Færslur: 2014 Mars
08.03.2014 14:20
Hafborg KE 54
![]() |
1032. Hafborg KE 54, í Keflavíkurhöfn á sjómannadag © mynd Emil Páll
08.03.2014 12:24
Bergþór KE 5
![]() |
824. Bergþór KE 5, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll.
08.03.2014 11:17
Sæbjörg KE 93
|
630. Sæbjörg KE 93, í Dráttarbraut Keflavíkur © mynd Emil Páll |
08.03.2014 10:27
Happasæll KE 94 - eikarbáturinn
![]() |
475. Happasæll KE 94, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll.
08.03.2014 09:28
Ársæll EA 74, í Keflavíkurhöfn
![]() |
403. Ársæll EA 74, í höfn í Keflavík © mynd Emil Páll, 1990
08.03.2014 08:30
Kári GK 146 - nú Aníta KE 399
![]() |
399. Kári GK 146, í Dráttarbraut Keflavíkur © mynd Emil Páll
08.03.2014 08:00
Oddrún RE 126 / Þorsteinn KE 10
![]() |
||
|
|
08.03.2014 07:00
Ljósfari GK 184 ex Víðir II GK 275 - nú Portland VE 97
![]() |
219. Ljósfari GK 184 © mynd Emil Páll
07.03.2014 21:00
Tvö strönd á nýlegu skipi með stuttu millibili
Í dag eru 39 ár frá því að Björgunarsveitin Garðar á Húsavík bjargaði áhöfn M/S Hvassafells sem strandaði í Flatey á Skjálfanda. Af því tilfefni endurbirti ég nú frásögn af því sem ég birti áður 11.06.2011
Hér birti ég myndir af Hvassafellinu, svo og myndir af úrklippum sem Tómas Knútsson safnaði af seinni strandinu sem fjallað verður um hér, en þá var hann um borð og rauna líka í fyrra strandinu. Skip þetta var smíðað 1971 og var því mjög nýlegt og samkvæmt punktum Tómasar fór það þann 19. desember 1974 í ferð sem varð ansi löngu og snúin. Stefnan var tekin á Kaupmannahöfn og þaðan til Tallinn í Eistlandi þar sem losa átti 45.900 x 50kg poka af loðnumjöli.
Skipið kom á ytri höfnina í Tallinn 20. desember, en það var ekki fyrr en miðnætti á sjálfum áramótunum sem skipið var loksins tekið upp að bryggju og var það mjög tilkomin sjón að sigla inn undir rakettuskothríðinni og lúðraþyt skipanna í höfninni. Veran varð þó stutt því strax daginn eftir var skipið aftur sent út á ytri-höfnina og þar var það í 10 dag. Þá hófst losun sem lauk ekki fyrr en 19. janúar en þá var siglt til Kotka í Finnlandi og á leiðinni strandaði skipið við Orrengrum við Finnlandsstrendur.
Stór og öflugur dráttarbátur með tvær 11000 hestafla vélar tók í skipið, en sverir vírar slitnuðu eins og ekkert og því kom að lítinn hafnsögubátur með 24 hestafla vél og með því að smá toga fram og til baka tókst þeim litla að losa skipið af strandstað. Fór næsta vika í að þétta krókinn, áður en siglt var með vélarafli til Kiel í Þýskalandi og þaðan losnaði skipið ekki fyrr en í febrúar 1975.
Þá var skipið lestað með áburði sem átti að fara til Reyðarfjarðar, Raufarhafnar og Akureyrar, en sökum þess að Brúarfoss var á Raufarhöfn var ákveðið að fara til Húsavíkur í staðinn, en þó var fyrst farið til Akureyrar sem var heimahöfn skipsins.
Þann 7. mars 1975 var haldið af stað með stefnuna á Húsavík, en skipið strandaði við Flatey á Skjálfanda og losnaði þaðan 14. maí og þá fór það aftur til Kiel til viðgerðar og lauk þeirri viðgerð í ágúst 1975. Fór skipið nú til Archangæslk og sótti timbur og sigldi nú heim. Þar með lauk tveggja ára stanslausu úthaldi Tómasar um borð í skipinu, en hann hafði ekki tekið nein frí á þessum tíma.
Nánar má lesa í úrklippunum sem fylgja með, en fyrst sjáum við myndir af skipinu eins og það var fyrir strandið, þá myndir sem Tómas tók sjálfur af skipinu daginn sem það losnaði úr fyrri viðgerðinni í Kiel og svo fleiri myndir og úrklippur úr úrklippubók Tómasar.
Þá má geta þess að eftir því sem ég veit best þá heitir Hvassafellið í dag Joyce.

1200. Hvassafell © mynd úr safni Björns og Tómasar Knútssonar, en í upphafi frá Skipadeild SÍS

1200. Hvassafell © mynd úr Tímanum


1200. Hvassafell, lok fyrri viðgerðarinna í Kiel © mynd Tómas Knútsson, í feb. 1975










Úrklippur úr hinum ýmsu blöðum © úr úrklippubók Tómasar Knútssonar


1200. Hvassafell © myndir í eigu Björns og Tómasar Knútssona, er komu frá Skipadeild SÍS
Tómas J. Knútsson: þetta er vel gert hjá honum Emil Páll Jónsson og hafi hann kærar þakkir fyrir. Þessi tími minn um borð á Hvassafellinu lifir góðu lífi hjá mér enda kallinn ævintýramaður
07.03.2014 20:21
Logn og gott veður á Strandarsvæðinu
![]() |
Logn og gott veður á Strandarsvæðinu © mynd Jón Halldórsson, nonni.123.is 5. mars 2014
07.03.2014 19:41
Einn gamall og lúinn
![]() |
Einn gamall og lúinn © mynd Jón Halldórsson, nonni.123.is 6. mars 2014
07.03.2014 18:59
T-52-K, Noregi
![]() |
T-52-K, Noregi © mynd Jón Páll Jakobsson, 5. mars 2014
07.03.2014 18:19
Polar Amaroq GR 18-49
![]() |
Polar Amaroq GR-18-49 © mynd Faxagengið, faxire9.123.is 4. mars 2014
07.03.2014 17:30
Flottur rauður Týr og Ambassador í sólinni á Akureyri, í dag
![]() |
||
|
|
















