Færslur: 2010 Júní
09.06.2010 10:55
Freydís ÍS 80

7062. Freydís ÍS 80, í Keflavíkurhöfn í gær
7062. Freydís ÍS 80, siglir inn Keflavíkina í átt að Grófinni © myndir Emil Páll, 8. júní 2010
09.06.2010 10:52
Arctic Wanderer
Hnattsiglingafarinn sem býr í þessari skútu, fór að ég held í morgun út í heim, en skútan hafði vetrardvöl í Njarðvíkurslipp

Arctic Wanderer í Keflavíkurhöfn í gær © myndir Emil Páll, 8. júní 2010
09.06.2010 10:46
Njarðvík




Þessar myndir eru annars vegar teknar í Njarðvíkurhöfn við 2101. Sægrím GK 525 og hinsvegar af 127. Valbergi II VE 105 eins og það leit út í gærkvöldi © myndir Emil Páll, 8. júní 2010
09.06.2010 10:41
Venus HF 519 og Þerney RE 101 við Garðskaga
Hér koma myndir af tveimur togurum frá HB Granda er þeir silgdu fyrir Garðaskaga í gærkvöldi.
519. Venus HF 519
2203. Þerney RE 101 © myndir Emil Páll, á Garðskaga 8. júní 2010
09.06.2010 10:32
Tæplega 60 ára gömul systurskip samtímis í Njarðvík og bæði á leið í slipp

450. Eldey GK 74 í Njarðvíkurhöfn, en þangað var komið með bátinn í gær og herma fregnir að því að hann fari í Njarðvikurslipp og verður bútaður niður á eftir Valbergi II

795. Drífa SH 400, í Njarðvikurhöfn, en þetta skip er enn í útgerð © myndir Emil Páll, 8. júní 2010
09.06.2010 10:29
Grímsnes GK 555

89. Grímsnes GK 555, í Keflavík © mynd Emil Páll, 7. júní 2010
09.06.2010 09:47
Hvað á að gera?
Að undanförnu hafa orðið miklar breytingar hér á skipasíðunum. Góðar síður eins og síða Óskars Franz og síða Tryggva Sigurðssonar eru komnar í frí í einhvern tíma, en þó mun Tryggvi setja inn myndir svona af og til. Þá veit ég um aðra sem eru að spá í það sama.
En hverjar eru ástæðurnar? Jú, minnkandi þátttaka gesta á síðurnar og mikil fækkun hjá þeim sem tjá sig.
Sumir kenna sumrinu um, en aðrir þeim mikla fjölda af litlum skipasíðum sem sprottið hafa upp að undanförnu og valda því að áhugahópurinn dreifist meira. Varðandi tjáskipin, þá virðist vera samansemmerki milli þeirra sem skrifa mikið með skipunum, þ.e. ef mikið er skrifað, tjá sig færri.
Hvað mig varðar, er ég ekki að fara í frí, nema þegar svona óvænt gerist eins og í gær er bilun varð í símatengingunni, en slíkt getur maður ekki séð fyrir um. Ég hinsvegar spái alvarlega í að loka fyrir tjáskiptin og þá aðallega vegna þess að aðallega er um einhverjar aðfinnslur að ræða en minna um almenna umræðu um viðkomandi skip eða báta. Réttlátar ábendingar til mín eru auðvitað góðar, en ekki aðfinnslur bara til að vera með aðfinnslu.
Því er ég nú kominn að spurningunni, sem gaman væri að fá viðbrögð við, en það er hvað skal gera? Eitt er þó rétt að hafa í huga, en það er að þeir öfáu sem tjá sig eru oftast undir einu prósenti af gestum síðunnar og því spurning hvort maður á nokkuð að vera að spá í þá? Ég á því allt eins von á að mesta lagi ½ % svari núna eða kannski ekki neinn.
Með bestu kveðjum
Emil Páll
09.06.2010 09:37
Líf GK 67

7463. Líf GK 67, í Sandgerði © mynd Emil Páll, 3. júní 2010
09.06.2010 09:34
Sægreifi og Jói í Seli mætast

7429. Jói í Seli GK 359 og 7287, Sægreifi GK 444, mætast í Sandgerði © mynd Emil Páll, 3. júní 2010
09.06.2010 09:31
Jói í Seli GK 359

7429. Jói í Seli GK 359, í Sandgerði © mynd Emil Páll, 3. júní 2010
09.06.2010 09:29
Sunna Líf KE 7

1523. Sunna Líf KE 7, í Sandgerði © mynd Emil Páll, 3. júní 2010
08.06.2010 12:18
Óvænt frí - komið í lag
Vegna bilunar er ljóst að síðan mun nú liggja niðri um einhvern tíma, en vonandi ekki mjög lengi.
Kær kveðja Emil Páll
Jæja þá er talvan eða öllu heldur netasambandið komið aftur í lag, en bilunin stóð yfir í sólarhring og allir sérfræðingar þess fyrirtækis sem selur mér aðgang að netinu bentu á annað en var í raun að og síðan þegar í ljós kom að það var ráterinn sem var bilaður, var málinu strax kippt í lag og nú get ég haldið áfram og mun gera.
08.06.2010 09:52
Fagravík GK 161

7194. Fagravík GK 161, í Sandgerði © mynd Emil Páll, 3. júní 2010
08.06.2010 09:35
Faxi GK 84

7426. Faxi GK 84, í Sandgerði © mynd Emil Páll, 3. júní 2010

