Færslur: 2013 Janúar
22.01.2013 17:00
Hafsteinn SK 3, Íslandsbersi HU 133 og Kæja ÍS 19

1850. Hafsteinn SK 3, 2099. Íslandsbersi HU 113 og 1873. Kæja ÍS 19, í Hafnarfirði © mynd Sigurður Bergþórsson, 19. jan. 2013
22.01.2013 16:00
Sigurbjörg ÓF 1



1530. Sigurbjörg ÓF 1, á Siglufirði © myndir Hreiðar Jóhannsson, 18. og 19. jan. 2013
22.01.2013 15:00
Steini Vigg SI 110

1452. Steini Vigg SI 110 o.fl., Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 19. jan. 2013
22.01.2013 14:00
Múlaberg SI 22


1281. Múlaberg SI 22 og á þeirri efri sést einnig 1530. Sigurbjörg ÓF 1 © myndir Hreiðar Jóhannsson, 19. jan. 2013
22.01.2013 13:00
Mánaberg ÓF 42


1270. Mánaberg ÓF 42 og á þeirri neðri sést einnig 1530. Sigurbjörg ÓF 1 © myndir Hreiðar Jóhannsson, 18. jan. 2013
22.01.2013 12:00
Draupnir ÁR 21

1171. Draupnir ÁR 21 © mynd úr Ægi, 2008
Sögu þessa báts hef ég sagt svo oft hér á síðunni að ég sleppi því nú
22.01.2013 11:00
Siglunes SI 70

1146. Siglunes SI 70, Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 18. jan. 2013
22.01.2013 09:00
Vestri BA 63 og Esjan

182. Vestri BA 63 á útleið frá Reykjavík, með Esjuna í baksýn © mynd visir.is
22.01.2013 08:00
Sigurður Ólafsson SF 44, Bjarni Gíslason SF 90 og Erlingur SF 65

173. Sigurður Ólafsson SF 44, 1324. Bjarni Gíslason SF 90 og 1206. Erlingur SF 65 © mynd úr Ægi, 2008
22.01.2013 07:00
Baldvin Njálsson á leið yfir flóann
Þessi mynd var tekin með miklum aðdrætti og sýnir togarann koma frá Hafnarfirði og sigla þvert yfir Faxaflóa með stefnu út fyrir Garðskaga

2282. Baldvin Njálsson, á leið frá Hafnarfirði, með stefnu út fyrir Garðskaga © mynd Emil Páll, 18. jan. 2013
22.01.2013 00:00
Grímseyingur GK 605 / Víkurberg GK 1 / Sighvatur GK 57
Eins og sést á þessum eru þeir nokkrir sem eru orðnir tuga ára gamlir og hafa síðan farið í gegn um margar breytingar og eru enn í fullum gangi, hér er einn þeirra. Fremur fáar myndir eru til að eldri árunum.
![]() |
|
|

975. Víkurberg GK 1 © mynd Jón Páll

975. Víkurberg GK 1, í yfirbyggingu hjá Skipasmíðastöð Njarðvikur © mynd Jóhann Sævar Kristbergsson

975. Sighvatur GK 57 © mynd úr Faxa

975. Sighvatur GK 57, á Djúpavogi © mynd Þór Jónsson

975. Sighvatur GK 57 © mynd Þorgeir Baldursson 2006

975. Sighvatur GK 57, kemur til Njarðvíkur © mynd Emil Páll

975. Sighvatur GK 57 í Njarðvik © mynd Emil Páll

975. Sighvatur GK 57, siglir út úr Reykjavíkurhöfn © mynd MarineTraffic, Sigurður Bergþórsson, 2012
Smíðanúmer 411 hjá Veb. elber Werft, Boizenburg, Þýskalandi 1965. Yfirbyggður hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur 1982. Ný brú og nýr skutur hjá Stálsmiðjunni hf., Reykjavík 1989. Lengdur hjá Morska Stocznia, Swinoujacie, Póllandi 1997. Nýjar innréttingar og byggt yfir að aftan í Póllandi 2003. Veltitankur settur í hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur 2007. Stórviðgerð hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur vegna tjóns sem varð er skipið fékk á sig brotsjó á Húnaflóa fyrir nokkrum árum
Smíðað sem fiskiskip, varð síðan hafrannsóknarskip við Grænhöfðaeyjar 1980-1982 og aftur fiskiskip.
Kom nýr til Neskaupstaðar 14. maí 1965.
Afsal til Fiskaness var gefið út 29. jan. 1972.
Nöfn: Bjartur NK 121, Grímseyingur GK 605, Víkurberg GK 1, Bjartur, Bjartur GK 57 og núverandi nafn: Sighvatur GK 57 (frá 1982)
21.01.2013 23:00
Slippurinn í Reykjavík tómur
Það er örugglega ekki oft sem færi gefst til að taka svona myndir af slippnum í Reykjavík, þar sem hann er tómur.


Sjaldgæf sjón. Slippurinn í Reykjavík tómur © myndir Sigurður Bergþórsson, 19. jan. 2013
21.01.2013 22:00
Frá sjómannadeginum á Hornafirði 1997

Frá sjómannadeginum á Hornafirði © mynd Hilmar Bragason, 1. júní 1997
21.01.2013 21:00
Kínabátarnir nýir í Hafnarfirði

Hér sjáum við Kínabátanna, í Hafnarfjarðarhöfn, þegar búið var að hífa þá í land úr flutningaskipinu sem flutti þá hingað til lands, á sínum tíma. Þarna bíða þeir í röð eftir afhendingu til viðkomandi útgerðar © mynd mbl.is, Sigurður Jökull


