Færslur: 2013 Október
13.10.2013 21:00
Unnur EA 24, á Bíldudal
6478. Unnur EA 24 á Bíldudal © mynd Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
Sökum klúðurs hjá höfundi og vefstjóra 123.is þá kom engin mynd með þessari færslu. Ástæðan eru endalausar bilanir það sem af er þessu ári. Varla líður nema nokkrir dagar svo ekki sé eitthvað að. Set mynd um leið og smuga kemur til þess.
13.10.2013 20:00
Dynjandi BA 13, Góa BA 10 og Anna BA 20, á Bíldudal

2796. Dynjandi BA 13, 6877. Góa BA 10 og 7262. Anna BA 20, á Bíldudal © mynd Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
13.10.2013 19:00
Indriði Kristins BA 751, á Tálknafirði

2751. Indriði Kristins BA 751., á Tálknafirði © mynd Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
13.10.2013 18:00
Indriði Kristins BA 751 o.fl. á Tálknafirði
![]() |
2751. Indriði Kristins BA 751 o.fl., á Tálknafirði © Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
13.10.2013 17:00
Brynjar BA 338 o.fl. á Tálknafirði

2539. Brynjar BA 338 o.fl., á Tálknafirði © mynd Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
13.10.2013 16:00
Njörður BA 114, Snari BA 144, Sæli BA 333 og Fernanda o.fl., á Tálknafirði




2432. Njörður BA 114, 6377. Snari BA 144, 2694. Sæli BA 333, Fernanda o.fl. á Tálknafirði © myndir Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
13.10.2013 15:00
Þröstur BA 48, á Bíldudal

2428. Þröstur BA 48, á Bíldudal © mynd Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
13.10.2013 14:00
Andri BA 101, Ýmir BA 32, Pilot BA 6, Höfrungur BA 60 og Jói Frændi BA 3, á Bíldudal

1951. Andri BA 101, 1499. Ýmir BA 32, 1032. Pilot BA 6, 1955. Höfrungur BA 60 og 1882. Jói Frændi BA 3, á Bildudal © mynd Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
13.10.2013 13:00
Andri BA 101, á Bíldudal



1951. Andri BA 101, á Bildudal
© myndir Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
13.10.2013 12:00
Brynjar BA 128, Andri BA 101 og Ýmir BA 32, á Bíldudal


1947. Brynjar BA 128, 1951. Andri BA 101 og 1499. Ýmir BA 32, á Bíldudal - myndir Gunnlaugur Hólm Torfason, okt. 2013
13.10.2013 11:44
Gamla Fagranes veldur deilum í San Fransisco
visir.is:
Gamla Fagranes, síðasta ferjan sem gegndi hlutverki Djúpbáts á Ísafjarðardjúpi, er nú tilefni deilna og blaðaskrifa í San Fransisco í Kaliforníu eftir að hafnaryfirvöld kröfðust þess að skipið yrði fjarlægt úr höfninni fyrir næstu mánaðamót. Fimmtánhundruð manns hafa sent frá sér bænarskjal um að ákvörðunin verði afturkölluð og segja að um borð fari fram þýðingarmikið frumkvöðlastarf.
Skipið var í áætlunarsiglingum á Ísafjarðardjúpi um átta ára skeið, frá 1991 og þar til rekstri Djúpbátsins var hætt árið 1999. Illa gekk að finna kaupendur þar til efnaður bandarískur arkitekt af sænskum ættum, Thorsten Olle Lundberg, birtist óvænt tveimur árum síðar. Arkitektinn keypti Fagranesið, lét gera á því miklar endurbætur í Skipasmíðastöð Njarðvíkur árið 2001, og fékk síðan íslenska áhöfn í sjö vikna leiðangur til að sigla því um Panama-skurðinn alla leið til San Fransisco.
Hann gaf skipinu nýtt nafn, Maritol, innréttaði það sem lúxusheimili og kom meðal annars fyrir sundlaug um borð. Hann nýtti það sem einkaheimili, bundið við bryggju, og greiddi um 180 þúsund krónur í hafnargjöld á mánuði. Þannig vakti skipið mikla athygli og var meðal annars fjallað um það í New York Times og einnig í íslenskum fjölmiðlum á sínum tíma.
Þar hefur skipið legið undanfarin tólf ár en síðustu tvö ár hefur það verið nýtt sem frumkvöðlasetur og kallað Icebreaker, eða Ísbrjóturinn. Nú vilja hafnaryfirvöld í San Fransisco skipið burt og segja að samkvæmt reglum hafnarinnar sé óheimilt að nýta það sem heimili og að öll skip í höfninni verði að vera haffær.
13.10.2013 11:00
Brynjar BA 128

1947. Brynjar BA 128, á Bíldudal
© mynd Gunnlaugur Hólm Torfason, okt. 2013
13.10.2013 10:00
Jói Frændi BA 3 og Höfrungur BA 60, á Bíldudal


1882. Jói Frændi BA 3 og 1955. Höfrungur BA 60, á Bíldudal © myndir Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt. 2013
13.10.2013 09:00
Ýmir BA 32, Pilot BA 6, Jói Frændi BA 3 og Höfrungur BA 60, á Bíldudal

1499. Ýmir BA 32, 1032. Pilot BA 6, 1882. Jói Frændi BA 3 og 1955. Höfrungur BA 60, á Bíldudal © mynd Gunnlaugur Hólm Torfason, í okt 2013
13.10.2013 08:22
Með fullan bát, eftir viku útivist á snurvoð við Bjarnarey
Ölver Guðnason, var að koma í land í Tromsö með fullan bát eftir rétt rúma viku á snurvoð við Bjarnarey. 120 tonn af frystum fiski. Hann er með bátinn Sea Hunter, sem er 45 metra langur og rúmlega 8 metra breiður.

Sea Hunter © mynd af heimasíðu fiskok.no

Sea Hunter M-80-SJ © mynd Pål Stian Eiriksen

