Færslur: 2014 Ágúst
14.08.2014 06:44
Makrílbátum fjölgar í nágrenni Keflavíkur - en makríllinn dyttóttur

Kl. 06.42 í dag 14. ágúst 2014
14.08.2014 06:00
Hvalskurður, í Hvalfirði

Hvalskurður í Hvalfirði © mynd Sólarfilma
13.08.2014 21:00
17 úr bátaflota Haraldar Böðvarssonar & Co
Hér fyrir neðan birtast 24 myndir sem ég tók sl. föstudag í Víkinni við Grandagarð í Reykjavík, er Sveinn Sturlaugsson bauð mér í heimsókn þangað. Sveinn fékk Grím Karlsson, á sínum tíma, til að smíða fyrir sig líkön af 17 bátum úr mun stærri bátaflota Haraldar Böðvarssonar & co. Að sögn Gríms var það þannig að um leið og Grímur lauk við smíði á einu líkani, gerði Sveinn upp verkið og pantaði annan bát frá Grími. Líkön þessi hafa verið til sýnis í Víkinni frá því um sumarið 2012 og eru í eigu Sveins.
Sveinn er barnabarn Haraldar Böðvarssonar og Ingunnar Sveinsdóttur og í dag gerir hann út dekkaðann plastbát sem heitir eftir ömmu hans þ.e. Ingunn Sveinsdóttir AK 91. Sagði Sveinn mér að amma hans hefði haldið mjög mikið upp á hann, en hann er skírður í höfuðið á langafa sínum Sveini Guðmundssyni, hreppstjóra, föður Ingunnar og á einni myndanna sem hér koma heldur hann einmitt á báti sem bar nafn langafa hans Sveinn Guðmundsson AK 70.
Þar sem bátarnir eru sumir hverjir þannig staðsettir á safninu að erfitt er að ná góðum myndum af þeim öllum, einum og sér svo þeir sjáist vel, tók ég 24 myndir og eru 22 þeirra af þessum 17 bátum og því birtast nokkrar myndir af sömu bátunum, en frá mismunandi sjónarhornum. Hinar tvær sýna annarsvegar þær upplýsingar sem safnið setti upp um sýningu þessa og svo er ein mynd af Sveini Sturlaugssyni, þar sem hann heldur á bátnum sem ber nafn langafa hans, Sveini Guðmundssyni.
Fyrir neðan myndirnar birtist saga hvers báts fyrir sig í stuttu máli, þ.e. þegar ég hef birt þær allar 24. Raðast þær eftir stafrófsröð og kemur skipaskárnúmer með þeim bátum sem voru á skipaskrá 1964, er skipaskrárnúmer voru tekin í notkun.

Þetta er mynd af því sem þarna er í boði á Víkinni, Grandagarði Reykjavík. Tvennt er þó þarna sem þarf að leiðrétta eða taka öðruvísi til orða.
1. Þar sem línan hefst með orðunum ,,Sumarið 2012" ef villandi upplýsingar því líkönin hafa verið til sýnis frá sumrinu 2012 og eru enn þar til sýnis.
2. Sagt er að fyrirtækið hafi verið stofnað 1915, en á að vera 1906.

Sveinn Sturlaugsson, sýnir okkur bátinn sem ber nafn langafa hans,
815. Sveinn Guðmundsson, AK 70

120. Höfrungur II AK 150

191. Skírnir AK 12, 766. Skírnir AK 94, 84. Haraldur AK 10 og 878. Ver AK 97

873. Ver AK 97, 736. Reynir AK 98 og 120. Höfrungur II AK 150

873. Ver AK 97, 736. Reynir AK 98 og 120. Höfrungur II AK 150

373. Ásbjörn AK 90, 331. Bjarni Jóhannesson AK 130 og 637. Keilir AK 92

Höfrungur AK 98, Víkingur AK 80, 815. Sveinn Guðmundsson AK 70, 331. Bjarni Jóhannesson AK 130 og 637. Keilir AK 92

Böðvar AK 33 og 249. Höfrungur III AK 250

Höfrungur AK 98, Víkingur AK 80, 815. Sveinn Guðmundsson AK 70, 373. Ásbjörg AK 90, 331. Bjarni Jóhannesson AK 130 og 637. Keilir AK 92

191. Skírnir AK 12 og 84. Haraldur AK 10

191. Skírnir AK 12, 766. Skírnir AK 94, 84. Haraldur AK 10 og 878. Ver AK 97

191. Skírnir AK 12, 766. Skírnir AK 94, 84. Haraldur AK 10 og 878. Ver AK 97

873. Ver AK 97, 736. Reynir AK 98 og 120. Höfrungur II AK 150

381. Egill Skallagrímsson AK 73,Böðvar AK 33 og 249. Höfrungur III AK 250

637. Keilir AK 92, 331. Bjarni Jóhannesson AK 130, 373. Ásbjörn AK 90 og 815. Sveinn Guðmundsson AK 70

597. Höfrungur AK 91

836. Reynir AK 98

766. Skírnir AK 94 og 878. Ver AK 97

Höfrungur AK 98, Víkingur AK 80, 815. Sveinn Guðmundsson AK 70, 331. Bjarni Jóhannesson AK 130 og 637. Keilir AK 92

383. Ásbjörn AK 90, 331. Bjarni Jóhannesson AK 130 og 637. Keilir AK 92

Höfrungur AK 98, Víkingur AK 80, 815. Sveinn Guðmundsson AK 70, 373. Ásbjörn AK 90, 331. Bjarni Jóhannesson AK 130 og 637. Keilir AK 92

873. Ver AK 97

873. Ver AK 97, 836. Reynir AK 98 og 120. Höfrungur II AK 150
© myndir og texti, Emil Páll, 8. ágúst 2014
Hér kemur saga hvers báts fyrir sig í stuttu máli
373. Ásbjörn AK 90
Eik, á Ísafirði 1943.
Talinn ónýtur og tekinn af skrá 11. des. 1979
Nöfn: Ásbjörn MB 90, Ásbjörn AK 90, Dreki RE 134, Þórveig GK 222 og Trausti ÁR 71
331. Bjarni Jóhannesson AK 130
Eik. Danmörku 1947.
Eldur kom upp í bátnum er hann var á veiðum á Selvogsbanka 25. maí 1975. Áhöfnin komst í gúmmíbát og siðan bjargaði áhöfnin á Jóhannesi Gunnar GK 268 áhöfninni.
Nöfn: Bjarni Jóhannesson AK 130 og Ásgeir Magnússon II GK 59
Böðvar AK 33
Eik í Svíþjóð 1947.
Strandaði undar Beruvík á Snæfellsnesi 6. des. 1961. Áhöfnin bjargaðist um borð í Sæfara ÍS 360.
Bar aðeins þetta eina nafn.
381. Egill Skallagrímsson AK 73
Eik, Danmörku 1927
Talinn ónýtur og tekinn af skrá 1. okt. 1969
Nöfn: Bjarnarey VE 9, Egill Skallagrímsson MB 73, Egill Skallagrímsson AK 73, Egill Skallagrímsson ÍS 130, Egill Skallagrímsson GK 100, og Sæberg SK 38
84. Haraldur AK 10
Stál, Kristiansand, Noregi 1961. Yfirbyggður 1981. Lengdur 1990.
Fór til Belgíu í niðurrif í júlí 2014
Nöfn: Haraldur AK 10, Gandí VE 171, Guðjón VE 7 og síðan aftur Gandí VE 171 og Kristbjörg VE 71
597. Höfrungur AK 91
Eik Akranesi 1955.
Seldur til Portúgals 14. okt. 1986, en dagaði uppí slippnum á Akranesi, þar sem hann stendur ennþá.
Nöfn: Höfrungur AK 91, Harpa GK 111 og Harpa GK 101
Höfrungur AK 98
Eik, Akranesi 1929
Seldur til Færeyja 1947.
Nöfn: Höfrungur MB 98 og Höfrungur AK 98
120. Höfrungur II AK 150
Stál Avalsnes, Noregi 1957. Keyptur hingað til lands 1960. Yfirbyggður 1985.
Rifinn niður í gamla Drafnarslippnum í Hafnarfirði 2010
Nöfn: Höfrungur II AK 150, Höfrungur II GK 27, Erling KE 140, Kambaröst SU 120 og Kambaröst RE 120
249. Höfrungur III AK 250
Stál, í Harstad, Noregi 1964. Yfirbyggður 1989.
Seldur úr landi til Ghana sennilega 2005 eða 6
Nöfn: Höfrungur III AK 250, Höfrungur II ÁR 250, Hafnarröst ÁR 250 og síðan fréttist af skipinu á Spáni á síðasta ári og þá kom það þar í höfn og var skráð sem flutningaskip með nafninu FRIDA.
637. Keilir AK 92
Eik, Halsö. Svíþjóð 1935.
Talinn ónýtur og tekinn af skrá 3. maí 1976
Nöfn: Keilir GK 92, Keilir MB 92, Keilir AK 92 og Dís RE 95
736. Reynir AK 98
Eik, Landskrona, Svíþjóð 1945
Brann og sökk á Selvogsbanka 20. júní 1968. Áhöfnin bjargaðist í gúmmíbát og síðan í varðskipið Þór.
Nöfn: Eiríkur SK 2 og Reynir AK 98
191. Skírnir AK 12
Stál, í Leirvik, Noregi 1960. Lengdur 1981.
Seldur til Svíþjóðar upp í nýsmíði og tekinn af skrá 11. des. 1987. Seldur strax áfram til Kolumbíu, í Suður-Afríku
Nöfn: Katrín SU 54, Skírnir AK 12, Skúmur KE 111, Skúmur GK 22, Arnfirðingur GK 22 og aftur Skúmur GK 22. Í Svíþjóð var hann skráður sem Skumur.
766. Skírnir AK 94
Eik, Ísafirði 1927
Talinn ónýtur og tekinn af skrá 1966.
Nöfn: Skírnir GK 515, Skírnir MB 94, Skírnir AK 94 og Skírnir GK 79
815. Sveinn Guðmundsson AK 70
Eik, Friðrikssun, Danmörku 1947
Sökk suður af Stokksnesi 25. Nóv. 1975. Áhöfnin bjargaðist í gúmmíbát og síðan um borð í Skinney SF 20.
Nöfn: Sveinn Guðmundsson AK 70, Haukur RE 64 og Haukur SU 50
873. Ver AK 97
Eik Akranesi 1929
Talinn ónýtur og tekinn af skrá 8. des. 1975.
Nöfn: Ver MB 97, Ver AK 97 og Ver ÍS 120
878. Ver AK 97
Eik,í Djúpvik, Svíþjóð 1955.
Talinn ónýtur og tekinn af skrá 21. nóv. 1973
Bar aðeins þetta eina nafn
Víkingur AK 80
Eik Friðrikssun, Danmörku 1927
Strandaði við Akranes 18. Jan. 1947 og eyðilagðist.
Nöfn: Heimaey VE 7, Víkingur MB 80 og Víkingur AK 80.
13.08.2014 20:21
Haddi Möggu BA 123, Ölver ST 15 og Hafgeir ÍS 115

6337. Haddi Möggu BA 123, á Patreksfirði, 11. maí 2013
6350. Ölver ST 15, í Norðurfirði, 28. sept. 2013
6752. Hafgeir ÍS 117, í Norðurfirði, 28. sept. 2013
© myndir MarineTraffic, Sigurður Bergþórsson
13.08.2014 19:20
Hafdís SI 131 o.fl. á Siglufirði

7396. Hafdís SI 131 o.fl. á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 11. ágúst 2014
13.08.2014 18:43
Siggi Gísla EA 255, tekinn á land í dag - Sólplast mun gera við hann
Tók ég þessar myndir við það tækifæri og sýni jafnfram skemmd á skrokknum sem varð er báturinn barðist í grjótinu á strandstað.







2775. Siggi Gísla EA 255, kominn á land í Njarðvík, í dag © myndir Emil Páll, 13. ágúst 2014
13.08.2014 18:28
Akraberg SI 90, á Siglufirði

2765. Akraberg SI 90, á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 11. ágúst 2014
13.08.2014 16:09
Makrílbátur: Rak mannlaus upp í fjöru
Í dag gerist sá atburður í Keflavíkurhöfn að báturinn Siggi Gísla EA 255, sem nýbúið var að landa úr losnaði frá bryggjunni, en mannskapurinn var uppi á bryggju. Tókst mönnum ekki að komast út í bátinn áður enn hann fór að reka út úr höfninni. Enginn þeirra sem sá bátinn reka hélt að hann væri mannlaus og því var ekkert gert til að stoppa bátinn sem að lokum strandaði neðan við Pósthússtræti í Keflavík. Fljótlega kom hafnsögubáturinn Auðunn og er hann hafði komið taug um borð með hjálp manna sem komu á vettvang, tók hann einnig niðri, en tókst að losa sig og dró hinn bátinn til hafnar í Njarðvík, þar sem dælt var upp úr honum en þó nokkur sjór hafði komist í bátinn.
Köfunarþjónusta Sigurðar kom á staðinn og stjórnaði dælingu úr bátnum, en Brunavarnir Suðurnesja dældu sjónum og fyrir utan lögreglu var Björgunarsveit á staðnum. Nú á eftir mun Jón & Margeir mæta á staðinn og hífa bátinn upp á bryggju til að skoða hann.
![]() |
||||||||||
|
|
13.08.2014 13:14
Oddverji ÓF 76, Bíldsey SH 65 o.fl. á Siglufirði

2102. Oddverji ÓF 76, 2704. Bíldsey SH 65, o.fl. á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 11. ágúst 2014
13.08.2014 12:31
Ebbi AK 37, Valþór GK 123 og Svala Dís KE 29, að veiðum í Keflavíkurhöfn í morgun
![]() |
||
|
|
13.08.2014 12:15
Sóley Sigurjóns GK 200 að koma inn til Keflavíkur, í gær
![]() |
![]() |
![]() |
2262. Sóley Sigurjóns GK 200 að koma inn til Keflavíkur. í gær © myndir Emil Páll, 12. ágúst 2014
13.08.2014 11:12
Nökkvi ÞH 27, landaði makríl í Njarðvík í gær
![]() |
1622. Nökkvi ÞH 27, að landa makríl, í Njarðvíkurhöfn, í gær © mynd Emil Páll, 12. ágúst 2014
13.08.2014 10:40
Svala Dís hæst í Keflavík í gær og Máni II, í Grindavík
Í gær landaði Svala Dís KE 29, 16 tonnum af makríl í Keflavík og var hún hæsti báturinn. Hæsti báturinn í Grindavík var Máni II ÁR 7 með 11 tonn.
![]() |
1666. Svala Dís KE 29, í Keflavíkurhöfn, í morgun © mynd Emil Páll, 13. ágúst 2014 |
13.08.2014 10:11
Njáll RE 275, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur
![]() |
1575. Njáll RE 275, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur - mynd Emil Páll, 12. ágúst 2014
13.08.2014 09:10
Oddverji ÓF 76, á Siglufirði
![]() |
2102. Oddverji ÓF 76, á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 11. ágúst 2014














