Færslur: 2014 Mars
12.03.2014 07:00
Sigurborg SH 12 o.fl. á Siglufirði
![]() |
||
|
|
1019. Sigurborg SH 12 o.fl. á Siglufirði, í gær © myndir Hreiðar Jóhannsson, 11. mars 2014
12.03.2014 06:00
Lundey NS 14, í síðustu loðnulönduninni
![]() |
||
|
|
155. Lundey NS-14, kom inn til löndunar með síðustu tonnin af kvóta HB Granda á þessari vertíð © Faxagengið, faxire9.123.is 10. mars 2014
12.03.2014 05:39
Niðurrif á Fernöndu hófst í gær
![]() |
Niðurrif Fernöndu, hófst í Helguvík í gær © mynd Fréttablaðið, 11. mars 2014 |
11.03.2014 21:28
Sólplast: Tveir bátar færðir milli húsa í dag
Í dag voru tveir bátar sem þeir hjá Sólplast eru að vinna í, færðir milli húsa. Annar var Vending þ.e. skemmtibáturinn sem verið er að breyta í fiskibát og hinn er nýsmíði, sem Sólplast er að klára plastverkið og lauk þeirri vinnu í dag og því var hann færður í það pláss sem Vending var í svo hægt væri að mála hann, áður en eigandinn tekur hann trúlega um helgina til að klára. Vending fór því í það pláss sem nýsmíðin var í. Allt um það á þessum myndum sem ég tók í Sólplasti í dag.
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
11.03.2014 18:11
Særún SH 86, í Ólafsvíkurhöfn
![]() |
2782. Særún SH 86, í Ólafsvíkurhöfn © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2009
11.03.2014 17:19
Sæhamar SH 223, í höfn á Rifi
![]() |
2680. Sæhamar SH 223, í höfn á Rifi © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2009
11.03.2014 16:21
Særif SH 25, á Rifi
![]() |
2657. Særif SH 25, í höfn á Rifi © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2009
11.03.2014 15:50
Sædís SH 138, í Ólafsvík
![]() |
2555. Sædís SH 138, í Ólafsvíkurhöfn © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2009
11.03.2014 13:23
Lilja SH 16, í höfn á Arnarstapa
![]() |
2540. Lilja SH 16, í höfn á Arnarstapa © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2009
11.03.2014 13:00
Æfingaeldflaug kom í veiðarfæri línubátsins Valdimars GK 195, í gær
![]() |
|
Landað úr 2354. Valdimar GK 195, í Njarðvíkurhöfn, í morgun © mynd Emil Páll, 11. mars 2014
--- Vefur Landhelgisgæslunnar: |
Línuskipið Valdimar hafði í gærmorgun samband við Landhelgisgæsluna vegna torkennilegs hlutar sem kom í veiðarfæri skipsins þegar það var staðsett um 40 sjómílur VNV af Reykjanesi. Ekki var mögulegt fyrir skipið að senda mynd af hlutnum en af lýsingu að dæma var talið að hluturinn væri æfingaeldflaug.
Skipið var á leið til hafnar og þegar þangað kom fóru sprengjusérfræðingar Landhelgisgæslunnar um borð og staðfestu að um æfingaeldflaug væri að ræða. Slíkir hlutir eru að jafnaði hættulausir en þó er púður í mótornum sem myndar reyk þegar eldflaugin hittir í mark. Æfingaeldflaugar eru ekki með sprengiefni. Í þessu tilfelli hafði flugin ekki hitt í mark og var hún ósprungin. Var hún opnuð til að tryggja að enginn hætta yrði á ferðinni.
Ekki er óalgengt að skeyti sem þessi finnist hér við land.
Eldflaugin um borð i línuskipinu Valdimar
Eldflaugin tilbúin til eyðingar
Púður ekki lengur til staðar í mótornum.
Myndir af eldflauginni: sprengjusérfræðingar LHG.
11.03.2014 12:29
Guðmundur Kristinn SU 404
![]() |
||
|
|
![]() |
1000. Guðmundur Kristinn SU 404 © myndir Óðinn Magnsson, hoffellsu80.123.is
AF FACEBOOK:
Guðni Ölversson Á þessum var ég í þrjú sumur á Norðursjávarsíld. Fínn bátur.
11.03.2014 11:35
Þorri SU 402
![]() |
1077. Þorri SU 402 © mynd Óðinn Magnason, hoffellsu80.123.is
AF FACEBOOK:
Guðni Ölversson Ekki sá fríðasti í flotanum.
11.03.2014 10:23
Systurnar í Reykjavíkurhöfn
![]() |
Systurnar: 2449. Steinunn SF 10 ex Helga RE 49 og 2749. Helga RE 49, í Reykjavíkurhöfn © mynd Emil Páll, í okt. 2009
11.03.2014 09:18
Magnús Ingimarsson SH 301, í höfn í Ólafsvík
![]() |
2419. Magnús Ingimarsson SH 301, í höfn í Ólafsvík © mynd Emil Páll, 29. ágúst 2009
11.03.2014 09:05
Sex gámar fóru í sjóinn úr Goðafossi í nótt, þegar skipið lenti í brotsjó
Ruv.is

Sex gámar fóru í sjóinn úr Goðafossi í nótt, þegar skipið lenti í brotsjó á leið til landsins með vörur frá Evrópu.
Skoðað verður þegar skipið kemur til lands í dag eða á morgun hvað var í gámunum. Engin hættuleg efni voru í gámunum að sögn Ólafs Hand, upplýsingafulltrúa Eimskips. Engin slys urðu á fólki. Ólafur segir að veður hafi verið bandvitlaust og að það komi fyrir að gámar fari í sjónn þegar skip fái á sig brotsjó. Gámarnir sökkva yfirleitt til botns og ekki er reynt að ná þeim nema ef í þeim eru eiturefni.
Í fyrrinótt fóru þrír gámar fóru í sjóinn úr Dettifossi við Shetlandseyjar í nótt í slæmu veðri. Tómur frystigámur fór í sjóinn og tveir gámar með þurrvörum á leið frá Íslandi til Evrópu.



































