Færslur: 2011 Október
23.10.2011 09:22
Ævintýranlegt verð á norskri síld
Hér sjáum við Holmvaag. Hann er að fara á síld má hann veiða 500 tonn og mun hann setja síldina í lás eða nót og kemur svo brunnbátur og dælir henni um borð og fer með hana til vinnslu. Það er alveg ævintýralegt verð núna á síldinni eða um 6 kr norskar fyrir eitt kg (120 kr íslenskar). Svo aflaverðmætið gæti orðið í kringum 60 miljónir íslenskar og hlutur á manninn milli 8 og 9 miljónir. Svo er ég að spá í að drífa mig að fara fiska Arnarfjarðarrækju og næ að fiska fyrir 10. miljónir ef ég verð heppinn sem gefur kannski 2,5 miljónir í hlut. Ég var á síld hérna fyrir þremur árum og þá fengum við 2 kr norskar fyrir kílóið svo verðið hefur þrefaldast á þremur árum svo það er bara gullgröftur að vera á síld eða uppsjávarfiski í dag. Þeir eru að vona að ná að fiska þetta á þremur til fjórum vikum svo það væri ekki slæmt að taka svona eitt stykki ágæt íslensk árslaun á einum mánuði
.
Holmvaag © mynd Jón Páll Jakobsson, í okt. 2011
23.10.2011 09:12
Geolog Primorya
Geolog Primorys, í Rússlandi © mynd shipspotting, Sushkov Olis
23.10.2011 00:00
Bláa höfnin
Alllur blái flotinn í Keflavíkurhöfn: F.v. 1587. Sævar KE 5, 2043. Auðunn, 1575. Njáll RE 275, 2454. Siggi Bjarna GK 5, 12. Happasæll KE 94, 2430. Benni Sæm GK 5 og 2325. Arnþór GK 20
Fimm þeirra við hafnargarðinn
1587., 2043., 1575., 2454. og 13.
2454., 13., 2430. og 2325.
1575. Njáll RE 275, 2454. Siggi Bjarna GK 5, 13. Happasæll KE 94, 2430. Benni Sæm GK 26 og 2325. Arnþór GK 20
1587. Sævar KE 5 og 2042. Auðunn
1575. Njáll RE 275
2454. Siggi Bjarna GK 5
13. Happasæll KE 94
2430. Benni Sæm GK 26
2325. Arnþór GK 20
2043. Auðunn og 1587. Sævar KE 5
Bláa höfnin, Keflavík © myndir Emil Páll, 22. okt. 2011
22.10.2011 22:00
MSC Nikita
MSC Nikita, í Rotterdam © myndir Shipspotting, Hans Esveldt, 1. sept. 2009
22.10.2011 20:00
Magni
2686. Magni © mynd Shipspotting, Kenneth Gibson
2686. Magni, við Straumsvík © mynd shipspotting, Captain Peter, 18. maí 2011
22.10.2011 18:00
Sagres
Séð frá Sagres - heimsendir
Sjómannaskóli, sjómannaheimili
Sólúr, himaríkis
Vitinn © myndir Svafar Gestsson, 2011
22.10.2011 17:00
Slökkviliðsbátur í Reykjavík
Bátur frá Slökkviliðinu, í Reykjavíkurhöfn í fyrradag © Emil Páll, 22. okt. 2011
22.10.2011 16:00
Rósin
2761. Rósin, í Reykjavíkurhöfn í fyrradag © mynd Emil Páll, 20. okt. 2011
22.10.2011 13:00
Vigri RE 71
2184. Vigri RE 71, í Reykjavík © mynd Emil Páll, 20. okt. 2011
22.10.2011 12:00
Katrín KE 56 / Hrönn KE 56
1601. Katrín KE 56 © mynd af netinu, ljósm.: ókunnur
1601. Katrín KE 56, í Höfnum © mynd Emil Páll
1601. Hrönn KE 56, í Njarðvik © mynd Emil Páll
1601. Hrönn KE 56, í Keflavík © mynd Emil Páll
Smíðaður sem opinn bátur í Stykkishólmi 1977 og þá með skráninganúmerið 5826. Dekkaður 1981 og skráður sem slíkur 10. júní 1981. Breytt síðan í skemmtibát 1998. Afskráður 22. des. 1998, skoðaður árum saman.
Nöfn: Lundi KE 45, Manni ÞH 81, Katrín KE 56, Hrönn KE 56, Hrönn ÍS 279 og Kría ST 65, með heimahöfn á Dröngum.
22.10.2011 10:00
Faxi RE 9
1742, Faxi RE 9, í Reykjavíkurhöfn í fyrradag © mynd Emil Páll, 20. okt. 2011
