Færslur: 2012 Apríl
12.04.2012 14:00
Nýleg tóg var bundið við tundurduflið sem kom í veiðarfæri Sóleyjar Sigurjóns
Staðsetning duflsins sem kom í veiðarfæri togarans Sóleyjar Sigurjóns kom sprengjusérfræðingum Landhelgisgæslunnar nokkuð á óvart þegar tilkynningin barst Landhelgisgæslunni í gærmorgun. Vitað er að tundurdufl voru lögð norðar á hafsvæðinu eða nær Garðskaga en ekki á þessu svæði þar sem Sóley Sigurjóns var að veiðum. Þegar farið var með þyrlu að skipinu staðfestist að um væri að ræða þýskt tundurdufl frá seinni heimstyrjöldinni. Þá var skipinu gert að halda tafarlaust til hafnar til að hægt yrði að gera duflið óvirkt.
Þegar sprengjusérfræðingar komu um borð í Sóleyju Sigurjóns bentu skipverjar þeim á að nýlegt tóg væri í auga á duflinu, sjá mynd. Virðist vera sem að annað skip hafi fengið duflið í veiðarfærin en síðan látið það falla að nýju í hafið. Er það mjög ámælisvert því með því eru viðkomandi að stofna sínu eigin öryggi og annarra í hættu. Mörg dæmi eru um það erlendis frá að alvarleg slys hafi orðið þegar hreyft hefur verið við slíkum duflum áður en þau eru meðhöndluð rétt, því hver hreyfing getur komið á stað öflugri sprengingu.

Duflinu eytt. Smellið á mynd til að sjá myndskeið.
Landhelgisgæslan gerir allt sem mögulegt er til að koma til móts við sjómenn sem fá tundurdufl í veiðarfærin og hraða sem mest þeim tíma sem fer í aðgerðina. Skipverjar Sóleyjar Sigurjóns sýndu hárrétt viðbrögð með því að hafa samband. Þúsundir dufla finnast ennþá innan íslenska hafsvæðisins og eru þau í góðu ásigkomulagi þrátt fyrir langa legu í sjó, en sprengiefnið verður viðkvæmara með aldrinum. Er það á ábyrgð allra að tilkynna um slík dufl og auka um leið öryggi þeirra sem fara um svæðið.
12.04.2012 13:00
Kjelsvik F-89-BD
Kjelsvik F-89-BD © mynd frode adolfsen, 5. ágúst 2003
12.04.2012 12:00
Kings Bay
Kings Bay © mynd shipspotting, frode adolfsen, 25. sept. 2007
12.04.2012 11:00
Kato M-192-SÖ
Kato M-192-SÖ © mynd shipspotting, frode adolfsen, 1. apríl 2012
12.04.2012 10:00
Isak L. GR-7-248
Isak L. GR 7-248 © mynd shipspotting, frode adolfsen, 30. júní 2003
12.04.2012 09:00
Heidi Jette HG 137
Heidi Jette HG 137 © mynd shipspotting, frode adolfsen, 30. júní 2001
12.04.2012 08:30
Sómi
© mynd Gylfi Scheving, 2012
12.04.2012 00:00
Svíþjóðar-syrpa frá Gylfa Scheving
Björgunarbátur
Björgunarbátur
Clipper - sjóstangaveiðibátur
Clipper, sjóstangaveiðibátur
Falkskar
Frá Gautaborg
Frá Gautaborg
Sjóstangaveiðibátur
Þorskar í sjávarsafni í Gautaborg © myndir Gylfi Scheving, 2012
11.04.2012 23:00
H. Bossen HG 220
H. Bossen HG 220 © mynd shipspotting, frode adolfsen, 30. júní 1996
11.04.2012 22:30
Frá Stokkseyri
Frá Stokkseyri © mynd úr safni Guðmundar Sigurðssonar
11.04.2012 22:00
Gitte Johnny HG 299
Gitte Johnny HG 299 © mynd shipspotting, frode adolfsen, 30. júní 2003
11.04.2012 21:00
Gangstad Jr.
Gangstad Jr. © mynd shipspotting, frode adolfsen, 30. júní 2005
11.04.2012 20:21
Múlaberg SI-22 byrjað aftur á rækju
Rækjan fer í rækjuvinnslu Ramma hf á Siglufirði. Fjögur skip eru á rækjuveiðum fyrir verksmiðjuna.
Sigurborg SH-12 og Múlaberg SI-22
Texti og myndir: GJS
11.04.2012 20:14
Ísbjörn ÍS á leið í Smuguna og mun hugsanlega landa í Noregi
Rækjutogarinn Ísbjörn ÍS 304, er á leið í Smuguna, en nokkur ár eru síðan ísfirskur togari fór svo langt norður á veiðar. Togarinn fór í reynslutúr á dögunum sem gekk vel, og því var ákveðið að halda fljótt á sjó að nýju. Að sögn Jóns Guðbjartssonar stjórnarformanns rækjuvinnslunnar Kampa og eiganda útgerðarfélagsins Birnis - sem eiga togarann - lá beinast við að halda í Smuguna eftir prufutúrinn.
"Þessi bátur er svo stór, voldugur og veiðir mikið, auk þess sem hann er dýr í rekstri, að Íslandsmiðin duga honum ekki til veiða. Við sendum hann þarna norður til að geta fengið meiri tekjur fyrir hvern dag," segir Jón, en einungis tvö íslensk skip hafi burði til að fara í Smuguna, Ísbjörninn og Brimnes. Leiðin í Smuguna tekur 5 sólarhringa og því þarf að frysta vöruna um borð.
"Það getur vel verið að okkur hugnist einhvern tímann að senda Ísbjörninn til Kanada og veiða þar. Það er möguleiki sem við erum að skoða," segir Jón, en áætlaður kostnaður við að senda skip af þessari stærðargráðu, hvort heldur til Kanada eða í Smuguna er um 8 milljónir króna. "Því er ljóst að ef við fáum ekkert á hinum endanum, erum við í vonum málum," segir Jón léttur í bragði.
Aðspurður um nýlegt kvótafrumvarp sem lagt hefur verið fram til samþykktar á Alþingi, er Jón berorður. "Það er alveg ljóst að ef þetta frumvarp verður samþykkt, er úti um alla rækjuútgerð á Vestfjörðum," segir Jón sem hefur litla trú þeirri hugmyndavinnu sem liggur að baki frumvarpinu.
Ekki er ákveðið hvenær Ísbjörn ÍS 304 snýr til baka, en að sögn Jóns er möguleiki á að hann muni landa í Noregi og halda aftur í Smuguna þaðan. Ísafjörður sé hinsvegar heimahöfn skipsins og helst vilji hann að landað sé þar.
11.04.2012 20:08
Frantsen Junior T-25-I
Frantsen Junior T-25-I © mynd shipspotting, frode adolfsen, 30. júní 2002

