Færslur: 2010 Mars
09.03.2010 09:42
Farsæll GK 162

1636. Farsæll GK 162. í höfn í Grindavík © mynd Kr.Ben
09.03.2010 09:37
Maí GK 346 / Margrét EA 710
1484. Maí GK 346 © mynd Þór Jónsson
1484. Margrét EA 710 © mynd Þór Jónsson
09.03.2010 08:52
Triton F 358 á Stakksfirði í morgun





Triton F- 358 á Stakksfirði í morgun © myndir Emil Páll, 9. mars 2010
09.03.2010 00:01
Fyrst Fróðaklettur GK 250, þá nokkur nöfn en í dag Kristbjörg ÁR 177

239. Fróðaklettur GK 250 © mynd Snorri Snorrason

239. Vestri BA 63 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, safn Sjómannadagsráðs

239. Vestri BA 63 © mynd úr Flota Patreksfjarðar, Óli Rafn Sigurðsson

239. Örvar SH 777 © mynd Snorrason

239. Örvar SH 777 © mynd hellissandur.is

239. Örvar II SH 177 © mynd Emil Páll í Sandgerðishöfn 2008

239. Kristbjörg HF 177, í höfn í Ólafsvík © mynd Emil Páll í ágúst 2009

239. Kristbjörg ÁR 177, í höfn í Keflavík © mynd Emil Páll 4. mars 2010

239. Kristbjörg ÁR 177, að koma inn til Keflavíkur © mynd Emil Páll, 7. mars 2010
Smíðanúmer 57 hjá Ankerlökken Verft A/S, Florö, Noregi 1964. Yfirbyggður 1986.
Nöfn. Fróðaklettur GK 250, Drangey SK 1, Vestri BA 63, Örvar SH 777, Örvar II SH 177, Kristbjörg HF 177 og núverandi nafn: Kristbjörg ÁR 177.
08.03.2010 23:40
Kristbjörg ÁR 177







239. Kristbjörg ÁR 177, kemur til Keflavíkur © myndir Emil Páll, 7. mars 2010
08.03.2010 21:04
Erling og Berglín

1905. Berglín GK 300 í Njarðvíkurhöfn © mynd Emil Páll, 8. mars 2010

233. Erling KE 140 og 1905. Berglín GK 300 í Njarðvikurhöfn í dag © mynd Emil Páll, 8. mars 2010
08.03.2010 20:11
Varðskip á Stakksfirði og inni á Keflavíkinni í dag






1421. Týr inni á Stakksfirði og í Keflavíkinni í dag. Á efstu myndinni má sjá grilla í 2410. Vilhelm Þorsteinsson EA 11 og á 2. myndinni sést aðeins í léttabát varðskipsins © myndir Emil Páll, 8. mars 2010
08.03.2010 18:19
Ingibjörg SH 174 ex Oddur á Nesi SI og saga bátsins

2615. Ingibjörg SH 174 ex Oddur á Nesi

Skorsteinsmerki bátsins er Camel, þar sem eigandi bátsins reykir þá sígarettutegund

Hér sjáum við Kristján Níelsen í Sólplasti, í símanum © myndir Emil Páll, 8. mars 2010
STEINUNN ÍS 815 / ODDUR Á NESI SI 76 / ODDUR Á NESI SI 176 / INGIBJÖRG SH 174

2615. Steinunn ÍS 817 í reynslusiglingu © mynd Emil Páll 2004

2615. Oddur á Nesi SI 76 © mynd Emil Páll, í mars 2009

2615. Oddur á Nesi, orðinn SI 176, kominn með nýtt stýrishús © mynd Emil Páll 2009

2615. Oddur á Nesi SI 176 © mynd Emil Páll, 2009

2615. Ingibjörg SH 174 © mynd Emil Páll, 8. mars 2010
Af gerðinni Gáski 1100 og í raun með smíðanúmer 18 frá Mótun ehf. Njarðvik.
Sjósettur í Njarðvíkurhöfn með krana, miðvikudaginn 7. júlí 2004 og strax siglt út í Gróf þar sem tæki voru stillt til afhendingar. Reynslusigling fór fram á Keflavíkinni og Stakksfirði föstudaginn 9. júlí. Fór síðan úr Grófinni, miðvikudaginn 14. júlí 2004.
Stórviðgerð hjá Sólplasti ehf., Sandgerði frá júní 2009 til 9. mars 2010 eftir mikinn bruna, fyrst í stýrishúsinu er báturinn var í Sandgerðishöfn þann 17. febrúar 2009 og degi áður en þeirri viðgerð átti að ljúka kom upp eldur í bátnum að nýju og nú inni í húsi hjá Sólplasti þann 25. mars 2009.
Nöfn: Steinunn ÍS 817, Oddur á Nesi SI 76, Oddur á Nesi SI 176 og núverandi nafn: Ingibjörg SH 174.
08.03.2010 18:12
Miklar endurbætur á Sighvati GK eftir brotsjóinn
Að sögn Kjartans Viðarssonar, útgerðarstjóra Vísis hf., var um eins til tveggja feta sjór á öllu millidekkinu og þá aftur í, auk þess sem sjór, slóg og fiskur flæddi um allt og niður í íbúðir sem neðar eru í skipinu.



Skipið er nánast fokhelt á eftir og þarf að einangra og endurbyggja allt. Á neðstu myndinni sjáum við Kjartan Viðarsson, útgerðarstjóra lengst til hægri líta fyrir verksviðið © myndir Emil Páll, 8. mars 2010
08.03.2010 18:08
Restin af Kambaröst RE 120
Hér sjáum við restina af Kambaröst RE 120 eins og málið leit út í gærdag í Drafnarslipp í Hafnarfirði.

120. Kambaröst RE 120, eða það sem eftir var af henni í gær © myndir Emil Páll 7. mars 2010
08.03.2010 11:53
Gúmmíbátur fannst norður af Sandgerði
Af vefnum 245.is
Rétt fyrir klukkan 10 í gærmorgun var björgunarsveitin Sigurvon kölluð út til leitar að gúmmíbjörgunarbát norður af Sandgerði, sem losnað hafði frá togskipinu Hring SH 153 frá Grundarfirði.
Ekki er vitað nákvæmlega hvenær báturinn losnað, en neyðarsendir úr björgunarbátnum fór að senda frá sér neyðarmerki eftir að báturinn sprakk upp í sjónum. Starfsmenn landhelgisgæslu Íslands hófu strax eftirgrennslan og var björgunarsveitin Sigurvon kölluð út í kjölfarið. Sigurvon sendi stax út tvo tveggja manna hópa til leitar í fjörunni og stóð hún ekki lengi þar sem að annar hópurinn kom fljótt auga á bátinn á eyri fyrir neðan Kirkjubólsvöll.
Eftir stutta leit tók við önnur leit af neyðarsendi úr björgunarbátnum til að slökkva á honum og í framhaldi að koma bátnum úr fjörunni og til Sandgerðis.

Þar sem ekki var hægt að fara á bíl niður í fjöruna þurftu björgunarmenn að draga bátinn á handafli um 100 metra í stórgrýttri fjörunni í átt að golfvellinum.
Þegar þeirri vinnu var lokið tók við vinna við að koma bátnum úr fjörunni. Björgunarsveitin fékk afnot af traktorsgröfu frá Golfklúbbi Sandgerðis til að flytja bátinn úr fjörunni og upp að bíl. Gekk það mjög vel fyrir sig og var báturinn kominn í hús hjá Sigurvon um kl. 15°° í gær.
08.03.2010 11:48
Leit afturkölluð
Leit að Kristni SH 112 hefur verið afturkölluð. Skipverjar heyrðu lýst eftir bátnum í útvarpinu og létu þá vita af sér til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar. Búið var að kalla þyrlu til leitar og var hún rétt ófarin þegar skipverjar gerðu vart við sig. Svo virðist sem sjálfvirka tilkynningaskyldukerfið um borð virkaði ekki sem skyldi. Þegar báturinn datt út úr kerfinu var farið að grennslast fyrir um hann. 
2468. Kristinn SH 112 © mynd Emil Páll í ágúst 2009
08.03.2010 07:35
Púkinn tók völdin: Gígja VE 340
1011. Gígja VE 340 © mynd Snorrason

