11.05.2012 00:00
Þessi stutta syrpa stendur svo sannarlega undir fyrirsögninni, því tvær myndanna eru úr Hafnarfirði, tvær úr Noregi og ein úr Vestmannaeyjum
Bátar í viðgerð hjá Dröfn hf., Hafnarfirði © mynd úr Ísland í dag, 1961

Nýsmíði hjá Dröfn hf., Hafnarfirði © mynd úr Ísland í dag, 1961

Vestmannaeyjar © mynd Emil Páll, á áttunda eða níunda áratug síðustu aldar

Arcric Warror H-179 og Havörna F-29-H, í Honningsvag, Noregi © mynd shipspotting roar jensen, 7, maí 2012

Jaspis F-1360 © mynd frode adolfsen, 30. júní 200210.05.2012 20:28
Frétt mín á dögunum um að Brim væri að kaupa Bretting er þar með staðfest í Fiskifréttum, en fáir vildu trúa því er ég sagði frá því. Frétt Fiskifrétta er svolhjóðandi:
Dótturfélag Brims kaupir Bretting KE
Er á grálúðu- og rækjuveiðum og fer síðar í makrílinn.
Fiskifréttir 10. maí 2012 kl. 13:00
Brettingur KE
Dótturfélag Brims hf. hefur fest kaup á togaranum Brettingi KE. Skipið er kvótalaust en er þegar farið á veiðar á rækju og grálúðu og stefnt er að því að það fari á makrílveiðar síðar í sumar. Þetta staðfesti Guðmundur Kristjánsson útgerðarmaður í samtali við Viðskiptablaðið.
Brettingur var smíðaður í Japan árið 1973 fyrir Vopnfirðinga og var gerður út frá Vopnafirði allt þar til hann var seldur til útlanda fyrir nokkrum árum. Skipið var síðan keypt aftur til landsins og hefur verið gert út frá Keflavík síðan.