Færslur: 2012 Desember
11.12.2012 21:17
Ambassador - nýr Skemmtiferðabátur kominn til landsins
Nú þegar þetta er skrifað er ný skemmtiferðabátur ný kominn fram hjá Sandgerði á leið sinni til Reykjavíkur. Báturinn heitir Ambassador og er skráður hérlendis, hvort sem það verður nafnið hans í framtíðinni eða ekki. Heyrst hefur að gera eigi bátinn út til hvalaskoðunar frá Akureyri.
Eigendur eru nokkrir einstaklingar þ.á.m. Sandgerðingurinn Vignir Sigursveinsson, sem kenndur hefur verið við Eldingu. Siglir hann bátnum heim ásamt Magnúsi Guðjónssyni o.fl.
Birti ég hér tvær myndir af bátnum sem ég tók á MarineTraffic og er önnur tekin fyrir nokkrum dögum af umræddum Magnúsi.
![]() |
||
|
|
11.12.2012 21:00
Ýmir BA 32

1499. Ýmir BA 32, í síðustu veiðiferðinni á rækjuveiðunum í Arnarfirði að þessu sinni © mynd Jón Páll Jakobsson, í des. 2012
11.12.2012 20:00
Susanna Reith / ELDVÍK / Sunray / Nike

Susanne Reith, síðar 1388. Eldvík, í Goole, UK © mynd shipspotting, PWR
Skipið var smiðað í Þýskalandi 1958 og komst raunar fyrst í sögu Íslendinga eftir að hafa strandað við Raufarhöfn

1388. Eldvík ex Sussanne Reith, í Goole, UK © mynd shipspotting, PWR

Sunray ex 1388. Eldvík, í Goole, UK © mynd shipspotting, PWR

Nike ex Sunray ex 1388. Eldvík, í Goole, UK © mynd shipspotting, PWR
11.12.2012 19:00
Eldborg og Taurus
Þessi skip eru bæði tengd Íslandi, þau tengjast íslenskri útgerð þó þau séu skráð með heimahöfn í Tallin. Auk þess sem annað þeirra bar áður íslensk nöfn
Eldborg ex 1383. og 8100. Taurus, í Honningsvag, Noregi © mynd shipspotting, roar jensen 17. júlí 2012
Eldborg, heimahöfn Talin ex 1383. Skutull, Hafþór og Baldur í Honningvag, Noregi © mynd shipspotting, roar Jensen 19. júlí 2010
8100. Taurus EK 9914, í Honningvag, Noregi © mynd shipspotting, roar jensen 17. júlí 2012
11.12.2012 18:19
Litli Nebbi SU 29 - í endurbætur hjá Sólplasti
Sigurbrandur Jakobsson skrapp fyrir mig í hádeginu yfir í skemmu á Djúpavogi og tók þessar myndir af 6560. Lilla Nebba SU 29.
Þeir stefna á að leggja í hann á morgun með bátinn á vagni, en förinni er heitið til Sólplasts í Sandgerði.
Telur Sigurbrandur að vagninn sem notaður verður sem ég held að sé undan Orra SU 260. Búið er að taka vélina úr Litla Nebba.
enda á að setja í hann 230 ha Yanmar sem er árg 2003 og kemur úr 7272 Stíganda SF.
|
||||||
|
11.12.2012 18:00
Merc Europa / URRIÐAFOSS / Urridar

Merc Europa, síðar 1375. Urriðafoss © mynd shipspotting PWR

1375. Urriðafoss ex Merc Europa © mynd shipspotting, PWR

Urrida, ex 1375. Urriðafoss © mynd shipspotting, PWR

Urrida, ex 1375. Urriðafoss © mynd shipspotting, PWR
Skipið er smiðað í Danmörku 1971 og bar Urriðafossnafnið frá 1974 til 1985. Þá seldur til Kýpur. Í dag heitir skipið Reem og er frá Panama
11.12.2012 17:00
Grundarfoss
Skipið var smíðað í Danmörku 1971. Gert út héðan frá 1974 til 1993 og selt það ár til Bahamaeyja.



1374. Grundarfoss, í Hull og Goole, UK © myndir shipspotting, PWR

1374. Grundarfoss © mynd shipspotting, Derrek Sands, 1988

1374. Grundarfoss © mynd shipspotting, capt Jan Merchers
11.12.2012 16:00
Ex ÁLAFOSS: Íslands star / Scan Voyager / Gerder Bay / Eikvaag

Islands Star ex 1367. Álafoss, í Hull U.K. © mynd shipspotting, PWR

Islands Star ex 1367. Álafoss, í Coole U.K. © mynd shipspotting, PWR

Scan Voyager ex Íslands Star ex 1367. Álafoss í Goole, UK © mynd shipspotting, PWR

Gerder Bay ex Scan Voyager ex Íslands Star ex 1367. Álafoss © mynd shipspotting, Arid 27. júlí 1998

Eikvaag ex Gerder Bay ex Scan Voyager ex Íslands Star ex 1367. Álafoss © mynd shipspotting, Arid
Skipið var smíðað í Danmörku 1971 og sem Álafoss var það til á árunum 1974 til 1980. Fór í pottinn sem Ulsund, frá Noregi
11.12.2012 15:00
Brettingur KE 50


1279. Brettingur KE 50, í Reykjavíkurhöfn © myndir Jón Halldórsson, holmavik.123.is og nonni.123.is í des. 2012
11.12.2012 14:24
Hákon og Kristín út af Helguvík
Á þeim tímapunkti er Kristín ÞH 157 sigldi inn Stakksfjörðinn og var á móts við Helguvík kom þaðan út Hákon EA 148. Tók ég nokkrar myndir af bátunum, bæði þar sem þeir sjást báðir og eins af þeim hvorum í sínu lagi.
Eins og áður kom fram áðan var Kristín á leið í Njarðvíkurslipp, en Hákon sem hefur verið að frysta úti á Stakksfirði undanfarna daga var að losa við úrganginn í Helguvík.
![]() |
||||||||||||
|
2407. Hákon EA 148 siglir út frá Helguvík, núna áðan
|
11.12.2012 14:09
Kristín ÞH 157 kemur inn Stakksfjörðinn og að slippbryggjunni í Njarðvik
Hér kemur smá myndasyrpa sem ég tók núna áðan, er Kristín ÞH 157 sigldi inn Stakksfjörðinn með stefnu til Njarðvíkur lagðist síðan að slippbryggjunni, enda á leið í Skipasmíðastöð Njarðvíkur
972. Kristín ÞH 157 siglir inn Stakksfjörðinn í dag
|
||||||||||||||||||
|
|
11.12.2012 14:00
Atlavík RE 159 og Faxi RE 24

1263. Atlavík RE 159 og 1581. Faxi RE 24, í Reykjavíkurhöfn © mynd Jón Halldórsson, nonni.123.is og holmavik.123.is í des. 2012
11.12.2012 13:00
Múlafoss

1205. Múlafoss (72-84) Smíðaður í Hollandi 1967, fór í pottinn sem Nefell frá Honduras © mynd shipspotting, capt. Jan Melchers 10 okt. 1992
11.12.2012 12:00
Gullborg RE 38

490. Gullborg RE 38, í Reykjavík © mynd Jón Halldórsson, nonni.123.is og holmavik.123.is í des. 2012
11.12.2012 11:00
Þorri ex VE 50

464. Þorri ex VE 50, í Reykjavíkurhöfn © mynd Jón Halldórsson, nonni.123.is og holmavik.123.is í des. 2012




















