13.04.2012 22:00
Oliuskipið NORDLYSET, Þessi mótorskonnorta er fyrsta olíuskipið á ÍSLANDI. D.D.P.A. Er skamstöfun á Det Danske Petroleums Aktieselskab. skipið flutti steinoliu frá Danmörk til Íslands. árið 1913 keypti Íslenzka Steinoliufélagið skipið NORDLYSET og rak það næstu 2 árin. Á þeim árum var skipið í oliuflutningum milli hafna á Íslandi. En árið 1915 keypti D.D.P.A. skipið aftur © Mynd úr safni Guðmundar Sigurðssonar, ljósmyndari Magnús Ólafsson
13.04.2012 21:00
IKKAMUIT GR 7-311 SLITNAÐI UPP Í AFTAKA VEÐRI Í NÓV 2006, Í HAFNAFJARÐARHÖFN © LJÓSMYND, GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
Í skýrslu Rannsóknarnefndar sjóslysa segir þetta um strandið.: Þann 5. nóvember 2006 voru tvö grænlensk skip í höfn í Hafnarfirði og lágu þau saman utan á Sonar við Óseyjarbryggju. Milli kl. 8 og 9 um morguninn tók hafnarvörður eftir að festar Ikkanmiut GR voru farnar að gefa sig að aftan vegna veðurs. Voru dráttarbátarnir Hamar og Þróttur kallaðir út. Áður en aðstoð barst slitnuðu festar Ikkamiu sem rak undan vindinum með hinn grænlenska (Serena) á síðunni inn á grunnsævi innan hafnarinnar. Dráttarbátarnir reyndu að stöðva skipin en við bilaði önnur vél Hamars og Þróttur lenti undir bóg Ikkamiut með þeim afleiðingum að ljósamastur ásamt radarloftneti á þaki stýrishússins skemmdist. Ikkamiut strandaði um það bil 150 metrar frá fjöruborði undan Fjörukráarbryggjunni, en hinn togarinn Serene flaut.
Hafnarstarfsmenn reyndu að draga skipð af strandsað en hættu við það og létu nægja að losa Senene utan af Ikkamiut og biðu eftir að það fæddi að Serena var dreginn að bryggju og fest tryggilega og um kl. 15 tókst dráttarbátnum Hamri, Þrótti og björgunarskipi Björgunarsveitarinnar Fiskakletts að draga Ikkamiut aftur á flot. Ekki er vita til að skemmdir hafi orðið á togaranum.
13.04.2012 15:15
Fisk
ifrettir.is
Bátasmiðjan Trefjar afhendir nýjan línu- og handfærabát.
Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Lorient á vesturströnd Frakklands. Að útgerðinni stendur Erwan Babin sjómaður frá Lorient sem jafnframt er skipstjóri á bátnum.
Nýi báturinn, sem búinn er til línu- og handfæraveiða, hefur hlotið nafnið "Cleopatra". Hann er 9 brúttótonn af gerðinni Cleopatra 31.
Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT(Iveco)N67 280 tengd ZF280IV gír. Siglingatæki eru frá Furuno. Línubúnaður er frá Able. Handfærarúllur eru frá DNG.
Öryggisbúnaður bátsins er frá Viking.
Rými er fyrir 12 stk 380 lítra kör í einangraðri lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá auk eldunaraðstöðu með eldavél, örbylgjuofn og ísskáp.
Að sögn útgerðarinnar mun báturinn verða gerður út frá Lorient allt árið. Reiknað er með að báturinn hefji veiðar núna í lok mánaðrins og verða einn til tveir menn í áhöfn.