Færslur: 2013 Mars
14.03.2013 23:03
Kap II VE 7, fær úr nót Faxa RE 9 í gær
Hér koma myndir frá því í gær er Kap II VE 7 fékk úr nót Faxa RE 9. Ekki birtast myndirnar þó í réttri röð, né sá myndatexti sem Faxamenn höfðu undir þeim.
![]()









1062. Kap II VE 7, fær úr nót 1742. Faxa RE 9 © myndir Faxagengið, faxire9.123.is 13. mars 2013
14.03.2013 22:45
Ísborg: Síðutogarinn sem breytt var í flutningaskip
![]() |
123. Ísborg, eftir að þessum gamla síðutogara hafði verið breytt í flutningaskip © mynd Jónas Jónsson |
14.03.2013 22:23
Svona var veðrið hjá þeim í dag
![]() |
Svona var veðrið hjá þeim í dag á Arctic Star ex 1291. Arnar SH 157 ex Sæþór EA 101 ex Votaberg SU 12 ex Jón Helgason SF 15 og ex Jón Helgason 'AR 12, í siglingu þeirra til Noregs, en þegar mynd þessi var tekin voru þeir milli Færeyja og Íslands © mynd Ölver Guðnason í 14. mars 2013
14.03.2013 22:00
Guðrún Jónsdóttir ÍS 267
![]() |
67. Guðrún Jónsdóttir ÍS 267 © mynd Jónas Jónsson |
14.03.2013 21:00
Guðbjörg ÍS 14
![]() |
586. Guðbjörg ÍS 14 © mynd Jónas Jónsson, annað hvort um jólin 1959 eða í janúar 1960 |
14.03.2013 20:00
Kolbrunninn Guðdís GK 158 og Nonni ÍS 440
![]() |
||
|
|
14.03.2013 19:45
Tugmilljóna tjón í Vestmannaeyjum
visir.is:
Tugmilljóna tjón varð á togskipinu Bylgju VE þegar gámaskipið Tetuan sigldi utan í skipið um áttaleytið í morgun. Eyjafréttir greina frá þessu.
Samkvæmt upplýsingum Eyjafrétta sem fengust á skrifstofu Vestmannaeyjahafnar varð skipting í gámaskipinu til þess að gámaskipið fór utan í Bylgju VE. Gámaskipið rakst einnig utan í bryggjubíl en skemmdir á honum voru minnihátar.
„Þetta er mikið tjón á skipinu, tugmilljóna tjón sýnist mér. Skipið er mikið dældað við og fyrir neðan sjólínu. Þilið í lestinni hefur gengið inn og sprungið út á millidekkinu en skemmdirnar ná einnig niður í vélarrýmið," sagði Jóhann Þorvaldsson, yfirvélstjóri á Bylgju VE við Eyjafréttir.
14.03.2013 19:39
Drukkinn skipstjóri handtekinn við komuna til landsins
visir.is:
Drukkinn skipstjóri á Skógarfossi, leiguskipi Eimskips, var handtekinn við komuna til Sundahafnar á þriðjudag. Hann verður leiddur fyrir dómara í dag og að líkindum sektaður og sviptur skipstjórnarréttindum.
Þegar hafnsögumaður kom um borð í Skógarfoss úti á sundum á þriðjudag, við komuna frá Ameríku, þótti honum skipstjórinn vera í annarlegu ásatndi og megna áfengislykt leggja af honum. Hafnsögumaðurinn tók þegar alla stjórn í sínar hendur og hafði samband við land, og varð úr ráði að lögregla handtæki skipstjórann, strax og skipið legðist að bryggju. Lögregla fór svo með hann í blóðsýnatöku og svo til yfirheyrslu, en vegna ástands skipstjórans var lítið á henni að græða svo honum var stungið í fangageymslu og yfirheyrður á þriðjudag, þegar af honum var runnið.
Síðan gaf lögregla út ákæru fyrir skipstjórn undir áhrifum áfengis, og verður málið tekið fyrir í Héraðsdómi í dag. Skógarfoss er hinsvegar lagður af stað til Ameríku eftir lítilsháttar tafir við að útvega íslenskan skipstjóra. Eimskip hefur skipið á leigu og hefur þegar gert athugasemdir við leigusalan vegna málsins.
14.03.2013 19:24
Smíðaður, í Mosfellsbæ, Ásbrú og Grundarfirði
Þessi bátur sem ég tók í dag mynd af á Ásbrú, er fyrir útgerðarmann í Grundarfirði. Hófst framleiðslan í Mosfellsbæ, þaðan var hann fluttur á Ásbrú og hefur verið þar á tveimur stöðum, en síðast var það hjá Bláfelli, en þeir voru þó aðeins og smíða undir vélina og nú mun eigandinn fara með bátinn til Grundarfjarðar þar sem hann verður væntanlega kláraður
![]() |
Báturinn tilbúinn til ferðar á Grundarfjörð, í dag © mynd Emil Páll, 14. mars 2013 |
14.03.2013 18:01
Valberg VE 5
![]() |
||||
|
|
14.03.2013 17:00
Björgunaræfing, slökkvilið, Landhelgisgæslan, björgunarsveit og Fram ÍS 25
Í dag fór fram námskeið í atvinnumannaslökkvifræðum um borð í Fram og kom Landhelgisgæslan að þeirri æfingu með þyrluna þar sem Fram ÍS 25 lék stórt hlutverk svo og TF - LÍF, Slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Suðurnesja og Isavía, auk björgunarsveitarmanna frá Björgunarsveitinni Suðurnes sem komu að máli á björgunarbátnum Nirði Garðarssyni. Unnið var út frá því að eldur væri um borð í bát sem átti að vera út á sjó og þurfti að bjarga bæði skipi og skipverjum. Ekki var ekki hægt að notast við bryggjuna til að koma að mannskap eða tækjum til að líka eftir því að skipið væri úti á sjó og því flutti TF - Líf slökkvliðsmenn úr landi og yfir í bátinn.
Tók ég við þetta tækifæri þessa löngu myndasyrpu
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
14.03.2013 16:25
Dettifoss út af Sandgerði í dag
![]() |
| Dettifoss, út af Sandgerði í dag, á leið frá landinu © mynd Emil Páll, 14. mars 2013 |
14.03.2013 12:45
Baldur GK 97 ex KE 97
Síðasti útgerðarmaður Baldurs, áður en hann var varðveittur var Nesfiskur í Garði og meðan þeir áttu hann bar hann númerið GK 97, en fram að því hafði hann ávallt verið KE 97 og eftir varðveislu var aftur sett á hann KE 97. Frekar fáar myndir hafa verið í umferð af bátnum með GK númerinu, en þessa fann ég þó í fórum mínum, en hana hafði ég tekið á þessum tíma.
![]() |
311. Baldur GK 97, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll |
14.03.2013 11:15
Oddur á Nesi SI 76
![]() |
2799. Oddur á Nesi SI 76, á Siglufirði í gær © mynd Hreiðar Jóhannsson, 13. mars 2013 |






























