Færslur: 2010 Febrúar
11.02.2010 08:56
Minnisvarði um 11 breska sjómenn sem urðu úti við Mávsvatn

© mynd Svafar Gestsson
11.02.2010 00:00
Paimpol í Frakklandi - Fyrri hluti
Paimpol í Frakklandi er lítið sjávarþorp á norðanverðum Bretagne þaðan komu margar af frönsku gólettunum sem stunduðu þorskveiðar við Íslandsstrendur frá árunum 1852-1935. Á þessu tímabili fórust um 4000 sjómenn og um 120 gólettur hurfu eða strönduðu við Íslandsstrendur frá þessu þorpi og nágrannabæjum.
Einnig voru gerðar út gólettur frá Dunkerque, Gravelines og nálægum þorpum og gengu þeir undir nafninu ,, flandrarar" hér á landi.
Ég ásamt konu minni heimsóttum þetta þorp Paimpol árið 2000 og verð að segja að þvílíkar móttökur sem við fengum gleymast aldrei. Þegar að það kom upp úr kafinu að við værum íslendingar komnir til að skoða söfn og annað sem tengdist íslandsveiðunum þá báru Paimpólar okkur á höndum sér.
Strax var fundinn enskumælandi maður sem sýndi okkur ótal söfn sem sýna muni frá þessu tímabili ásamt því að heimsækja ótal kyrkjugarða sem eru fullir af mynningaskjöldum um horfna ástvini.
Ég skora á alla að lesa bókina eftir Elínu Pálmadóttir Fransí Biskví sem kom fyrst út árið 1987 en var svo endurútgefin 2009 aukin og endurbætt og lýsir hún lífi þessara sjómanna um borð, undirbúningi þessara sjóferða og lífinu í þorpunum ásamt mörgu öðru sem er fróðlegt að lesa.
Þess má geta að Grundarfjörður er vinabær Paimpol og Gravelines er vinabær Fáskrúðsfjarðar. 
Bátar á fjöru
Bátar á flóði
Gamla Íslandshöfnin
Íslandshöfnin Paimpol
Íslandshöfnin Paimpol




Munur flóðs og fjöru í Paimpol © myndir Svafar Gestsson 2000
10.02.2010 20:16
Þrír togarar: Þorleifur Jónsson SI 80 - Barði NK 120 - Karlsefni RE 24
Á næstu vikum munum við skoða fjölmarga skuttogara sem gerðir hafa verið út frá Íslandi, en Þór Jónsson hefur sent mikinn fjölda togaramynda sem hér verða birtar á næstunni. Hefjum við leikinn með birtingu þriggja mynda
1121. Þorleifur Jónsson SI 80
1137. Barði NK 120
1253. Karlsefni RE 24 © myndir Þór Jónsson
10.02.2010 17:15
Loðmundarfjörður

Bryggjan í Loðmundarfirði

Báturinn Jói félagi sem gekk milli Seyðisfjarðar og Loðmundarfjarðar

Rústir Seljamýrar sem varðskipsmenn skutu á © myndir Svafar Gestsson
10.02.2010 14:33
Víkingur AK 100



220. Víkingur AK 100 © myndir Svafar Gestsson
10.02.2010 12:04
Skondið: Þurfti að sigla frá Sandgerði til Njarðvíkur, til að fara til baka landleiðina
Ástæðan fyrir þessu eru tvær. Báturinn er of breiður fyrir brautina í Sandgerði og síðan hefur hrunið á Íslandi valdið því að nú eru engir kranar á Suðurnesjum til að lyfta bát eins og þessum á land.
Mun Kiddi Lár því verða tekinn upp um leið og skemmtibáturinn Regína De la Mar sem er í Njarðvikurslipp til viðgerðar verður sjósett, en sá bátur er nú á vagninum.

2704. Kiddi Lár GK 501, bíður í Njarðvíkurhöfn eftir því að komast landleiðina til Sandgerðis

Vagninn góði og fullkomni, með skemmtibátinn 7660. Regína De la Mar í Njarðvikurslipp i morgun © myndir Emil Páll 10. febrúar 2010
10.02.2010 12:01
Sæll...........

Í Njarðvík í morgun © mynd Emil Páll 10. febrúar 2010
10.02.2010 11:08
Grétar Mar með tilraunaveiðar á Beitukóngi

Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og útgerðarmaður á Sölku GK 79, er nú að fara að hefja tilraunarveiðar á beitukóngi. Hefur hann raunar prufað tvisvar og í annað skiptið var beitukóngurinn matreiddur á Sægreifanum í Reykjavík við góða lukku gesta. Að sögn Grétars Mar var beitukóngurinn soðinn og síðan borðaður með pinnum úr skelinni.
Munu tilraunaveiðar þessar fara fram í buktinni.

Gildurnar sem Grétar Mar mun nota, eru komnar að bátnum í Sandgerðishöfn © myndir Emil Páll 9. febrúar 2010
10.02.2010 10:59
Baráttumaðurinn Ásmundur látinn

Fréttir | 10. febrúar 2010 | 10:12:57





