Færslur: 2012 September
05.09.2012 18:15
Ákærður fyrir að sigla drukkinn á trébát fyrrverandi þingmanns
Skipstjórinn er sakaður um að hafa verið drukkinn þegar hann sigldi inni í höfnina en samkvæmt ákæruskjali mældist 0,7 prómíl í blóði skipstjórans sem er rúmlega fimmtugur.
Þegar skiptstjórinn ætlaði að leggjast að bryggjunni sigldi hann skipinu á trébátinn Sölku sem sökk í kjölfarið. Sá bátur var í eigu fyrrverandi þingmanns Frjálslynda flokksins, Grétars Mar Jónssonar, en í viðtali við dv.is um málið á síðasta ári sagði hann: "Það er alltaf sorglegt að sjá skip sökkva. Það er ömurlegt."
05.09.2012 18:00
Víkingur KE 10, uppi á bryggju

2426. Víkingur KE 10, uppi á bryggju í Njarðvík í gærmorgun © mynd Emil Páll, 4. sept. 2012
05.09.2012 17:00
Máni II ÁR 7, kominn aftur á flot

1887. Máni II ÁR 7, í Njarðvíkurhöfn © mynd Emil Páll, 4. sept. 2012
05.09.2012 16:00
Sundhani ST 3, á Drangsnesi

1859. Sundhani ST 3, á Drangsnesi © mynd Árni Þór Baldursson, í Odda, í júlí 2012
05.09.2012 15:30
Ótrúleg sjón - skúta með hjólabúnað
Þessi skúta var að fara framhjá sjóminjasafninu í Reykjavík í dag. Þarna var á ferðinn breskur listamaður sem ætlar að hjóla til Seyðisfjarðar á næsta ári og siglir henni síðan til Bretlands aftur.
Þessa skútu smíðaði hann í Bretlandi. Í dag var verið að prófa hinn frumstæða hjólabúnað sem á skútunni er. Ók Sigurður kafari Stefánsson fram á þessa ótrúlegu sýn og smellti af þessum myndum



Hjólaskútan við Sjóminjasafnið í Reykjavík í dag © myndir
Siggi kafari Stefánsson 5. sept. 2012
05.09.2012 15:00
Sundhani ST 3 og Grímsey ST 2


1859. Sundhani ST 3 og 741. Grímsey ST 2, á Drangsnesi © myndir Árni Þór Baldursson, í Odda, í júlí 2012
05.09.2012 14:00
Askur GK 65


1811. Askur GK 65, í Keflavíkurhöfn í gærmorgun © myndir Emil Páll, 4. sept. 2012
05.09.2012 13:00
Patrekur BA 64 o.fl.

1640. Patrekur BA 64 o.fl. © mynd úr Flota Patreksfjarðar, Sigurður Bergþórsson
05.09.2012 12:10
Helga RE 49 seld Gjögri hf.

2779. Helga RE 49, er það kom nýtt til landsins © mynd Jón Páll Ásgeirsson
Af Facebook:
05.09.2012 12:00
Farsæll GK 162 og Askur GK 65

Grindvísku dragnótabátarnir, 1636. Farsæll GK 162 og 1811. Askur GK 65, í Keflavíkurhöfn í gærmorgun © mynd Emil Páll, 4. sept. 2012
05.09.2012 11:00
Sævar KE 5 og Siggi Bessa SF 97


1587. Sævar KE 5 og 2739. Siggi Bessa SF 97, í Keflavíkurhöfn í gærmorgun © myndir Emil Páll, 4. sept. 2012
05.09.2012 10:26
Guðbjörg ÍS 46

1579. Guðbjörg ÍS 46 © mynd Púki Vestfjörð, Skúli Einarsson
05.09.2012 08:00
Víkingur II ÍS 170

892. Víkingur II ÍS 270 © mynd Púki Vestfjörð
05.09.2012 07:07
Stafnesið í bíóleik í mánuð
Stiller leigir Stafnesið í mánuð

Stafnesið í Grundarfirði. Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson.
Hið 48 ára gamla fjölveiðiskip Stafnes KE 130 leikur stórt hlutverk í kvikmyndinni The Secret Life of Walter Mitty sem Ben Stiller er að gera hér á landi. Leikarinn leigir skipið í heilan mánuð og skipstjórinn Oddur Sæmundsson segir þetta vera ágætis tilbreytingu frá hefðbundum sjómmannsstörfum.
Stiller og hans aðstoðarfólk komu auga á Stafnesið strax í janúar og komu þá að máli við Odd til að fá afnot af skipinu. Oddur hafði gert sér vonir um að geta málað skipið í voru og gera það fínt en fólkið frá Hollywood bað hann um að fresta öllum slíkum framkvæmdum. "Þeir eru búnir að gera bátinn alveg ægilega ljótan," segir Oddur í samtali við fréttastofu.
Allar breytingar sem gerðar voru á bátnum verða hins vegar lagfærðar og Oddur hrósar tökuliðinu fyrir mikla fagmennsku. "Þeir tóku myndir af öllu og þessu verður öllu komið í upprunalegt horf." Oddur segist ekki hafa verið tregur til þegar Stiller falaðist eftir bátnum og segist fá ágætan pening fyrir afnotin. "Við erum náttúrlega ekkert að veiða á meðan og þetta slítur náttúrlega vertíðina aðeins í sundur. Þetta er hins vegar bara verkefni sem við erum bundnir við," segir Oddur en Stafnesið tók meðal annars þátt í umfangsmiklum tökum í Grundarfirði um helgina.
Oddur hefur hitt Ben Stiller og segir leikarann vera skemmtilegan náunga, ekki fari fyrir neinum stjörnustælum og hann virðist vita upp á hár hvað hann sé að gera. "Mér finnst mjög gaman að taka þátt í þessu, stundum er mikið að gera en svo þarf maður að bíða þess á milli," segir Oddur en leikarinn birti í dag mynd af íslenskum þríburum á twitter-síðu sinni sem hann segir að leiki í myndinni
Stafnesið leikur reyndar grænlenskt skip í myndinni sem gert er út frá Nuuk. Oddur og hans menn var gert að skrifa undir stíft trúnaðarsamkomulag og því má hann ekki ræða tökurnar né í hvers konar atriðum báturinn hefur verið. Stiller verður með Stafnesið á leigu til 28.september og þegar kvikmyndaverkefninu lýkur heldur skipið á túnfiskveiðar. "Ísland fékk 25 tonn og leyfi til að senda eitt skip á veiðar og við vorum dregnir út," segir Oddur.

