkvæmt blaðafrásögn á þeim tíma þótti mjög tvísýnt um afdrif skispins þar sem hætta var á að það myndi velta ofan í Ósinn í fjörunni. Til að koma í veg fyrir það studdu tveir Grindavíkurbátar við bátinn þegar verst horfði og á flóðinu náðist báturinn síðan á flot

490. Gullborg VE 38 í innsiglingunni til Vestmannaeyja

490. Gullborg VE 38 í Vestmannaeyjum 1997, eftir að hafa landað 21 tonni af boltaþorski
27.10.2010 14:21
Búið að ná tökum á eldinum
Tekist hefur að ná tökum á eldinum um borð í færeyska risatogaranum Athenu undan ströndum Cornwall í Bretlandi. Tæplega hundrað manns var bjargað úr skipinu sem nú siglir fyrir eigin vélarafli í átt til Bretlands. 13 meðlimir úr áhöfninni urðu eftir um borð til að slökkva eldinn og stýra skipinu til hafnar.
Áhöfnin er sögð vera frá Skandinavíu, Rússlandi og Kína en skipið er í eigu skipaútgerðar sem heitir Thor, í Færeyjum.
27.10.2010 13:46
Stórbruni í Athenu
Færeyskur togari í björtu báli
Áhöfnin er sögð vera frá Skandinavíu, Rússlandi og Kína. Skipið heitir Athena og er í eigu skipaútgerðar sem heitir Thor, í Færeyjum. Breska strandgæslan segir að slæmt sé í sjóinn þar sem Athena er.
27.10.2010 12:00
Kristján HU 123 á rækjuveiðum í Kolluálnum 1990

734. Kristján HU 123, með gott hal af karfa og rækju í Kolluálnum, árið 1990


© myndir Alfons Finnsson
Báturinn var smíðaður í Skipasmíðatöð Nóa Kristjánssonar á Akureyri 1948. Dæmdur ónýtur 1968, en settur aftur á skrá, eftir að hafa verið endurbyggður hjá Dröfn hf., í Hafnarfirði 1970. Eldur kom upp í bátnum er hann var á leið frá Ólafsfirði og inn á Akureyri 5. okt. 1978. Báturinn var þá staddur skammt frá Hjalteyri og dró togarinn Sólberg hann til Akureyrar þar sem Slökkviliðið á Akureyri slökkti eldinn og var hann þá enn á ný dæmdur ónýtur. En enn á ný var hann endurbyggður og nú á Akureyri og settur aftur á skrá 3. maí 1979. Síðan seldur úr landi til Portúgals 20. mars 1995 og fór út um haustið, en eftir það er ekkert vitað um bátinn.
Nöfn: Goðaborg SU 40, Reynir II NK 47, Ragnar Bjarnason RE 27, Kópur RE 27, Kópur SH 132, Guðrún Jónsdóttir ÍS 267, Kolbrún ÍS 267, Kristján S. SH 23, Kristján HU 123 og síðasta nafnið hérlendis var: Sædís ÁR 9, en ekki er vitað um nöfn eftir söluna til Portúgals.





