Færslur: 2016 Janúar
29.01.2016 16:17
Bjartur NK 121 o.fl. á Norðfirði, í gær
![]() |
1278. Bjartur NK 121 o.fl. á Norðfirði, í gær © skjáskot á vefmyndavél, kl. 9.35 28. jan. 2016
29.01.2016 15:16
Orri ÍS 180, í Skipasmíðastöð Njarðvikur, í dag
![]() |
923. Orri ÍS 180, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, í dag © mynd Emil Páll, 29. jan. 2016
29.01.2016 14:15
Kiel, á Akureyri, í morgun
![]() |
Kiel, á Akureyri, í dag © mynd Víðir Már Hermannsson, 29. jan. 2016
29.01.2016 13:14
Orri ÍS 180 (Seniverinn) við slippbryggjuna í Njarðvík, í morgun
![]() |
923. Orri ÍS 180, ( Seniverinn) við slippbryggjuna í Njarðvík, í morgun © mynd Emil Páll, 29. jan. 2016
29.01.2016 10:11
Steinunn Finnbogadóttir BA 325, Steinunn SH 167, Kristín ÞH 157 og Tony
![]() |
245. Steinunn Finnbogadóttir BA 325, 1134. Steinunn SH 167, 972. Kristín ÞH 157 og 46. Toný í Skipasmíðastöð Njarðvíkur © mynd Emil Páll, 5. ágúst 2010
29.01.2016 09:14
Finnur EA 245 o.fl. í löndunarbið í Sandgerðisbót, í frostinu, í gær
![]() |
1542. Finnur EA 245 o.fl. í löndunarbið í Sandgerðisbót, í frostinu, í gær © mynd Víðir Már Hermannsson, 28. jan. 2016
29.01.2016 08:00
Sandvíkingur ÁR 14, í gær
![]() |
1254. Sandvíkingur ÁR 14, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, í gær © mynd Emil Páll, 28. jan. 2016
29.01.2016 07:00
Blíða KE 17, Egill ÍS 77 og Ársæll Sigurðsson HF 80, í Hafnarfirði
![]() |
1178. Blíða KE 17, 1990. Egill ÍS 77 og 1873. Ársæll Sigurðsson HF 80, í Hafnarfirði © mynd Emil Páll
28.01.2016 21:48
Gamli Seniver að fara í kvikmyndabransann
Í þessum töluðu orðum er Hannes Þ. Hafstein að koma með Orra ÍS 180 í togi til Njarðvíkur, en eins og fram hefur komið tvisvar í kvöld hófst ferð bátsins með því að Valþór GK 123 dró hann út úr Sandgerðishöfn, með stefnu á Njarðvík, en taugin slitnaði er komið var út úr Sandgerðishöfn og fóru leikar þannig að Hannes Þ. Hafstein tók bátinn í tog.
Orri ÍS er frægur bátur og engur milli manna undir nafninu Seniverinn, en ástæðan er sú að báturinn var fyrir mörgum áratugum leigður og siglt þá til Belgíu þar sem hann fylltur af Seniver sem smygla átti hingað til lands, en upp um málið komst, en þá var búið að fela smyglið í skipsflaki inn á sundum í Reykjavík.
Nú er báturinn að fara í kvikmyndatökur, fyrst á Seyðisfirði og síðan á Akranesi.
Hér sjáum við skjáskot af VesselFinder er sýnir bátanna koma til Njarðvíkur fyrir stuttri stundu.
![]() |
|
fyrir nokkrum mínútum © skjáskot af VesselFinder 28. jan. 2016
AF FACEBOOK: |
28.01.2016 21:00
Loðnuskip við Reykjanes - 10 myndir
![]() |
![]() |
||||||||||||||||
|
|
Loðnuskip við Reykjanes © myndir Oddgeir Guðnason, 13. feb. 2011
28.01.2016 20:21
Engey RE 1 / Kristina - 5 myndir
![]() |
||||||||
|
|
28.01.2016 20:18
Björgunarbátur þurfti að hjálpa Valþóri með Orra
Ferð Valþórs GK 123 með Orra ÍS frá Sandgerði áleiðis til Njarðvíkur, gekk ekki eins vel og menn bjuggust við, eins og sjá má á frétt af mbl.is núna áðan, en ég birti á svipuðum tíma 8 mynda syrpu af bátunum er þeir fóru frá Sandgerði um kl. 17
Innlent | mbl | 28.1.2016 | 19:25
Siglir með vélvana bát til Njarðvíkur
Björgunarskipið Hannes Þ. Hafstein frá Sandgerði var kallað út á sjötta tímanum í dag þegar tilkynning barst um vélarvana bát við innsiglinguna í Sandgerðishöfn. Tveir skipverjar eru um borð. Bjargir voru því kallaðar út á fyrsta forgangi en fljótlega kom í ljós að bilaði báturinn var um sjómílu utar og því ekki eins mikil hætta á ferðum og fyrst var talið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.
Nærstaddur bátur var fyrstur á staðinn og reyndi að koma taug á milli en tókst ekki. Um hálfri klukkustund eftir að útkallið barst var björgunarskipið komið með vélarvana bátinn í tog og siglir nú með hann til hafnar í Njarðvík. Gert er ráð fyrir að siglingin taki 2-3 tíma.




























