Færslur: 2010 Ágúst
13.08.2010 18:53
Ólafsvík í dag: Guðmundur Jensson og Ólafur Bjarnason

1426. Guðmundur Jensson SH 717

1304. Ólafur Bjarnason SH 137 © myndir Sigurður Bergþórsson í Ólafsvík 13. ágúst 2010
13.08.2010 15:42
Hrólfur Gautreksson NK 2 eða Gauti NK 2, eins og hann var oftast kallaður







583. Hrólfur Gautreksson NK 2, eða Gauti NK 2 eins og hann var oftast kallaður, á Neskaupstað í morgun © myndir Bjarni G., 13. ágúst 2010
13.08.2010 12:38
Farsæll GK 162 á leið upp í slipp




1636. Farsæll GK 162, í Njarðvíkurslipp í morgun © myndir Emil Páll, 13. ágúst 2010
13.08.2010 12:34
Fiesta í Njarðvík


Norska skútan FIESTA í Njarðvíkurhöfn í morgun © myndir Emil Páll, 13. ágúst 2010
13.08.2010 09:30
Er þetta gamla Akraborgin

Hér er gamla AKRABORG þegar hún var skólaskip í Ísrael. þá átti hún eftir að vera útvarpsstöð svona sjóræningjastöö, seld eftir það til S Ameríku
Nokkrum dögum áður hafði hann þessar hugrenningar á síðu sinni:

Norskur félagi minn var í köfunarferð í S Ameríku. Hann vildi meina að skipið sem hann var á, hafi verið byggt fyrir íslendinga sem farþegaskip upphaflega. Seinna meðal annars sjóræningja útvarpsstöð í Ísrael, þaðan til S Ameríku, og því hafi verið bjargað með því að kaupa það á staðnum þar sem var byrjað að rífa það, því breytt, og lítur svona út í dag eftir breytingar. Mér finnst ég alveg sjá gömlu AKRABORG í þessu skipi. Skyldi það vera satt????
13.08.2010 09:00
Austfjarðasyrpa
Þar sem engar upplýsingar komu með myndunum um hvar þær væru teknar né hvenær, slæ ég því föstu að þær séu teknar víða um Austfirðina á þessu sumri. En myndasmiðurinn er Hilmar Bragason.
1929. Gjafar SU 90 
2628. Narfi SU 68 
6002. Andrea KÓ 66 
6143. Elva Björg SU 140
7303. Sandvíkingur NK 41
1841. Laxinn NK 71
2056. Súddi NS 2
© myndir Hilmar Bragason, sumarið 2010
13.08.2010 00:00
Hvar er Eylandið?
Eyland er sker, sem er á hægri hönd þegar siglt er út úr Njarðvíkurhöfn og á að sjást til þess á stórstaumsfjöru og þá aðalega þannig að rauðlitur þarinn kemur upp á yfirborðið og eins brýtur stundum á því í vissri átt, ef hvasst er og stórstraumsfjara. Notaði ég því tækifærið nú þar sem stórstraumsfjara var, en ekkert öruggt sást, þó mér hafi aðeins fundist sjórinn vera rauðlitaður á ákveðnum stað, sem mér hafði verið áður vísað á, en það festist ekki á mynd.
Engu að síður tók ég í framhaldi af því, þessar myndir í Njarðvíkurhöfn og kring um slippinn og þar framan við, svona til að sýna hvernig fjaran lítur þarna út þegar um stórstraumsfjöru er að ræða. Ekki eru þó þeir staðir sem myndirnar birtast af, tengdir umræddu Eylandi.
Fyrir neðan fjörusyrpuna, kemur enn önnur syrpa og þá af stórstraumsflóðinu í Njarðvikurslipp, Njarðvíkurhöfn og Keflavíkurhöfn.







Myndir á stórstraumsfjöru í Njarðvíkurhöfn og næsta nágrenni
Svo er það stórstreymsflóðið
Þessar myndir tók ég síðan um kvöldið og þá í Njarðvíkurhöfn, Njarðvíkurslipp og Keflavíkurhöfn, en augljóslega var farið að falla frá og því flóðastaðn lækkað um eitt fet.











Stórstreymsflóðið, í Njarðvíkurhöfn, Njarðvíkurslipp, séð inn á Fitjarnar og í Keflavíkur-
höfn, en hafa ber í huga að flóðahæð hefur lækkað þarna, um eitt fet frá því það var hæðst
Bæði flóða og fjörumyndir © Emil Páll, 12. ágúst 2010
12.08.2010 22:48
Fjölnir SU 57


237. Fjölnir SU 57 © myndir Hilmar Bragason, sumarið 2010
12.08.2010 21:42
Straumur II SH 61

6147. Straumur II SH 61, á Arnarstapa © mynd Sigurður Bergþórsson, 10. ágúst 2010
12.08.2010 21:24
Nakkur SU 380: Næst elsti trébátur Austurlands
Spurt var nýlega um þennan bát hér á síðunni og nú hefur Sigurborg Andrésdóttir sent mér eftirfarandi upplýsingar:
Báturinn heitir Nakkur og kemur frá Djúpavogi til Eskifjarðar.Hann er næst elsti trébátur bátur Austurlands smíðaður 1912.Síðasti eigandi var Eðvald Jónsson . Elsti báturinn heitir Hrólfur Gautrexsson.kallaður Gauti og hann er á Neskaupstað smíðaður 1906.
Sendi ég kærar þakkir fyrir

693. Nakkur SU 380, á Eskifirði © mynd Hilmar Bragason, sumarið 2010
12.08.2010 20:05
Hvað er þetta?

© mynd Emil Páll, 12. ágúst 2010
12.08.2010 18:52
Farsæll GK 162

1636. Farsæll GK 162, í Keflavíkurhöfn í dag © mynd Emil Páll, 12. ágúst 2010
12.08.2010 16:48
Mikið um að vera á Neskaupstað í dag
Bjarni Guðmundsson sendi mikla myndasyrpur sem hann tók á Neskaupstað í dag, enda mikið um að vera við höfnina þar og jafnvel skip að bíða eftir að komast að. Texti hans með myndunum var svohljóðandi:
Tók nokkrar myndir af höfninni núna áðan en mikið er þar um að vera. Verið að skipa út í Italian Reefer, Hákon EA að landa frosnu, Bjarni Ólafsson AK að landa í fiskiðjuverið og Bjartur NK fer út í kvöld eftir sumarstopp, Gísli Súrsson undir löndunarkrananum og Sandvíkingur NK og Auður Vésteins bíða eftir löndun. Börkur NK er að landa í bræðslu og verið að skipa frosnu í Green Bergen, síðan er Framnes búið að bíða út á firði eftir bryggjuplássi og afgreiðslu í hálfan annan sólahring.
Italian Reefer, (fjær) og Green Bergen
Italian Reefer, 2407. Hákon EA 148, 2278, Bjarni Ólafsson AK 70, 1278. Bjartur NK 121, 2708. Auður Vésteins GK 88 og Green Bergen
Green Bergen
Italian Reefer, 2407. Hákon EA 148 og 2278. Bjarni Ólafsson AK 70
2407. Hákon EA 148, 2278. Bjarni Ólafsson AK 70, 1278. Bjartur NK 121, 2708. Auður Vésteins GK 88, 2608. Gísli Súrsson GK 8, 7303. Sandvíkingur NK 41 og Green Bergen
1278. Bjartur NK 121, 2708. Auður Vésteins GK 88, 2608. Gísli Súrsson GK 8, 7303. Sandvíkingur NK 41 og Green Bergen
1278. Bjartur NK 121, 2708. Auður Vésteins GK 88, 7303. Sandvíkingur NK 41 og 2608. Gísli Súrsson GK 8
Italian Reefer, 2407. Hákon EA 148, 2278. Bjarni Ólafsson AK 70 og 1278. Bjartur NK 121

1293. Börkur NK 122
Italian Reefer, 2407. Hákon EA 148 og 2278. Bjarni Ólafsson AK 70
1293. Börkur NK 122 og Green Bergen
© myndir frá Neskaupstað í dag 12. ágúst 2010, Bjarni G.


