Það eru örugglega fáir bátar ef þó nokkur í íslenska flotanum sem borið hafa fleiri skráningar en þessi bátur. Allt um það hér fyrir neðan, þó ég birti aðeins myndir af þremur nafnana.
259. Jarl KE 31, fyrir yfirbyggingu © mynd Emil Páll

259. Jarl KE 31, eftir yfirbyggingu © mynd Emil Páll

259. Jarl KE 31 © mynd Emil Páll

259. Margrét HF 20, í Þorlákshöfn © mynd Emil Páll í okt. 2009
Smíðanr. 165 hjá A/S Framnes Mek. Verksted, Sandefjord, Noregi 1964. Lengdur 1966. Yfirbyggður við bryggju í Keflavík frá sept. 1982 til feb. 1983 af Vélsmiðju Sverre Steingrímsen hf. í Keflavík.
Báturinn hefur borið 14 skráningar og 35 eigandabreytingar.
Nöfn: Súlan EA 300, Súlan EA 310, Stígandi ÓF 30, Stígandi RE 307, Jarl KE 31, Valdimar Sveinsson VE 22, Beggi á Tóftum VE 28, Beggi á Tóftum SF 222, Bervík SH 143, Klængur ÁR 20, Margrét ÁR 20, Margrét SK 20, Margrét HF 20 og núverandi nafn: Jökull ÞH 259