Færslur: 2013 Mars
08.03.2013 23:03
Bræðrahjálp Sigga Bjarna GK, varðandi Benna Sæm GK, á Hafnarleirnum í dag
Eins og ég sagði frá kl. 20 í kvöld fékk dragnótarbáturinn Benni Sæm GK 26 í skrúfuna á Hafnarleir í dag og í framhaldi af því tók dragnótarbáturinn Siggi Bjarna GK 5 bróðir sinn í tog og komu þeir til Sandgerðis á áttunda tímanum í kvöld.
Þessir bátar eiga eins og margir vita, margt sameiginlegt þeir eru eins og sumir segja systurskip, smíðuð í Kína, en mér finnst réttara að kalla þá bræður, því þeir bera báðir karlkynsnöfn og báðir eru þeir í eigu Nesfisks í Garði.
Á bryggju í Sandgerðishöfn biðu komu þeirra fulltrúi útgerðar og Köfunarþjónusta Sigurðar, en Siggi kafari fór strax í sjóinn eftir að bátarnir voru komnir að bryggju til að losa úr skrúfunni. Reyndist þetta vera veiðarfæri, úr öðru skipi sem var á reki í sjónum og báturinn fékk því í skrúfuna er hann var á þarna á togi. Eða með öðrum orðum draugur, en eins og menn vita þá eru net sem koma svona uppá kölluð drauganet, en ekki veit ég hvað það er kallað þegar um er að ræða hluti úr togveiðarfæri togskips.
Þar sem farið var að rökkva, þegar bátarnir komu að landi tók ég fyrst nokkrar myndir af þeim er þeir voru að nálgast Sandgerði og síðan koma myndir sem ég segi frá í myndtexta.

2454. Siggi Bjarna GK 5, með 2430. Benna Sæm í togi í átt að innsiglingunni til Sandgerðis og þarna sjáum við Bæjarskerseyri á milli bátanna og lands.

Hérna nálgast þeir merkin, raunar sést eitt þeirra


Hér er Siggi Bjarna farinn að beygja inn í innsiglingarennuna

Báðir bátarnir að komast inn í innsiglinguna


Hér eru þeir komnir nálægt hvorum öðrum og 1755. Aðalbjörg RE 5, nálgast þá

Hér koma þeir saman inn í Sandgerðishöfn




Hér eru bátarnir komnir inn í Sandgerðishöfn og stefna á bryggjuna

2454. Siggi Bjarna GK 5 (nær) og 2430. Benni Sæm GK 26 (fjær), er þeir eru að komast að bryggju í Sandgerði í kvöld © myndir Emil Páll, 8. mars 2013
08.03.2013 22:45
Tumi BA 900
![]() |
2405. Tumi BA 900 © Floti Tálknafjarðar, Sigurður Bergþórsson, úrklippa úr Morgunblaðinu |
08.03.2013 21:45
Hugsanlega er Sölvi Bjarnason BA 65, að draga þarna Guðmund í Tungu BA 214
![]() |
||||
|
|
08.03.2013 20:45
Aðalbjörg RE 5, kemur til Sandgerðis í ljósaskiptunum í kvöld
Á sama tíma og bræðurnir Siggi Bjarna og Benni Sæm voru að koma til Sandgerðis þ.e. á áttunda tímanum í kvöld kom Aðalbjörg RE 5 að landi í Sandgerði og tók ég þá þessar tvær myndir, en að auki sést hann með bræðrunum á einhverjum af þeim myndum sem ég birti síðar í kvöld.
![]() |
||
|
|
08.03.2013 20:00
Bræðrahjálp á Hafnarleir: Siggi Bjarna dró Benna Sæm til Sandgerðis í dag
Í ljósaskiptunum í kvöld eða á áttunda tímanum kom Siggi Bjarna GK 5, með bróður sinni Benna Sæm GK 26, í togi til Sandgerðis, en sá síðarnefndi hafði fengið í skrúfuna á Hafnarleirnum í dag. Þrátt fyrir að farið var að rökkva tókst mér að ná nokkrum myndum af bátnum og birti ég þær á ellefta tímanum í kvöld, en hér kemur ein þeirra.
![]() |
|
Af Facebook: |
08.03.2013 18:45
Víkingur III ÍS 280 / Sandgerðingur GK 280
Þessi bátur hefur borið nokkur nöfn og undir síðasta nafninu Valberg II VE 105 var hann brotinn niður í Njarðvikurslipp fyrir nokkrum árum.
![]() |
||
|
|
08.03.2013 17:44
Mummi GK 120
![]() |
76. Mummi GK 120, í Njarðvík © mynd Emil Páll, fyrir all löngu. Þessi bátur sökk er verið var að draga hann erlendis í pottinn, en þá bar hann nafnið Guðrún Björg HF 123 |
08.03.2013 17:03
Símon GK 350
Þessi bátur hét upphaflega Hólmanes SU 120 og síðan Brimir KE 104
![]() |
101. Símon GK 350, í Grindavík © mynd Emil Páll fyrir xx árum |
08.03.2013 16:00
Búrfell KE 140 og Ljósfari GK 184
![]() |
17. Búrfell KE 140, í Njarðvikurhöfn og fyrir aftan hann er 219. Ljósfari GK 184 © mynd Emil Páll, fyrir áratugum |
08.03.2013 15:00
Breytingarnar á Ambassador í Njarðvík
![]() |
||||
|
|
2848. Ambassador, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © myndir Ambassador Akureyri Whale Watching 7. mars 2013
08.03.2013 13:45
Farsæll BA 200
![]() |
5101. Farsæll BA 200 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, Sigurður Bergþórsson, ljósm.. Þorsteinn Sigurðsson, Steini í Krók |
08.03.2013 12:45
Vilhelm Þorsteinsson EA 11, út af Garðskaga í gær
![]() |
||||||||
|
|
08.03.2013 11:45
Vigri RE 71, út af Garðskaganum í gær
![]() |
||||||
|
|
08.03.2013 11:00
Berglín GK 300 og Sigurborg SH 12
![]() |
1905. Berglín GK 300 og 1019. Sigurborg SH 12, á Siglufirði, í gær © mynd Hreiðar Jóhannsson, 7. mars 2013 |
08.03.2013 10:00
Sigurbjörg ÓF 1 og Sóley Sigurjóns GK 200
![]() |
| 1530. Sigurbjörg ÓF 1 og 2262. Sóley Sigurjóns GK 200, á Siglufirði í gær © mynd Hreiðar Jóhannsson, 7. mars 2013 |



























