Færslur: 2014 Ágúst
30.08.2014 09:10
Skipstjórar þessara báta, Hlödda VE 98 og Magnúsar HU 23, eru feðgar
![]() |
2381. Hlöddi VE 98 og 2813. Magnús HU 23, í Keflavíkurhöfní gær - skipstjórar bátanna eru feðgar © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2014
AF FACEBOOK:
Þorgrímur Ómar Tavsen Ef þú hefðir birt svona mynd af okkur pabba fyrir nokkrum árum,þá spruttu alltaf upp nokkrir 2 flokks íbúar þessa lands sem sögðu að annar hefði fiskað fyrir hinn.
30.08.2014 08:09
Árni Friðriksson RE 100, nýr í Reykjavík
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
1055. Árni Friðriksson RE 100 - nýr, í Reykjavíkurhöfn © myndir Emil Páll, 11. sept. 1967
30.08.2014 07:08
Hreggi AK 85, kemur inn til Keflavíkur, í gærkvöldi
![]() |
1873. Hreggi AK 85, að koma inn til Keflavíkur, í gærkvöldi © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2014
30.08.2014 06:00
Löndunarbið í Keflavík, í gærkvöldi: Guðbjörg Kristín KÓ 6, Máni II ÁR 7 o.fl.
![]() |
1765. Guðbjörg Kristín KÓ 6, 1887, Máni II ÁR 7 o.fl. í löndunarbið í Keflavík í gærkvöldi - mynd Emil Páll, rétt fyrir kl. 22 í gærkvöldi, 29. ágúst 2014 |
29.08.2014 22:35
Mokveiði í dag: A.m.k. þrír bátar, Siggi Bessa, Andey og Máni II með meira en 12 tonn hver
Fljót kom upp löndunarbið og biðu a.m.k. fimm bátar eftir að komast í löndunarpláss þegar ég yfirgaf höfnina núna áðan. Í gær og í fyrradag voru líka svona góð aflabrögð og voru dæmi um að verið væri að landa til kl. 3.30 í fyrrinótt.
Tók ég þessar myndir í kvöld og á morgun koma fleiri myndir.



2739. Siggi Bessa SF 97, í Keflavíkurhöfn í kvöld

2405. Andey GK 66, kemur inn til Keflavíkur í kvöld

1887. Máni II ÁR 7, bíður eftir að komast undir löndunarkrana í kvöld
© myndir Emil Páll, 29. ágúst 2014
29.08.2014 22:01
Sólplast: Vísir SH 77, í sjó á ný

1926. Vísir SH 77, tilbúinn fyrir Gullvagninn, við aðsetur Sólplasts, í morgun

Á leið út á Strandgötuna í Sandgerði, frá athafnarsvæði Sólplasts






Á leið að upptökubrautinni við Sandgerðishöfn






Báturinn kominn á flot að nýju



1926. Vísir SH 77, í Sandgerðishöfn, í morgun

Gullvagninn, laus og liðugur
I Sandgerði í morgun © myndir Emil Páll, 29. ágúst 2014
29.08.2014 20:21
Íslensk skúta á Siglufirði


Íslensk skúta, á Siglufirði © myndir Hreiðar Jóhannsson, 27. ágúst 2014
29.08.2014 19:32
Háseti féll útbyrðis og dróst með voðinni
Lögreglan á Suðurnesjum segir að mannbjörg hafi orðið í vikunni þegar háseti á Arnþóri GK 20 féll útbyrðis. Hann var við vinnu aftan til á skipinu þegar hann flækti sig og dróst útbyrðis með voðinni. Maðurinn náði að komast úr sjóstakki, buxum og stígvélum, þótt hann sæti fastur í voðinni, en gat losað sig úr henni eftir það.
Siglt var með hann rakleiðis í land og samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurnesjum ætlaði hann að fara á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til skoðunar, að því er segir í tilkynningu.
Þar kemur einnig fram, að annað óhapp á sjó hafi orðið í vikunni þegar maður var að blóðga löngu um borð í Tjaldanesi GK 525. Langan var sprelllifandi og þegar hann tók hana upp, snéri hún snöggt upp á sig með þeim afleiðingum að maðurinn missti allan mátt í þumli vinstri handar um stund. Hann fór á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, þar sem í ljós kom að þumalfingurinn var ekki brotinn en mjög bólginn.
29.08.2014 19:20
Hellodden N-173-MS frá Lofoten, að koma inn Batfjord, í Noregi

Hellodden N-173-MS frá Lofoten, að koma inn Batfjord, í Noregi © mynd Jón Páll Jakobsson, 25. ágúst 2014
29.08.2014 18:19
Hamravík ST 79 og Sæbyr ST 25, á Hólmavík

6599. Hamravík ST 79 og 6625. Sæbyr ST 25, á Hólmavík © mynd Jón Halldórsson, nonni.123.is 27. ágúst 2014
29.08.2014 17:31
Skoðun ritstjóra: Þvílík skömm íslendinga gagnvart Nærabergi KG 14, í Reykjavíkurhöfn
Nú held ég að tími sé kominn til að reka einhverja stjórnmálamenn eða ráðuneytismenn fyrir framkomuna gagnvart Nærabergi KG 14, frá Færeyjum, það sem það liggur í Reykjavíkurhöfn og kom inn vegna bilunar, en fær ekki olíu.
Þeir sem tóku þessa ákvörðun hvort sem það var Alþingi eða ráðuneytið, á að nafngreina og gefa síðan út leyfi til að grýta þá niður. Svona framkomu gagnvart frændum okkar, Færeyingum, sem stóðu sig vel gagnvart okkur í hruninu og oft í öðrum tilfellum, er ekki hægt að líða. Þetta er Íslendingum til ævarandi skammar.
![]() |
|
AF FACEBOOK: Emil Páll Jónsson Ný frétt: Færeyski togarinn Næraberg, sem legið hefur við bryggju við Vogabakka í Reykjavík í morgun, mun fá olíu og vistir eftir því sem þörf krefur fyrir heimferð. Þetta segir Jóhann Guðmundsson, skrifstofustjóri í atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu, samkvæmt því er kemur nú fram á mbl.is |
29.08.2014 17:18
Valdimar GK 195, á Siglufirði



2354. Valdimar GK 195, á Siglufirði © myndir Hreiðar Jóhannsson, 26. ágúst 2014
29.08.2014 16:20
Hrafn Sveinbjarnarson GK 255, í Keflavíkurhöfn

1028. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255, í Keflavíkurhöfn © mynd Emil Páll, 1967
29.08.2014 15:16
Vallombrosa, frá Italíu ex 1015. Haförninn, frá Siglufirði, í Reykjavík

Vallombrosa, frá Italíu ex 1015. Haförninn, frá Siglufirði, í Reykjavík © mynd Emil Páll, 1971
29.08.2014 14:15
Ársæll Sigurðsson GK 320 og Ásur frá Færeyjum


1014. Ársæll Sigurðsson GK 320 og í baksýn er Ásur frá Færeyjum (sem sökk 1967) © myndir Emil Páll, 1966







Maðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. mbl.is/?Helgi Bjarnason 
