Færslur: 2013 Febrúar
18.02.2013 21:44
Reyðarfjörður í dag - myndasyrpa
|
|
||||||||||||||||||||||||||||
18.02.2013 21:20
Rækjuvinnsla aftur á Hvammstanga
Nesfiskur í Garði keypti verksmiðjuna og ætlar að senda tvo togara á rækjuveiðar
Meleyri á Hvammstanga, ein elsta rækjuverksmiðja landsins, hefur verið opnuð aftur, eftir stopula starfsemi undanfarin ár. Nesfiskur í Garði keypti verksmiðjuna, hefur ráðið 12 manns til vinnu og hyggst senda tvo togara á rækjuveiðar, að því er fram kemur í fréttum RÚV.
Þegar Meleyri var lokað árið 2006 misstu 20 manns vinnuna. Einhver starfsemi hefur verið síðustu árin í verksmiðjunni, mjög lítil síðasta árið. Ánægja ríkir á Hvammstanga með kaupin og eru nokkrar væntingar bundnar við starfsemina.
Baldvin Þór Bergþórsson, verkefnastjóri hjá Nesfiski, segir að ætlunin sé að vera með starfsemi fyrir 10-15 manns. Útlitið sé gott.
Til að byrja með verður unnin frosin rækja frá Kanada, en togararnir tveir, Berglín GK 300 og Sóley Sigurjóns GK 200, halda bráðlega á veiðar. Annar þeirra mun landa á Hvammstanga til að byrja með, segir ennfremur í frétt á RÚV.
18.02.2013 21:00
Víkingur KE 10, á fyrsta degi

2426. Víkingur KE 10, í Grófinni, Keflavík, ný sjósettur í fyrsta sinn © mynd Emil Páll, 2008
18.02.2013 20:00
Loðnuflotinn á litlu svæði

Loðnuflotinn var á litlu svæði, út af Breiðamerkursandi © mynd Faxagengið, faxire9.123.is 15. feb. 2013
18.02.2013 19:00
Finnur fríði FD 86, á loðnumiðunum

Finnur fríði FD 86, á loðnumiðunum © mynd Faxagengið, faxire9.123.is 15. feb. 2013
18.02.2013 18:00
Jón Trausta RE 329 - í dag Ella Kata SH 96

6458. Jón Trausta RE 329 © mynd úr Fiskifréttum. Í dag heitir báturinn Ella Kata SH 96
18.02.2013 17:00
Aðalsteinn Jónsson SU 11


2699. Aðalsteinn Jónsson SU 11, á loðnumiðunum © myndir Faxagengið, faxire9.123.is 15. feb. 2013
18.02.2013 16:00
Huginn VE 55 og Þorsteinn ÞH 360

2411. Huginn VE 55 og 1903. Þorsteinn ÞH 360 © mynd Faxagengið, faxire9.123.is 15. feb. 2013
18.02.2013 15:00
Vilhelm Þorsteinsson EA 11

2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 11 © mynd Faxagengið, faxire9.123.is 15. feb. 2013
18.02.2013 14:00
Röðull ÍS 115 með perustefni frá Sólplasti
Í morgun stóð til að sjósetja Röðul ÍS 115, sem upphaflega var framleiddur hjá Sólplasti, en var nú að koma frá stöðinni, þar sem sett hafði verið á hann perustefni. Ekkert varð þó úr sjósetningu í morgun af tæknilegum ástæðum, en sjósetningin var alfarið í höndum eiganda bátsins og stendur báturinn nú efst í brautinni, en vonandi verður hægt að sjósetja hann á morgun. Tók ég þessa myndasyrpu í morgun, í Sandgerði.

Lagt af stað með Röðul ÍS 115 frá höfuðstöðvum Sólplasts í Sandgerði

Hér er komið niður undir sjósetningabrautina og þarna má vel sjá hvernig perustefnið lítur út


Hafist er handa við að koma bátnum niður brautina


Ekkert varð þó úr sjósetningunni

Svona mun báturinn bíða til morguns, en reynt verður aftur © myndir Emil Páll, í morgun, 18. feb. 2013
18.02.2013 13:00
Alli Vill GK 700 - nú Sæborg NS 40

2084. Alli Vill GK 400 © mynd úr Fiskifréttum. Heitir í dag Sæborg NS 40
18.02.2013 12:00
Öyfisk ex Þórir Jóhannsson GK og Útlaginn

Öyfisk ex 1860. Þórir Jóhannsson GK 116 og Útlaginn, í Noregi © mynd Jón Páll Jakobsson, í feb. 2013
18.02.2013 11:00
Erika, Birtingur og Vilhelm Þorsteinsson

Erika GR 18-119, 1293. Birtingur NK 124 og 2410. Vilhelm þorsteinsson EA 11, á loðnumiðunum © mynd Faxagengið, faxire9.123.is 15. feb. 2013
18.02.2013 10:00
Erika GR 18-119

Grænlenska loðnuskipið Erika GR 18-119 ex 1807. Birtingur NK og Hákon ÞH, á loðnumiðunum © mynd faxagengið, faxire9.123.is
18.02.2013 09:00
Birtingur NK 124 og Erika GR 18-119 á loðnumiðunum

Erika GR-118 ex 1807. og 1293. Birtingur NK 124, á loðnumiðunum © mynd Faxagengið, 123.is 15. feb. 2013














