Færslur: 2010 Júní
15.06.2010 19:47
Guðrún SH 190

6867. Guðrún SH 190, í Stykkishólmi © mynd Jón Páll 2010
15.06.2010 16:38
Hafnarstarfsmenn

Hluti starfsmanna Reykjaneshafnar f.v. Karl Einar Óskarsson (KEÓ), Einar Bjarnason og sá sem stendur er Aðalsteinn Björnsson © mynd Emil Páll, 15. júní 2010
15.06.2010 16:35
Vilborg ST 100

1262, Vilborg ST 100 í Reykjavíkurhöfn © mynd Sigurður Bergþórsson
15.06.2010 16:30
Björgunarbáturinn LIV
Færeyski björgunarbáturinn LIV sem kom hingað til lands fyrir sjómannadag og hafði viðkomu í Vestmannaeyjum, Grindavík, Grófinni Keflavík, Akranesi og Reykjavík var síðan fluttur til baka með flutningaskipi. Hér sjáum við mynd af bátnum í Reykjavíkurhöfn, en áður höfðu birts myndir sem ég tók af honum í Grófinni og eins myndir sem Laugi tók af honum í Reykjavíkurhöfn á sjómannadaginn
Liv í Reykjavíkurhöfn á sjómannadaginn © mynd Sigurður Bergþórsson í júní 2010
15.06.2010 15:53
Áður virðulegt fiskiskip - nú járna- og ruslahrúga
Skipið var löngum virðulegt fiskiskip, lengi vestur á fjörðum, síðar hér á suðvesturhorni landsins, en í dag er það hörmuleg sjón. Hér er verið að tala um niðurrif Valbergs II VE 105 í Njarðvikurslipp, en ef skipið er skoðað frá öðru borðinu er lítið sem mynnir á skip, en á hinu borðinu má sjá svona eftirstöðvar af skipsskrokki. Er ég leit við í dag voru starfsmenn Hringrásar á fullu að tæta skipið niður og gera úr því rusla- og/eða járnahrúgu, eins og sést á þessum myndum.
Hér mynnir fátt á skip, nema þá helst spilið sem enn stendur á sínum stað
Fremst var einu sinni stefnið og þá sést inn í skipið, sem einu sinni var
Stefnið með gamla flokksbókstaf Framsóknarflokksins ,,B" híft upp á vörubíl. Vilji menn sjá nánar hvað átt er við um Framsóknarflokkinn, vísa ég á MOLA sem eru með tengil hér á síðunni
Kannski má segja að héðan frá, mynni eitthvað á skip © myndir Emil Páll. 15. júní 2010
15.06.2010 13:28
Loðnuskip að veiðum út af Papós

Loðnuskip að veiðum út af Papós © mynd Hilmar Bragason
15.06.2010 13:24
Gísli Árni RE 375

1002, Gísli Árni RE 375, á Hornarfirði © mynd Hilmar Bragason
15.06.2010 12:33
Thomas Nygaard VN 690

Thomas Nygaard VN 690, frá Vestmanna í Færeyjum © mynd Föroysk Skipsportalurin
15.06.2010 12:28
Ice Bird með rækju til Hólmavíkur
Ice Bird á Hólmavík í morgun og einnig sést 2106 Addi Afi GK 97 © myndir Jón Halldórsson, holmavik.123.is 15. júní 2010
15.06.2010 00:00
Neisti ÍS 218 / Ásborg BA 84 / Tjaldur II ÞH 294

1109. Neisti ÍS 218 © mynd Snorrason

1109. Ásborg BA 84 © mynd Hafþór Hreiðarsson

1109. Ásborg BA 84 © mynd Jón Páll

1109. Tjaldur II ÞH 294 © mynd Hafþór Hreiðarsson 2010

1109. Tjaldur II ÞH 294 © mynd Svafar Gestsson 2. maí 2010

1109. Tjaldur II ÞH 294 © mynd Hafþór Hreiðarsson 2010

1109. Tjaldur II ÞH 294 © mynd Hafþór Hreiðarsson 2010
Smíðanúmer 21 hjá Trésmiðju Austurlands hf., Fáskrúðsfirði 1970, eftir teikningu Egils Þorfinnssonar. Þessi bátur og sá nr. 1564 eru minnstu bátarnir sem smíðaðir hafa verið eftir teikningu Egils. Afskráður sem fiskiskip 2007.
Nöfn: Neisti RE 58, Neisti ÍS 218, Ásborg BA 84 og núverandi nafn: Tjaldur II ÞH 294
14.06.2010 22:29
Geir ÞH 150




2408. Geir ÞH 150, kemur til Neskaupstaðar í kvöld © myndir Bjarni G, 14. júní 2010
14.06.2010 21:49
Aries Gril og Northern Truck

Aries Gril

Northern Truck © myndir Einar Örn Einarsson
14.06.2010 21:40
Tina ex Dettifoss

Tina ex Dettifoss © mynd Einar Örn Einarsson, 22. október 2009
14.06.2010 21:18
Hrafn GK 111 á Neskaupstað - Og þegar björgunarskipið Hafbjörg náði í veikann mann í hann

1628. Hrafn GK 111, á Neskaupstað í kvöld

Olíubíll kemur að Hrafni GK 111 © myndir Bjarni G., 14. júní 2010
- o -

Komið að togaranum úti á rúmsjó

1628. Hrafn GK 111 úti á rúmsjó í myrkri

Björgunarskipið Hafbjörg kemur að Hrafni GK 111 © myndir Bjarni G, 7. jan. 2008
14.06.2010 19:50
Þórhalla HF 144 og Seefalke á Stakksfirði




6771. Þórhalla HF 144, kemur inn Stakksfjörðinn á leið til löndunar í Keflavík rétt fyrir hádegi í morgun og þýska skipið Seefalker á Stakksfirði © myndir Emil Páll, 14. júní 2010
