Færslur: 2013 Apríl
11.04.2013 06:33
Nivenskoye, rússnenskur togari að toga á kolmunnamiðunum
Nivenskoye, rússnenskur togari að toga á kolmunnamiðunum. © mynd Faxagengið, faxire9.123.is 8. apríl 2013
10.04.2013 23:01
Auðunn og erlent varðskip á Stakksfirði
Tilefni þessara myndatöku man ég ekki en þarna er á ferðinni erlent varðskip á Stakksfirði og hafnsögubáturinn Auðunn eitthvað að snúast í kring um það og að lokum er ein mynd af krökkum sem eru að koma frá borði og virðast fulltrúar Rauðakrossins á Suðurnesjum vera viðstaddir.








© myndir Emil Páll
10.04.2013 22:45
Aðalsteinn Jónsson SU 11 að toga á kolmunnamiðunum
![]() |
||
|
|
10.04.2013 21:45
Lundey NS-14 á kolmunnamiðunum suður af Færeyjum
![]() |
||||
|
|
10.04.2013 20:45
Fiskines KE 24, í dag
![]() |
7190. Fiskines KE 24, í Grófinni, Keflavík í dag © mynd Emil Páll, 10. apríl 2013 |
10.04.2013 19:45
Höfnin í Henningsvær, Noregi
![]() |
Höfnin í Henningsvær, Noregi. Þarna út þennan vog var fiskverkun eftir fiskverkun. © mynd og myndatexti Jón Páll Jakobsson, Noregi - 09. apríl 2013
10.04.2013 19:00
Kópnes ST 64 o.fl.
![]() |
7465. Kópnes ST 64 o.fl. © mynd Jón Halldórsson, Holmavik.123.is 9. apríl 2013 |
10.04.2013 18:00
Húsið af Selnum tekið í land
Rétt upp úr hádeginu í dag var húsið af sandflutningaskipinu Selnum tekið af skipinu og sett á vörubílspall, í Njarðvíkurhöfn. Er þetta gert þar sem fara á með húsið inn í Hafnarfjörð og sandblása það, en skipið sjálft fer upp í Njarðvíkurslipp þar sem það verður tekið í gegn.
Viðhald var ekki vanþörf, enda er skipið búið að fara víða að undanförnu m.a. til Færeyja og Bretlands og vera þar í verkefnum auk verkefna hérlendis.
![]() |
||
|
|
10.04.2013 17:06
Faxi GK 90
![]() |
|
Smíðaður í Svíþjóð 1956. Talinn ónýtur og tekinn af skrá 19. júlí 1973. Nöfn: Faxi GK 90, Unnur VE 80 og Kristján Guðmundsson ÁR 15 |
10.04.2013 15:45
Hav Sand: Tollafgreitt á Stakksfirði á leið til Reykhóla
Þó það sé ekki einsdæmi, þá gerist það annað slagið að skip sem eru á leið að Reykhólum, erlendis frá koma við á Stakksfirði til að fá tollafgreiðslu. Eitt slíkt tilfelli var rétt eftir hádegi í dag er Færeyska skipið Hav Sand fékk slíka afgreiðslu. Til að hún færi fram sá Auðunn um að ferja tollþjóna milli skips og lands.
![]() |
||
|
|
10.04.2013 14:45
Fyrrum Moby Dick og Sægrímur í ferðamennsku
Í dag verður verður Tony, eða fyrrum Moby Dick tekinn niður úr slippnum í Njarðvík, en þó tekinn fljótt aftur í slipp þar sem hann verður málaður og sett á hann nýtt nafn, að sögn Stefáns Sigurðssonar hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur en þeir eru eigendur bátsins. Hafa þeir leigt hann til Hvalaskoðunar Keflavíkur (Helgu Ingimundardóttur), sem áætlar að gera hann út til hvalaskoðuna frá Keflavík í sumar.
Þá mun Sægrímur GK 525, senn fara til ferðaþjónustu, en hann mun sigla út frá Grindavík og verður farþegum boðið að taka þátt í netaveiðum, samkvæmt heimildum mínum. Nánar mun ég fjalla um það mál síðar.
![]() |
||
|
|
10.04.2013 14:08
Gamall á leið út frá Keflavík
![]() |
Ekki þekki ég þennan, en tel að hann sé á leið út frá Keflavík © mynd frá Sigurði Ólafssyni |
10.04.2013 12:45
Skálafell RE 20 og Ólafur Magnússon GK 525
Myndir þær sem ég birti nú, eru mér mikill fengur, því ég man ekki eftir að fyrir mín augu hafi áður borist myndir af þessum bátum undir þessum nöfnum. Myndir þessar sendi Sigurður Ólafsson mér, en þær eru úr dánabúi föður hans og sendi ég honum KÆRAR ÞAKKIR FYRIR. AÐ AUKI KOM ÞRIÐJA MYNDIN EN HÚN BIRTIST Á EFTIR.
Fyrir neðan myndirnar kemur saga beggja bátanna í stuttu máli
![]() |
|
|
![]() |
|
916. Ólafur Magnússon GK 525 og 623. Skálafell RE 20, í Dráttarbraut Keflavíkur, sennilega árið 1946 © myndir frá Sigurði Ólafssyni 916. Smíðaður hjá Dráttarbraut Keflavíkur í Keflavík 1946, númeri breytt í KE 25 1. febrúar 1949. Talinn ónýtur og tekinn af skrá 20. jan. 1978. Nöfn: Ólafur Magnússon GK 525, Ólafur Magnússon KE 25, Þórður Ólafsson SH 140, Auður BA 46 og Ólafur SH 44.
623. Smíðaður hjá Júlíusi Nýborg, Hafnarfirði 1943. Talinn ónýtur og tekinn af skrá 22. sept. 1987 Nöfn: Súgandi RE 20, Skálafell RE 20 og Júlía VE 123
|
10.04.2013 11:20
Fengur SU 33 - myndasyrpa af honum er hann kom inn til Sandgerðis í gær
![]() |
||||||||||||
|
|
10.04.2013 10:45
Sunna Líf KE 7 í gær
![]() |
||
|
|



























