23.10.2011 09:22

Ævintýranlegt verð á norskri síld

Af síðu Jóns Páls Jakobssonar, í Noregi:

Hér sjáum við Holmvaag. Hann er að fara á síld má hann veiða 500 tonn og mun hann setja síldina í lás eða nót og kemur svo brunnbátur og dælir henni um borð og fer með hana til vinnslu. Það er alveg ævintýralegt verð núna á síldinni eða um 6 kr norskar fyrir eitt kg (120 kr íslenskar). Svo aflaverðmætið gæti orðið í kringum 60 miljónir íslenskar og hlutur á manninn milli 8 og 9 miljónir. Svo er ég að spá í að drífa mig að fara fiska Arnarfjarðarrækju og næ að fiska fyrir 10. miljónir ef ég verð heppinn sem gefur kannski 2,5 miljónir í hlut. Ég var á síld hérna fyrir þremur árum og þá fengum við 2 kr norskar fyrir kílóið svo verðið hefur þrefaldast á þremur árum svo það er bara gullgröftur að vera á síld eða uppsjávarfiski í dag. Þeir eru að vona að ná að fiska þetta á þremur til fjórum vikum svo það væri ekki slæmt að taka svona eitt stykki ágæt  íslensk árslaun á einum mánuði Grin.

                       Holmvaag © mynd Jón Páll Jakobsson, í okt. 2011