Færslur: 2015 Júní
28.06.2015 10:48
Bauja færð til og Baldur fór utan í klett
bb.is:
![]() |
|
2887. Baldur © mynd bb.is
|
Breiðafjarðarferjan Baldur tók niðri á leið sinni yfir Breiðafjörðinn fyrir nokkrum dögum. Töluverðar skemmdir urðu á skipinu en þó verða engar frátafir. Óhappið má væntanlega rekja til þess að siglingabauja var færð til fyrir einhver mannleg mistök. „Skipið strandaði ekki heldur fór utan í klett,“ segir Pétur Ágústsson, framkvæmdastjóri Sæferða í Stykkishólmi. Ástæðan er að minnsta kosti meðal annars sú, að merkibauja sem var búin að vera á sínum stað til margra ára hafði í einhverju ógáti verið færð til. „Það er enginn að gera þetta viljandi.“
Pétur segir að bátur á vegum siglingayfirvalda hafi verið að fara í kringum landið til að yfirfara vita og ljósbaujur og önnur siglingamerki. Líklegt er talið að þá hafi baujan verið færð til. „Ég vil ekkert fullyrða hvernig það hefur viljað til, en eitthvað gerðist,“ segir Pétur.
Skipið skemmdist töluvert, að sögn Péturs, en engar frátafir verða samt vegna þessa. „Það er búið að gefa heimild til að sigla því alla vega fram á haustið þangað til gert verður við þetta. Þetta eru ekki göt, þetta eru beyglur, sem er að vísu afar slæmt, en skerðir ekkert sjóhæfni skipsins.“
28.06.2015 10:11
Content - Rússneskur bulkari
![]() |
Content - Rússneskur bulkari
© mynd Svafar Gestsson, 24. júní 2015
28.06.2015 09:10
Margrét ÓF 47, á Siglufirði
![]() |
2139. Margrét ÓF 47, á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 26. eða 27. júní 2015
28.06.2015 08:19
Dalborg EA 317, á Siglufirði
![]() |
1790. Dalborg EA 317, á Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 26. eða 27. júní 2015
28.06.2015 07:00
Varðbátur sem nær 120 m. hraða á sléttum sjó, í Pechenga í Rússlandi
![]() |
Varðbátur sem nær 120 m. hraða á sléttum sjó, í Pechenga í Rússlandi © mynd Svafar Gestsson, 24. júní 2015
28.06.2015 06:31
Siglunes, nágast Belgíu
Samkvæmt MarineTraffic, ætti Siglunes SI 70 að koma að strönd Belgíu eftir um 8 tíma. Ýmislegt hefur orðið til þess að skipið já eða skipin, því Tungfell á að fylgja á eftir, nái til Belgíu. M.a. fór stykki í aðalvél Sigluness og þurftu skipin að leita inn til Færeyja og bíða þar furðulengi eftir varastykki frá Danmörku. En ýmislegt annað hefur takið för þeirra.
Hér sjáum við Siglunes efst í vinstra horni og strönd Belgíu neðst í hægra horni og samkvæmt hraða Sigluness eiga skipin sem fyrr segir að ná ströndinni í kvöld og þá tekur við leið inn skipaskurðar til áfangastaðar.
![]() |
|
Siglunes ofarlega í hægra horni og strönd Belgíu neðst í hægra horni. Samkvæmt hraða skipsins á það að ná strönd Belgíu eftir um 8 klukkustundir |
28.06.2015 06:00
Steini Vigg SI 110
![]() |
1452. Steini Vigg SI 110, að fara út frá Siglufirði © mynd Hreiðar Jóhannsson, 26. eða 27. júní 2015
27.06.2015 21:00
Frá Vadsø og Vesta
![]() |
||||||||
|
|
![]() |
![]() |
![]() |
Frá Vadsø og Vesta © myndir Svafar Gestsson, 24. júní 2015
27.06.2015 20:21
Í Pechenga í Rússlandi
![]() |
![]() |
![]() |
||
|
|
Í Pechenga í Rússlandi © myndir Svafar Gestsson, 24. júní 2015
27.06.2015 20:02
Kiel NC 105, með stutta viðkomu á ytri - höfninni í Keflavík, í gær
Rétt fyrir hádegi í gær kom togarinn Kiel NC 105 á ytri höfnina í Keflavík. Þar sem ég var í annarri myndatöku á sama tíma, náði ég ekki að festa atvikið á mynd, en náði aftur á móti mynd af togaranum þegar hann var u.þ.b. að sigla út úr Stakksfirðinum.
Því til staðfestingar að hann hafi komið á ytri - höfnina sýni ég frá MarineTraffic og eins birti ég einnig mynd af togaranum við bryggju annarstaðar.
![]() |
| Kiel NC 105, siglir út úr Stakksfirðinum rétt fyrir hádegi í gær © mynd Emil Páll, 26. júní 2015 |
![]() |
||
|
Hér er skjáskot af MarineTraffic, skömmu síðar, sem sýnir að togarinn fór inn undir Keflavík og síðan út aftur
|
27.06.2015 19:20
Nordic Hamburg, lá utan við Keflavík í gær - nú á leið til Færeyja
Þetta flutningaskip lá á Stakksfirði allan daginn í gær og fram á nótt að skipið lagði af stað til Færeyja. Birti ég hér tvær myndir sem ég tók af skipinu með miklum aðdrætti frá Vatnsnesi í Keflavík og læt síðan eina mynd af MarineTraffic fljóta með.
![]() |
![]() |
Nordic Hamburg á Stakksfirði, í gær © myndir Emil Páll, 26. júní 2015
![]() |
| NORDIC HAMBURG © mynd MarineTraffic, Jurgen Braker |
27.06.2015 18:19
Stemmari í kvöldsólinni á Hólmavík
![]() |
![]() |
Stemmari í kvöldsólinni á Hólmavík © myndir Jón Halldórsson, nonni.123.is 24. júní 2015
27.06.2015 17:18
Djúpivogur, á sjómannadag 2015
![]() |
![]() |
Djúpivogur, á sjómannadag 2015 © myndir Ólafur Björnsson
27.06.2015 16:17
Glaumur NS 101 og Hafbjörg NS 1, í Borgarfirði eystri, í gær
![]() |
7031. Glaumur NS 101 og 7064. Hafbjörg NS 1, í Borgarfirði eystri, í gær © mynd Þorgrímur Ómar Tavsen, 26. júní 2015
27.06.2015 15:16
Gaumur NS 101, í Borgarfirði eystri, í gær
![]() |
7031. Gaumur NS 101, í Borgarfirði eystri, í gær © mynd Þorgrímur Ómar Tavsen, 26. júní 2015































