Færslur: 2011 September
29.09.2011 16:40
Von HU 2 - merkilegur bátur í upphafi
Von HU 2
Smíðaður í Reykjavík 1908 af Otta Guðmundssyni og sjósettur í lok ársins 1908
Vonin GK 352 og Júlíus GK 348 voru fyrstu þilfarsbátarnir á Suðurnesjum. Vonin var því um leið fyrsti slíki báturinn í Vatnsleysustrandarhreppi. Útgerð hans hófst veturinn 1909.
Þá var Vonin GK 352 fyrsti báturinn í langri útgerðarsögu Guðmundar Jónssonar, á Rafnkelsstöðum í Garði.
Báturinn var talinn ónýtur og tekinn af skrá 15. okt. 1948 og rifinn.
Nöfn: Vonin GK 352, Vonin RE 63, Ásmundur Einarsson GK 352, aftur Vonin GK 352, Von ST 22 og Von HU 2
29.09.2011 15:00
Sigurpáll GK 375
978. Sigurpáll GK 375, í Njarðvíkurslipp © mynd Emil Páll
29.09.2011 14:05
Snari BA 144 - á Tálknafirði
6377. Snari BA 144, á Tálknafirði © mynd Sigurður Bergþórsson, sumarið 2011
29.09.2011 13:00
Sölvi Bjarnason BA 65
1559. Sölvi Bjarnason BA 65 © mynd Ægir, maí 1980
29.09.2011 12:10
Júlíus Geirmundsson ÍS 270
1536. Júlíus Geirmundsson ÍS 270 © mynd Ægir, í sept. 1979
29.09.2011 09:00
Guðmundur Jónsson GK 475
1459. Guðmundur Jónsson GK 475 © mynd Ægir, sept. 1979
29.09.2011 00:00
Gerpir NK 106 / Júpiter RE 161 / Júpiter ÞH 61 / Suðurey VE 12
130. Gerpir NK 106 © mynd Shipspotting, Holger Jaschop
130. Gerpir NK 106 © mynd Snorrason
130. Júpiter RE 161, við togarabryggjuna í Reykjavík © mynd Pétur B. Snæland 1968
130. Júpiter RE 161 © mynd Pétur B. Snæland 1967-68
130. Júpiter RE 161 © mynd Snorrason
Bátapallurinn á Júpiter RE 161 © mynd Pétur B.
Snæland 1967 - 68
Séð fram dekkið á Júpiter RE 161 © mynd Pétur B. Snæland, 1967-68
Hér sjáum við aftur eftir Júpiter RE 161, á árunum 1967 - 68 © mynd Pétur B. Snæland
Júpiter RE 161, í mokafla út af Austfjörðum 1967 - 1968 © mynd Pétur B. Snæland
Júpiter RE 161, í dokkinni í Hull, 1967-1968 © mynd Pétur B. Snæland
130. Júpiter RE 161 © mynd Snorrason
130. Júpiter RE 161 © mynd Gísli Aðalsteinn Jónasson, 22. mars 1988
130. Júpiter RE 161 © mynd Gísli Aðalsteinn Jónasson, 13. feb. 1989
130. Júpiter ÞH 61 © mynd Snorrason
130. Júpiter ÞH 61, drekkhlaðinn á Akranesi © mynd Magnús Þór Hafsteinsson 1995
130. Júpiter ÞH 61 © mynd Faxagengið, faxire9.123.is
130. Júpiter ÞH 61 © mynd Svafar Gestsson
130. Júpiter ÞH 61, á Akureyri © mynd Hilmar Snorrason
130. Suðurey VE 12 © mynd Þorgeir Baldursson
130. Suðurey VE 12, í Reykjavík © mynd Hilmar Snorrason, 17. júní 2005
130. Suðurey VE 12, í Vestmannaeyjum © mynd Hilmar Snorrason, í mars 2006
Smíðanúmer 819 hjá Ag Werk Seebeck Ltd, Bremerhaven, Vestur-Þýskalandi 1957 sem botnvörpungur (síðutogari). Kom nýr til Neskaupstaðar 16. janúar 1957.
Breytt úr botnvörpungi (síðutogara) í fiskiskip og þá aðallega nótaskip 1979.
Hrólfur Gunnarsson eigandi skipsins ætlaði sér að flytja með það til Keflavíkur 1982 og gerði það út þaðan vetrarvertíðina og var skipið þá stærsta togskip sem gert hefur verið út frá Suðurnesjum.
Miklar breytingarnar s.s. dýpkun nótakassa, komið fyrir nótaleggjara, íbúðum breytt og skipt um innréttingar, skipt um skut o.fl. hjá Slippstöðinni á Akureyri sumarið 2002, en áður en verkinu lauk var ákveðið að fresta hluta þeirra.
Er nýr Júpiter var keyptur til Þórshafnar var þessum Júpiter lagt þ.e. í október 2004 og þar til í jan 2005 að hann var gerður út sem loðnuflutningaskip fyrir Ísfélag Vestmannaeyja. Eftir loðnuflutningana átti að selja skipið í brotajárn til Danmerkur, en þar sem ástand skipsins var svo gott var hætt við það. Var því ákveðið að ljúka breytingum og endurbæta skipið í Skipalyftunni, Vestmannaeyjum sumarið 2005.
Seldur til Esbjerg í Danmörku í brotajárn í mars 2008.
Nöfn: Gerpir NK 106, Júpiter RE 161, Júpiter ÞH 61, Suðurey VE 12, Bjarnarey VE 25 og Bjarnarey VE 21.
28.09.2011 23:26
ÞÓR siglir úr höfn í Chile - sjö þúsund sjómílna sigling framundan
Miðvikudagur 28. september 2011
Varðskipið ÞÓR sigldi í dag kl. 16:29 að íslenskum tíma, úr höfn Asmar skipasmíðastöðvar sjóhersins í Chile þar sem skipið hefur verið í smíðum frá árinu 2007. Framundan er sjö þúsund sjómílna sigling (um fjórtán þúsund kílómetrar) til Íslands. Áætlað er að varðskipið verði í Panamaskurði að morgni 6. október. Verður þá siglt til Boston og Halifax áður en siglt verður yfir Norður Atlantshafið til Íslands. Áætlað er að ÞÓR komi til Reykjavíkur 27. október nk.
Georg Kr. Lárusson forstjóri Landhelgisgæslunnar tók á móti skipinu sl. föstudag í ASMAR skipasmíðastöðinni ásamt Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra í innanríkisráðuneytinu. Sjá frétt um afhendinguna hér.
Myndir áhöfn ÞÓR.
Íslenski fáninn komin á sinn stað í fyrsta sinn. Myndir áhöfn ÞÓR.

Brúin
28.09.2011 23:12
Víkingur AK 100 að taka nótina í dag
220. Víkingur AK 100, að taka nótina í Sundahöfn í dag © mynd Jón Páll, 28. sept. 2011
28.09.2011 22:20
Neskaupstaður í dag
© myndir Bjarni Guðmundsson, í dag 28. sept. 2011
