Færslur: 2013 September
24.09.2013 20:59
Var Markúsi ÍS sökkt?
Klukkan 7 í morgun birti ég frásögn um bátinn og þar kom m.a. fram að honum hafði verið fargað, en ekki hvernig. Þetta hafði ég eftir öruggum heimildum enda hefur það staðist.
Vegna athugasendar Tómasar Patreks, geti ég staðfest að Kristbjörgin fór beint til Hafnarfjarðar með viðkomu á Rifi, en á föstudagskvöldinu var Kristbjörgin afhent nýjum eigendum í Njarðvík.
Hér birtast tvær greinar um málið úr bb.is. frá því í dag, en mbl. birti nú í kvöld úrdrátt úr þessum fréttum
bb.is | 24.09.2013 | 16:18Engin tilkynning borist vegna Markúsar ÍS
Guðmundur Lárusson hjá rannsóknarnefnd samgönguslysa segir enga tilkynningu hafa borist um sjóslys eða sjóatvik vegna hvarfs Markúsar ÍS, utan þeirrar sem barst 3. ágúst síðastliðinn er báturinn sökk í Flateyrarhöfn. Ekkert hefur sést til bátsins frá því Kristbjörn ÍS dró hann úr höfn á Flateyri fimmtudaginn 19. september. Eftir að bátnum var komið á flot eftir að hafa sokkið í byrjun ágúst hefur Þorbjörn Steingrímsson frá Garðsstöðum í Ísafjarðardjúpi fengið að hirða vélar og annar brotajárn út Markúsi. Hann segist ekkert vita um afdrif bátsins.
Samkvæmt heimildum blaðsins átti að færa Markús til Ísafjarðar til niðurbrots. Það staðfesti Guðmundur Kristjánsson, hafnarstjóri Ísafjarðarbæjar. Aðspurður segir Hlynur Snorrason yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Vestfjörðum að engin tilkynning hafi borist þeim um hvarf bátsins.
Í 16. grein laga um rannsókn samgönguslysa segir að "verði sjóslys eða sjóatvik beri sérhverjum sem um það veit að tilkynna það rannsóknarnefnd samgönguslysa án ástæðulauss dráttar eða ganga úr skugga um að nefndin hafi fengið vitneskju um slysið." Þar bera meðal annars stjórnendur, eigendur eða útgerðamenn skipa sérstaka skyldu til að tilkynna. Brot gegn ákvæðum 16. greinarinnar varða sektum. Markús ÍS er í eigu Reddingar ehf en Kristbjörg ÍS, er í eigu GSA ehf. Ekki náðist í forsvarsmenn Reddingar ehf eða GSA ehf., við vinnslu fréttarinnar þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
bb.is | 24.09.2013 | 15:47Markús ÍS sokkinn aftur?
Báturinn Markús ÍS sem sökk í Flateyrarhöfn í byrjun síðasta mánaðar og var kominn á flot nokkrum vikum síðar, ku vera sokkin aftur samkvæmt heimildum blaðsins. Kristbjörg ÍS 177 (sem í dag mun vera komin með einkennisstafina ÁR 177) mun hafa dregið Markús úr höfn á Flateyri 19. september síðastliðinn og hefur ekkert spurst til hans síðan. Guðmundur M. Kristjánsson, yfirmaður hafna Ísafjarðarbæjar, staðfesti við BB að hann hefði gefið leyfi fyrir því að Markús yrði dreginn til Ísafjarðar til niðurbrots, en hann hafði ekkert frétt af hvarfi bátsins og þótti það hið undarlegasta mál.
Björn Jóhannsson hafnsögumaður á Ísafirði segir bátinn ekki hafa verið tilkynntan í höfn á Ísafirði svo víst er að hann komst aldrei til Ísafjarðar. Þorbjörn Steingrímsson á Garðstöðum í Ísafjarðardjúpi fékk samkvæmt upplýsingum blaðsins að hirða vélar og annað brotajárn úr bátnum. Hann segist hafa boðist til að aðstoða við niðurbrot bátsins en vissi ekki meira um málið. Markús ÍS er í eigu Reddingar ehf., og Kristbjörg ÍS er í eigu GSA ehf. Bæði fyrirtækin munu vera í eigu Sigurðar Aðalsteinssonar eiganda Lotnu ehf. Samkvæmt upplýsingum blaðsins þarf að tilkynna hvers kyns sjóslys eða sjóatvik til Rannsóknanefndar samgönguslysa en það mun ekki hafa verið gert í þessu tilviki.
harpa@bb.is
AF FACEBOOK:
Sigurbrandur Jakobsson Segir allt sem segja þarf
24.09.2013 20:19
Fleki EA 46
6322. FLEKI EA 46 © mynd Marine Traffic 5. júní 201124.09.2013 19:25
Marersk Euro Quarto / Brúarfoss

Marersk Euro Quarto, í Rotterdam, Hollandi © mynd shipspotting, Joerg Seyler, 7. ágúst 1998

Marersk Euro Quarto, í Rotterdam, Hollandi © mynd shipspotting, Joerg Seyler, 7. ágúst 1998

Brúarfoss, í Hamborg, Þýskalandi © mynd shipspotting, Andreas Hoppe

Brúarfoss, í Tórshavn, Færeyjum © mynd shipspotting, Dereks Sands, 7. júní 2013
24.09.2013 18:20
Jón Kristinn SI 52

6209. Jón Kristinn SI 52, á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 21. sept. 2013
24.09.2013 17:17
Sædís Bára GK 88, í Keflavík


2829. Sædís Bára GK 88, í Keflavíkurhöfn, í gær © myndir Emil Páll, 23. sept 2013
24.09.2013 16:24
Oddur á Nesi SI 76 o.fl.

2799. Oddur á Nesi SI 76 o.fl. á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 21. sept. 2013
24.09.2013 15:20
Herjólfur, í Landeyjarhöfn og í Vestmannaeyjum

2164. Herjólfur, í Landeyjarhöfn © mynd af RUV.is

2164. Herjólfur, í Vestmannaeyjum © mynd af RUV.is
24.09.2013 14:49
Polar Amaroq verður Birtingur NK? og Birtingur ex Börkur seldur ? Í stað Polar Amaroq kemur norskur?

Polar Amaroq GR 18-49. Verður hann Birtingur NK? © mynd Emil Páll
Frétti af því í morgun að skipapælingar væru í gangi hjá Síldarvinnslunni þ.e að Polar Amaroq GR 18-49 þ.e. sá grænlenski komi í stað Birtings ex Börkur, sem hefur verið seldur eða allavega er komið kauptilboð í hann. Þá er sagt að þeir væru að kaupa nýtt skip frá Noregi í stað þess grænlenska skipsins Polar Amaroq

1293. Birtingur NK 124, er búið að selja hann? © mynd Emil Páll
24.09.2013 14:21
Júlíus Geirmundsson ÍS 270

1977. Júlíus Geirmundsson ÍS 270 © mynd bb.is
24.09.2013 13:24
Máni II ÁR 7, við Vatnsnes, Keflavík

1887. Máni II ÁR 7, við Vatnsnes, Keflavík © mynd Emil Páll, 21. sept. 2013
24.09.2013 12:20
Neptune EA 41, Antigua, Anna EA 305 og Týr, á Akureyri í gær

2266. Neptune EA 41, Antigua, 2870. Anna EA 305 og 1421. Týr, á Akureyri, í gær © mynd af vefmyndavél Akureyrarhafnar 23. sept. 2013
24.09.2013 11:39
Hoffell SU 80, á Fáskrúðsfirði




2345. Hoffell SU 80, á Fáskrúðsfirði © myndir Óðinn Magnason, 22. sept. 2013
24.09.2013 10:25
Óli Gísla HU 212


2714. Óli Gísla HU 212, við Vatnsnes, í Keflavík sl. sunnudag © myndir Emil Páll, 22. sept. 2013
24.09.2013 09:25
Ljósafell SU 70, á Fáskrúðsfirði

1277. Ljósafell SU 70, á Fáskrúðsfirði © mynd Óðinn Magnason, 22. sept. 2013
24.09.2013 08:45
Sænes SU 44, á Fáskrúðsfirði


1068. Sænes SU 44 , á Fáskrúðsfirði © mynd Óðinn Magnason, 22. sept. 2013
