Færslur: 2013 Mars
12.03.2013 11:45
Vikingbank / Quo Vadis / Jón Sigurðsson GK 62
Í gærdag rakst Baldur Sigurgeirsson á bátinn Vikingbank í Dakla í Morokko, sem einu sinni var gerður út hérlendis undir nafninu Jón Sigurðsson GK 62. Birti ég því mynd Baldurs síðan í gær og síðan eina mynd undir öðru nafni og einnig mynd af honum þegar hann kom í fyrsta sinn til Grindavíkur.
![]() |
||||
|
|
12.03.2013 10:45
Beitir NK 123, með gott kast
![]() |
||||
|
|
12.03.2013 10:08
Fönix ST 177
![]() |
177. Fönix ST 177, Hólmavík © mynd Jón Halldórsson, holmavik.123.is 11. mars 2013 |
12.03.2013 08:45
Bjóðin í land
![]() |
Bjóðin í land á Hólmavík © Jón Halldórsson, holmavik.123.is, 11. mars 2013 |
12.03.2013 07:45
Nanna ÍS 321
![]() |
6641. Nanna ÍS 321 í Sandgerði í gær © mynd Emil Páll, 11. mars 2013 |
12.03.2013 07:14
Mokafli hjá loðnuskipunum á miðjum Breiðafirði: Nýtt líf í veiðarnar með vestangöngu
mbl.is í morgun:
Léttara var yfir loðnusjómönnum í gær en í fyrradag. Þeir fóru úr lokahljóði í mokveiði á einni nóttu. „Þetta eru bestu lóðningar sem við höfum séð á vertíðinni,“ sagði Þorsteinn Kristjánsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Aðalsteini Jónssyni SU.
Hann var þá í mokveiði á miðjum Breiðafirði. Veiðin var eins mikil og næturnar réðu við.
Eyþór Harðarson, útgerðarstjóri Ísfélags Vestmannaeyja, hafði þær fréttir frá sínum mönnum á Guðmundi VE að ný loðnuganga virtist vera á ferðinni. Loðnan er smærri en sú sem kom að austan og segir hann að það bendi til vestangöngu. Þorsteinn er sömu skoðunar. Segir að loðnan virðist ganga suður Breiðafjörðinn.
12.03.2013 07:10
Stillum veiðunum í hóf til að hafa ferskt hráefni
mbl.is. í morgun:
„Það er einfalt, hér er miklu meira en nóg,“ segir Víðir Jónsson, skipstjóri á frystitogaranum Kleifabergi RE-7, sem er að veiðum í Barentshafi. „Það er mikið af fiski og mjög góður fiskur. Hann er fullur af hrognum.“
Kleifabergið er sunnarlega í Barentshafi, á svonefndum Lófótenmiðum. Í Morgunblaðinu í dag segir Víðir að fá skip séu þar að veiðum en nú sé komið annað íslenskt skip. Hinir íslensku togararnir eru norðar í Barentshafi. „Við reynum að stilla veiðunum í hóf til að hafa hráefnið alltaf ferskt.“
Lækkandi verð á afurðum kemur illa við skipverja og útgerð Kleifabergsins, eins og aðra. Víðir ber saman tvo túra með árs millibili. „Í byrjun árs í fyrra fór Kleifabergið á þetta svæði og fiskaði fullfermi sem lagði sig á 298 milljónir. Nákvæmlega tólf mánuðum síðar fórum við á sama svæði og sigldum heim með fullfermi en sá túr lagði sig á 216 milljónir.“
12.03.2013 07:07
Óvíst um komu Skálabergs RE
mbl.is:, 4. mars sl.
Óvíst er hvort eða þá hvenær frystitogari Brims hf., Skálaberg RE-7, kemur til landsins.
„Miðað við stöðuna í dag þá er ekki lengur rekstrargrundvöllur fyrir frystitogara, hvað þá ef nýja fiskveiðistjórnunarfrumvarpið fer í gegn,“ sagði Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf. „Við héldum að þetta umhverfi yrði lagað. Það eru bara ákveðin útgerðarfyrirtæki sem borga veiðigjöld og önnur gera það ekki nema að hluta eða alls ekki. Við lendum mjög illa í því.“
Guðmundur sagði að yrði rekstrarumhverfið ekki lagað þá horfði illa fyrir þeim sem þyrftu að borga fullt gjald. Hann sagði að undanfarið hefði aðallega verið fjölgað smábátum, t.d. strandveiðibátum, á miðunum en þeir þyrftu ekki að borga veiðigjald. Sama gilti um þá sem væru með „réttar“ skuldir miðað við veiðigjaldsformúluna. Loks fengi allur uppsjávarflotinn ívilnanir gagnvart veiðigjaldi því þorskígildisstuðullinn fyrir uppsjávartegundirnar væri svo vitlaus.
12.03.2013 06:49
Lómur SH 177
![]() |
1156. Lómur SH 177 © úrklippa úr Morgunblaðinu 15. júní 1996, úr Flota Tálknfirðinga, Sigurður Bergþórsson |
11.03.2013 23:03
Niðurrif 8 skipa (mínus) eitt sem sökk á leiðinni
Hér kemur syrpa með myndum af 8 skipum sem fóru eða áttu að fara í pottinn, bæði innanlands sem erlendis. Eitt þeirra komst ekki alla leið heldur sökk á leiðinni. Myndasmiður myndanna er Þorkell Hjaltason og hefur hann heimilað mér að birta þær og sendi ég honum því kærar þakkir fyrir.
Skip þau sem fjallað verður um eru: Guðrún Björg HF 125, Surprise HF 8, Aðalvík SH 443, Óskar RE 157, Súla EA 300, Sæberg HF 224, Karlsey og Gréta SI 71 og birtast mismargar myndir af hverju skipi, en allt um það hér kemur þetta:
76. Guðrún Björg HF 125



Hér á neðstu myndinni er 76. Guðrún Björg HF 125, að leggja af stað frá Hafnarfirði, en förinni var heitið til Belgíu og dró togarinn Gréta SI 71, bátinn. Ekki komst hann þó á leiðarenda því hann sökk út af Aberdeen.
137. Surprise HF 8

![]()

Þessar myndir voru teknar af 137. Surprise HF 8, þann 14. febrúar sl. en þá var hann kominn upp í rennu þá sem vinnuvélar áttu að taka til óspiltra málanna og brjóta hann niður í Hafnarfirði og sjálfsagt er því verki lokið eða a.m.k. komið langt
168. Aðalvík SH 443

168. Aðalvík SH 443, bíður þess á Seyðisfirði, að Óskar RE 157 taki hann í tog og dragi með sér til Belgíu.
![]()

Hér eru þeir búnir að rífa allt ofan af Aðalvíkinni í Belgíu, árið 2011
962. Óskar RE 157


962. Óskar Halldórsson RE komin til Belgíu 2011 og búið að klippa mest allt ofan af honum
1060. Súlan EA 300


Hér er verið að ferma Súluna á Ólafsfirði af brotajárni fyrir förina út


Beðið eftir að verkið hefjis í Ghent, í Belgíu, árið 2010, neðri myndinn er tekin ofan af stýrishúsi Súlunnar



Búið að rífa mikið ofan af 1060. Súlunni EA 300 í Ghent, í Belgíu, árið 2010
1143. Sæberg HF 224

1143. Sæberg HF 224, komið í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og bíður niðurifsins

1143. Sæberg HF 224, var rifið í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og hér er búið að opna það til að fjarlægja ljósavélina o.fl.





Sæbergið komið á hliðina í Njarðvíkurslipp
1400. Karlsey

1400. Karlsey í Hafnarfjarðarhöfn

Það var ekki mikið eftir af Karlseynni, 14. febrúar 2013
1484. Gréta SI 71


1484. Gréta SI 71, áður en lagt var í hann

Hér leggur Gréta SI 71 af stað úr Hafnarfirði með Guðrún Björgu HF 125 í togi

1484. Gréta SI komin til Ghent í Belgíu og bíður niðurrifs í janúar 2009

Langt komið með að rífa 1484. Grétu SI 71. í Belgíu
© myndir Þorkell Hjaltason
11.03.2013 22:45
Sæskel ÞH 16
![]() |
6996. Sæskel ÞH 16, í Njarðvíkurhöfn í dag © mynd Emil Páll, 11. mars 2013 |
11.03.2013 21:45
Frá Stykkishólmi
![]() |
Frá Stykkishólmi © mynd Símon Már Sturluson, 10. mars 2013 |
11.03.2013 20:45
Islenskur / norskur / Íslenskur
Þessi bátur sem skráður er í Noregi hefur ýmsar tengingar við Ísland. Hann er framleiddur hjá Trefjum í Hafnarfirði og ekki bara það því útgerðarmaður hans, er fyrrum útgerðarmaður að mig minnir á Patreksfirði, sem flutti bát sinn Selmu Dögg til Noregs fyrir nokkrum misserum, þar sem hann gerði hann út.
![]() |
Aldís Lind, af gerðinni Cleopatra 50, frá Trefjum í Hafnarfirði, í Hafnarfjarðarhöfn í gær © mynd Emil Páll, 10. mars 2013. Samkvæmt mínum fréttum mun báturinn fara til Noregs núna næstu daga, hugsanlega á morgun eða miðvikudaginn. |
11.03.2013 19:45
Birgir ÞH 323
![]() |
||||||||||||
|
|
11.03.2013 19:00
Örn KE 14
![]() |
||||
|
|
























