Færslur: 2012 Desember
31.12.2012 16:00
Árið er liðið.....

Þá er komið að því, sem margir bíða spenntir eftir, en það er annállinn sem ég hef gert á gamlársdag nú í nokkur ár. Annáll þessi er raunar uppgjörið mitt fyrir árið sem er að líða og eins ef hægt er segi ég frá því sem ég vonast til að gerist á komandi ári.
Áður en ég fer þó lengra, vil ég nota þetta tækifæri til að óska öllum þeim sem hafa unnið með mér eða aðstoðað á einn eða annan veg varðandi síðuna GLEÐILEGS ÁRS og þakka fórnfúst starf á árinu sem er að líða. Hér eru um að ræða fjölmennan hóp ljósmyndara og nánast fréttaritar út um land og eins í nágrenninu við mig. Þessi fjölmenni hópur á miklar þakkir skyldar, sem ég færi þeim nú, því án þessa hóps hefði mér ekki tekist að gera svona fjölbreytta og vinsæla síðu og staðreyndir sýna, svart á hvítu. Þá hefur vaxið sá hópur sem vill fá að auglýsa á síðunni eða veita mér styrki í einni eða annarri mynd, en formið á núverandi síðu gefur ekki mikla möguleika.
Þó púkinn í mér hafi oft skemmt sér vel á árinu sem er að líða, vegna framkomu annarra síðueigenda þó aðallega tveggja, ætla ég ekki að eyða í þá púðri hér. Ástæðan er reynsla mín frá því að ég var með vinsælan gagnrýnisþátt í Víkurfréttum og síðari fjölmiðlum sem hétu MOLAR. Þar kom það oft í ljós að ættingjar þeirra sem fengu skotin, áttu erfiðara með að þola þau, en þeir sem voru teknir í gegn, því SANNLEIKANUM ER HVER SÁR REIÐASTUR og mun ég jafnframt viðhafa þann málshátt sem segir að SÁ VÆGIR SEM VITIÐ HEFUR MEIRA. Málið er að ég hef nánast ekkert farið inn á aðrar síður allt þetta ár, heldur hafa ýmsir fylgismenn mínir flutt mér fréttir af því sem þar er sagt um mig. Ég ætla því ekki að skemmta skrattanum með miklum lýsingaorðum um þá einstaklinga sem sérstaklega unnu til þess á árinu, þó mér finnist ef rétt er eftir sumum haft að þeir hagi sér frekar eins og smábörn en fullorðnir menn, með því að vera að væla um mig á víxl og því er ekki annað hægt en að vorkenna þeim litlu skinnunum, sem ná ekki að þroskast eðlilega á þessu sviði.
FRAMTÍÐIN
Í haust stóð til að ég opnaði aðra síðu, en sökum heilsuástands hefur orðið dráttur á því. Engu að síður hef ég fengið mikla hvatningu frá ýmsum sem vita hvað ég ætla mér í þeim efnum og hafa margir reynt að stappa í mig stálinu að drífa mig áfram þrátt fyrir veikindin og opna viðkomandi síðu. Sem dæmi þar um þá hafa komið tillögur að nýju nafni á síðuna, nafni sem mun valda óróa hjá öðrum ef af verður. En allt kemur þetta í ljós ef heilsan mín lagast og ég get tekið þátt í þeim mikla undirbúningi sem ýmsir aðilar hliðhollir mér hafa unnið að undanfarið, til að gera þetta mögulegt.
Að endingu sendi ég öllum lesendum síðunnar bestu áramótakveðjur, með þökkum fyrir innlitið og samstafið.
Það er því ljóst að þetta er síðasta færslan á þessu ári og næsta færsla verður einhvern tímann á næsta ári, (trúlega um eða upp úr hádeginu á morgun)
Með bestu áramótakveðjum Emil Páll
Af Facebook:
Þorgrímur Ómar Tavsen Ég óska þér gleðilegs nýs árs og þakka allt gamalt.
31.12.2012 15:00
Margrét EA 710

2730. Margrét EA 710 © mynd af vef Akureyrarhafnar
31.12.2012 14:00
Vilhelm Þorsteinsson EA 11

2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 11 © mynd af vef Akureyrarhafnar
31.12.2012 13:00
Árni Friðriksson RE 200
![]()

2350. Árni Friðriksson RE 200, í Reykjavíkurhöfn © mynd Sigurður Bergþórsson, 29. des. 2012
31.12.2012 12:00
Baldvin Þorsteinsson EA 10

2212. Baldvin Þorsteinsson EA 10 © mynd af vef Akureyrarhafnar
31.12.2012 11:00
Mickey Smith, eitt sinn íslenskur
Mickey Smits ex ex 1306. Norðri, í þýskri höfn © mynd shipspotting, hansdegraaf
Mickey Smith ex 1306, Norðri, frá Flateyri © mynd shipspotting, hansdegraaf
31.12.2012 10:00
Helga María og Fífill

1868. Helga María AK 16 í slippnum og gamli 1048. Fífill við bryggju í Reykjavíkurhöfn © mynd Sigurður Bergþórsson, 29. des. 2012
31.12.2012 09:00
Jóhanna EA 31 o.fl.

1808. Jóhanna EA 31 o.fl. © mynd af vef Akureyrarhafnar
31.12.2012 08:00
Aðalbjörg II RE 236

1269. Aðalbjörg II RE 236, í Reykjavíkurhöfn © mynd Sigurður Bergþórsson, 26. des. 2012
31.12.2012 07:00
Fagurt fley á Steingrímsfirði

Fagurt fley ( 741. Grímsey ST 2) á Steingrímsfirði með Hólmavík í bakgrunni © mynd Jón Halldórsson, holmavik.123.is í des. 2012
31.12.2012 00:00
Elsta stálfiskiskip landsins sem enn er í drift - sagan í máli og myndum

363. Búðafell SU 90 © mynd Snorri Snorrason

363. Búðafell SU 90 © mynd Snorrason

363. Hópsnes GK 77 © mynd Snorrason

363. Torfhildur KE 32 © mynd Emil Páll

363. Bjargey SH 230 © mynd Snorrason

363. Þröstur ÍS 222 © mynd Emil Páll, 1982-83

363. Þröstur KE 51 © mynd í eigu Emils Páls, ljósm.: ókunnur

363. Þröstur KE 51 © mynd Snorrason

363. Þröstur KE 51 © mynd Emil Páll

363. Þröstur KE 51 © mynd Emil Páll, um 1988

363. Þröstur KE 51 © mynd Emil Páll

363. Ósk KE 5 © mynd Hilmar Bragi Bárðarson

363. Ósk KE 5 © mynd Emil Páll

363. Ósk KE 5 © mynd i eigu Emils Páls, ljósm.: ókunnur

363. Ósk KE 5 © mynd Snorrason

363. Ósk KE 5 © mynd í eigu Emils Páls, ljósm.. ókunnur

363. Maron GK 522 © mynd Emil Páll, 2008

363. Maron GK 522 © mynd Emil Páll, 2009

363. Maron GK 522 © mynd Emil Páll, 4. janúar 2010

363. Maron GK 522 © mynd Emil Páll, 17. maí 2010

363. Maron HU 522 © mynd Emil Páll, 14. okt. 2012

363. Maron HU 522 © mynd Emil Páll, 14. okt. 2012

363. Maron HU 522 © mynd Emil Páll, 14. okt. 2012
Smíðaður í Skipasmíðastöðinni Holland Launch, NV. Amsterdam, Hollandi 1955 eftir teikningu W. Zwolsmann, Hollandi. Stórviðgerð Keflavík 1972. Lengdur 1988. Nýtt þilfarshús Hafnarfirði 2002.
Nöfn: Búðafell SU 90, Hópsnes GK 77, Hafberg GK 77, Hafberg GK 377, Torfhildur KE 32, Bjarney SH 230, Þröstur HU 131, Þröstur ÍS 222, Þröstur HF 51, Þröstur KE 51, Ósk KE 5, Þórunn GK 97, Maron GK 522 og núverandi nafn: Maron HU 522
30.12.2012 23:00
Gissur hvíti SI 55, á strandstað

457. Gissur hvíti SI 55, á strandstað á Brjánslæk © mynd Svafar Gestsson, annað hvort á árinu 1986, eða 1987
30.12.2012 22:00
Njörður GK 168

428. Njörður GK 168, í Sandgerðishöfn. Upphaflega hét þessi bátur Víðir II GK 275 og var mikið aflaskip © mynd Emil Páll
30.12.2012 21:00
Gömul mynd úr Keflavíkurhöfn

Gömul mynd úr Keflavíkurhöfn, sennilega frá árinu 1970 eða síðar
© mynd í eigu Emils Páls, ljósm.: ókunnur
30.12.2012 20:00
Þröstur ÍS 222 / Þröstur KE 51 / Maron GK 522

363. Þröstur ÍS 222, í Keflavíkurhöfn 1982 eða 1983

363. Þröstur KE 51, í Keflavíkurhöfn um 1988

363. Maron GK 522, í Njarðvíkurhöfn í september 2009 © myndir Emil Páll
