Færslur: 2013 Júlí
10.07.2013 07:00
Akurey KE 121


2. Akurey KE 121, í Keflavíkurhöfn © myndir Emil Páll, einhverntímann á árunum 1986 til 1989
Smíðanúmer 848 hjá Fredriksund Skipværft A/S, Frederiksund, Danmörku 1963. Úreltur i maí 1992 og átti að fargast 21. ágúst 1992, en breytt í krá í Hornarfjarðarhöfn.
Strandaði við Hornarfjarðarós 1983, en náð út fljótlega aftur.
Nöfn: Akurey SF 52, Akurey GK 160, Akurey KE 121 og Akurey SF 122. Eftir að hann var tekinn af skrá var hann nefndur aftur sínu fyrsta nafni þ.e. Akurey SF 52.
10.07.2013 06:00
Þrjár skútur á Siglufirði
![]() |
Þrjár skútur á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 9. júlí 2013 |
09.07.2013 22:40
Jónatan Stefánsson: Mikill safnari, á módel og myndir af frægum skipum - og saga Gullskipsins
Í Sandgerði býr Garðmaðurinn Jónatan Stefánsson, sem í gegn um árin eða allt frá árinu 1978 hefur viðað að sér mörgum módelum af frægum skipum, myndum og mörgu öðru er tengist sjósókn. Til að skoða safn hans heimsótti ég hann í dag undir leiðsögn Baldurs Konráðssonar.
Jónatan hóf söfnun sína með því að kaupa líkan af áttæringi af Hinrik í Merkinesi og síðan hefur hann eignast 30 módel í viðbót, m.a. módel af Títanik, Gullskipinu sem í raun hét Het Waper Van Amsterdam ( og ég birti sér frásögn hér fyrir neðan myndirnar), vélbátnum Garðari BA 64, en á honum var hann í mörg ár og getur sagt margar skemmilegar sögur um það úthald og margt annað sem vonlaust er að telja upp. Þá eru myndir af ýmsum íslenskum bátum um mundir er tengjast sjósókn.
Þar sem ég birti ekki nema örfáar myndir frá safni Jónatans, vísa ég á síðu Gissurar Þórs Grétarssonar, njall.123.is, en þar birtist ítarleg myndataka úr safninu. Fregnir af söfnunaráráttu Jónatans hefur borist víða, enda er mjög gestkvæmt hjá honum af fólki sem kemur til að skoða. Meðal þeirra eru líka fólk sem vill fá að kaupa muni af honum en þeir eru ekki falir. Sem dæmi þar um þá vildu færeyingar kaupa allt safnið stykki fyrir stykki og setja í gám og flytja út til Færeyja. Þá hafa sveitarstjórnarmenn í Skaftafellssýslu óskað eftir að fá að kaupa módeli að gullskipinu, en það er heldur ekki til sölu.


Efra módelið, er það fyrsta sem Jónatan fékk í safnið, áttæringur frá Hinriki á Merkinesi ( fyrir þá sem ekki þekkja þann mann, þá hét hann í raun Vilhjálmur Hinrik og var pabbi þeirra systkina Ellýar og Vilhjálms Vilhjálmssonar söngvara. Neðra módelið er af Titanic

Þarna sjáum við m.a. Het Wapen van Amsterdam (gullskipið) og 60. Garðar BA 64

Het Wapen van Amsterdam (gullskipið)

Hér kennir margra grasa, eins og oft er sagt

60. Garðar BA 64

Jónatan Stefánsson, við Het Wapen van Amsterdam (gullskipið)
© myndir Emil Páll, í dag, 9. júlí 2013
Saga gullskipsins:
Het Wapen van Amsterdam (stundum nefnt gullskipið) var hollenskt skip sem sigldi frá Austur-Indíum árið 1667. Það strandaði á Skeiðarársandi 19. september 1667. Skipið var hlaðið dýrmætum varningi og með 200 manns innanborðs. Af þeim björguðust 60 eftir mikla hrakninga en hinir 140 létust úr sjóvolki og kulda. Margar tilraunir hafa verið gerðar til að finna skipið í sandinum en þær hafa ekki borið árangur. Ýmsir töldu að skipið hefði borið verðmætan farm frá Austur-Indíum sem hefði grafist með flakinu í sandinn en á móti hafa menn bent á heimildir sem gefa til kynna að skipið hafi verið rifið og viðir þess nýttir í áratugi eftir strandið.
Leitin að gullskipinu
Saga skipulegrar leitar að skipsflakinu í sandinum hófst á því að Bergur Lárusson frá Kirkjubæjarklaustri fékk árið 1960 leyfi frá forsætisráðherra til að leita að skipinu gegn hlut í því sem fyndist. Leitin hófst samt ekki fyrr en árið 1971 þegar hópur athafnamanna með Kristinn Guðbrandsson, kenndan við fyrirtækið Björgun, innanborðs kom að málinu í samstarfi við Berg. 1974 kom ábending frá starfsmönnum Varnarliðsins um skipsflak á ákveðnum stað í sandinum. Uppgröftur leiddi ekkert í ljós en 1981 sýndu mælingar annað flak á öðrum stað en talið var að skipið hefði strandað. Mikill uppgröftur var hafinn þar með 50 milljón króna ríkisábyrgð árið 1983 en þegar til kom reyndist það vera flak af þýska togaranum Friedrich Albert frá Getsemünde sem strandaði 19. janúar 1903.
09.07.2013 22:15
Elín Ósk, sjósett á Siglufirði







Elín Ósk, sjósett á Siglufirði © myndir Hreiðar Jóhannsson, 7. júlí 2013
09.07.2013 22:01
Sigurbrandur Jakobsson
Sem smá púkaskapur stal ég þessari mynd af heimasíðu Sigurbrands, en hér er hann í vinnuklæðnaði sem hafnarstarfsmaður á Akureyri. Eins og menn vita hefur Sigurbrandur verið ljósmyndari síðunnar í þó nokkur misseri og tekið myndir víða um land, en nú þegar hann er kominn í það starf sem hann er í, berast fáar myndir frá honum, frá Akureyri ( svona smá grín)
![]() |
Sigurbrandur Jakobsson, í vinnuklæðnaði hafnarstarfsmanna á Akureyri |
09.07.2013 21:30
Skötuselur í fangi skipverja á Steinunni SF
![]() |
Skötuselur í fangi skipaverja á 2449. Steinunni SF 10 © mynd frá Geir Garðarssyni, ljósm. Pálmi, 2009 |
09.07.2013 21:18
Grundarfjörður: Ocean Princess og biðröð fyrir utan bryggjuna
Heiða Lára, Grundarfirði: Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom í gær, Ocean Princess. Um 19:30 var svo biðröð fyrir utan bryggjuna hér í Grundarfirði. Sem sagt líf og fjör.

Ocean Princess í gær


Biðröð fyrir utan bryggjuna í dag

Grundarfjörður í dag © myndir Heiða Lára, í júli 2013
09.07.2013 20:31
Sjór - sjór


Séð frá 2449. Steinunni SF 10 © myndir frá Geir Garðarssyni, ljósm.: Pálmi
09.07.2013 19:33
Seafalke
![]() |
| Seefalke við Miðbakka, í Reykjavík © Faxagengið, faxire9.123.is 4. júlí 2013 |
09.07.2013 18:13
Tvær frá Hafnarfirði og ein frá Höfn


Hafnarfjörður

Höfn
© myndir frá Geir Garðarssyni, ljósmyndari Pálmi, um borð í 2449. Steinunni SF 10
09.07.2013 17:25
Þrjár stórar myndasyrpur
Vart hefur það farið fram hjá neinum að ég hef birt að undanförnu margar myndir er tengjast 2449. Steinunni SF 10. Myndir þessar hafa komið frá Geir Garðarssyni sem var skipstjóri þarna um borð um tíma og eru þær flestar ef ekki allar teknar af Pálma á árunum 2008 og 2009. Eins og ég hef sagt áður var hér vel á þriðja hundrað mynda og eftir daginn í dag er ég búinn að birta allar myndirnar sem ekki flokkast undir stærstu seríurnar, en um rétt rúmlega helmingur myndannar flokkast með þeim. Tæplega helmingur að þeim myndum sem enn eru óbirtar eru af mannskapnum um borð í skipinu, litlu færri tengjast veiðum og afla, en örfáir tugir eru fá vélbúnaði eða tækjum í skipinu.
Þetta eru það gríðarlega stórar seríur að ég mun dreifa þeim í marga syrpur sem birtast á þó nokkrum tíma. Eina vandamálið sem ég sé við þessar gríðarlegu syrpur er að það vantar allar upplýsingar um það sem sést á myndunum og eins mannanöfn, en vonandi eru þeir margir þarna úti sem vita vel um hvað er verið að ræða, þó það standi ekki undir viðkomandi myndum.
Í raun er svo að varðandi t.d. mannamyndirnar þekki ég aðeins tvo menn, þarna og koma þeir fram á þremur myndanna, sem ég birti nú.

Jósef Zarioh

Sigurður Garðarsson, bróðir Geirs skipstjóra

... og aftur Jósef Zarioh © myndir frá Geir Garðarssyni, fyrrum skipstjóra, ljósm.: Pálmi og eru myndirnar teknar um borð í 2449. Steinunni SF 10
09.07.2013 16:25
Frá Vestmannaeyjum
![]() |
Frá Vestmannaeyjum © mynd Friðrik Friðriksson, í júní 2013 |
09.07.2013 15:30
Mannbjörg er Dísanna HF 63 brann og síðan sökk í morgun


5972. Dísanna HF 63, í Grófinni, Keflavík © myndir Emil Páll. Fyrri myndin var tekin 18. maí 2012 en sú neðri 27. október sama ár
09.07.2013 14:32
Höfrungur III AK 250
![]() |
1902. Höfrungur III AK 250 © mynd Faxagengið, faxire9.123.is 6. júlí 2013. |







