Færslur: 2013 Ágúst
14.08.2013 06:13
Björn KE 95

344. Björn KE 95. Segja má að beinagrindin hafi staðið uppi vel á annan áratug í Dráttarbraut Eyrarbakka © mynd Emil Páll
Smíðaður i Faaborg, Danmörku 1916. Stækkaður 1945. Kom fyrst til landsins og þá á Kljálströnd 30. jan. 1917 og var farinn til línuveiðar suður fyrir land tíu dögum síðar. Talinn ónýtur 23. nóv. 1965. Beinagrindin af bátnum stóð uppi vel á annan áratug í Dráttarbraut Eyrarbakka, a.m.k. fram til 1974.
Nöfn Dröfn TH 224, Dröfn EA 396, Björn GK 396, og Björn KE 95.
13.08.2013 22:30
Adrar, skip með þremur íslenskum yfirmönnum: Einari, Baldri og Svafari


Adrar

Baldur að bæta á vökvastýri með stólpípu

Baldur í klippingu hjá Svafari

Capt. Einar

Einar að fa'ana

Einar fylgist með dælingu

Karimi, einn af vélstjórum Svafars

Landað úr Adrar

Löndun

Muhammed

Sardina


Skipskötturinn

Skipverjar á Adrar

Stund milli stríða

Tedrykkja

Verið að dæla, Ayad glaðbeittur

Vélstjórar Svafars, Rafik, Karimia og Ayad

Þessi kvikindi slægjast stundum í trollið
© myndir Svafar Gestsson, 2013
13.08.2013 22:06
Village De pêche Lassarga

Village De pêche Lassarga © mynd Svafar Gestsson, 2013
13.08.2013 21:14
Smábátahöfnin í Dakhla

Smábátahöfnin í Dakhla © mynd Svafar Gestsson, 2013
13.08.2013 20:53
Víkingur siglir í þessari viku
ruv.is:

Farþegaskipið Víkingur hefur hlotið öll tilskilin leyfi til siglinga.
Farþegaskipið Víkingur fékk leyfi til siglinga á föstudag. Skipið siglir þó ekki enda hljóðar leyfið upp á mun færri farþega en aðstandendur þess vonuðust til.
Skipið Víkingur, sem ætlað er að sigla milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar fékk leyfi til farþegasiglinga á föstudag. Að sögn starfsmanna skipsins hefur það siglingar í þessari viku. Starfsmenn Viking Tours, sem á skipið, fagna leyfisveitingunni en segja óánægju ríkja með takmörkun á fjölda farþega og gildistíma leyfisins. Skipið tekur 100 farþega, en leyfið hljóðar upp á siglingar með 41 til Landeyjahafnar og 70 í útsýnissiglingar.
Að sögn Óðins Steinssonar, starfsmanns Viking Tours, hefur fyrirtækið sótt um rýmkun á leyfinu og vonast til að það verði veitt á næstu dögum. Fáist það býst Óðinn við því að skipið hefji siglingar fyrri hluta þessarar viku, þá með leyfi upp á allt að 80 farþega sem er vel undir því sem björgunarbúnaður skipsins leyfir, bæði frá Landeyjahöfn og í útsýnissiglingar. Víkingur fer ekki áætlanaferðir en átti að fara í prufusiglingu í gær þar sem allur búnaður og skipulag yrði yfirfarið.
Víkingur er þriðja skipið á Íslandi sem hlýtur leyfi til að sigla um svokallað hafsvæði B. Áður hafa Herjólfur og Sæfari hlotið leyfið.
13.08.2013 20:16
Rússadallar og herskip

Rússadallar og herskip, út af Dakhla © mynd Svafar Gestsson, 2013
13.08.2013 19:15
Oktupusari, frá Agadir

Oktupusari, frá Agadir © mynd Svafar Gestsson, 2013
13.08.2013 17:31
Vinirnir Oleg og Svafar Gestsson

Vinirnir Oleg og Svafar Gestsson, í Dakhla

Oleg © myndir Svafar Gestsson, 2013
13.08.2013 17:21
Stafnesið farið til Svalbarða?
Stafnes KE 130 lét úr höfn í Njarðvik nú um miðjan daginn og þegar þetta er skrifað stefnir báturinn norður Faxaflóann, en hann lét úr höfn fyrir rúmum tveimur klukkustundum. Sem kunnugt er muna hann vera við þjónustu á olíusvæðinu við Svalbarða næstu fjóra mánuðina.
964. Stafnes KE 130, í Njarðvíkurhöfn © mynd Emil Páll, 11. ágúst 2013
AF FACEBOOK:
Guðni Ölversson Það voru falegir bátar. Komu þeir ekki 4 til landsins. Bára og Vestamanneyjabátarnir Bergur og Huginn. Man ekki í svipinn hvert sá fjórði fór
13.08.2013 14:26
Vatnstrukkurinn og dælubúnaðurinn


Vatnstrukkurinn í Dakhla
Dælubúnaðurinn í Vatnstrukkunum, í Dakhla © myndir Svafar Gestsson, 2013
13.08.2013 12:27
Sólarlag í Afríku


Sólarlag í Afríku © myndir Svafar Gestsson, 2013





