Færslur: 2016 Mars
13.03.2016 07:00
Hanna, staðgengill Arnarfells
Eins og áður hefur komið fram lenti Arnarfell, skip Samskips í árekstri fyrir nokkru og varð að fá annað skip til að leysa það af á meðan viðgerð færi fram. Það skip heitir Hanna og er í þessum orðum að nálgast Garðskaga í fyrstu ferð sinni til landsins sem staðgengill Arnarfells.
![]() |
HANNA, leiguskip Samskips sem leysir Arnarfell af sem er í viðgerð © mynd R. Olsthoorn, MarineTraffic, 4. nóv. 2010 |
13.03.2016 06:01
Sóley náðist á flot í gærkvöldi
Eins og fram koma hér á síðunni í gær urðu skemmdir á stóru Flotkvínni í Hafnarfirði í fyrradag, en önnur festing hennar gaf sig. Í kvínni var Sóley og tókst í gærkvöldi að ná henni á flot og hér eru myndir af því þegar það gerðist. Þarna má sjá Magna, Hamar, Þrótt og Köfunarþjónustu Sigurðar sem komu að verkinu.
![]() |
||||||||||
|
|
12.03.2016 21:00
Laxfoss, á Fáskrúðsfirði - 6 myndir
![]() |
||||||||||||||
|
|
12.03.2016 20:40
Vigri og Örfirisey, á Stakksfirði, í dag - 3 myndir
Einmitt þegar verður er frekar leiðinlegt til sjávar, koma óvæntar uppákomur fyrir linsuna hjá mér. Á ég þá við skip sem ekki eru fyrir framan mig oft. Í dag lenti t.d. Örfirisey RE 4 í þremur syrpum hjá mér en aðrir sjaldnar. Svo einkennilegt sem það er, þá náði ég aldrei að smella af Vigna nema af skutnum eins og sést á þessum myndum.
![]() |
2184. Vigri RE 71 og 2170. Örfirisey RE 4, út af Helguvík, í dag
![]() |
||
|
2184. Vigri RE 71, út af Helguvík, í dag
2170. Örfirisey RE 4, út af Helguvík © myndir Emil Páll, í dag 12. mars 2016 |
12.03.2016 20:21
Sólarlag kvöldsins á Húsavík (í fyrrakvöld) - 3 myndir
![]() |
||
|
|
![]() |
Sólarlag kvöldsins á Húsavík (í fyrrakvöld) © myndir Svafar Gestsson, 11. mars 2016
12.03.2016 20:02
Örfirisey RE 4, út af Keflavík um miðjan dag í dag - 2 myndir
Í dag tók ég mynd af togaranum yfir bæinn og slíkar myndir finnst mörgum skemmtilegar, en svona myndir tek ég annað slagið. Þá birti ég líka skjáskot af MarineTraffic, sem tekin var á svipuðum tíma, en tímasetningar koma fram undir báðum myndunum.
![]() |
2170. Örfirisey RE 4, út af Keflavík, í dag kl. 16.10 © mynd Emil Páll, 12. mars 2016
![]() |
2170. Örfirisey RE 4, út af Keflavík, í dag © skjáskot af MarineTraffic, kl. 16.08 þann 12. mars 2016
12.03.2016 19:20
Sigurbjörg ÓF 1, í Helguvík, í dag
Nú síðdegis kom togarinn Sigurbjörg ÓF 1, til Helguvíkur, hverra erinda veit ég ekki, en mjög fátítt er að þetta skip komi að bryggju í Helguvík.
![]() |
1530. Sigurbjörg ÓF 1, í Helguvík, nú síðdegis © mynd Emil Páll, 12. mars 2016
12.03.2016 18:19
Havung, í Aalesundi, Noregi
![]() |
Havung, í Aalesundi, Noregi © mynd Aage, shipspotting 10. mars 2016
12.03.2016 17:18
Pétur Mikli, á Húsavík
![]() |
7487. Pétur Mikli, á Húsavík © mynd Svafar Gestsson, 11. feb. 2016
12.03.2016 16:17
Bjarti NK, breytt í fljótandi gistiheimili
Stendur til að koma Bjarti í slipp þar sem skipið yrði undirbúið fyrir að koma því á varanlegan stað, helst að hluta til á landi. Þá á að bæta við um 25 klefum á millidekki en á dekki yrði veitingastaður, í lest gallerý og í brúnni yrði svo bar. „Einnig er áætlað að í skipinu verði minjagripabúð og verður skipið opið gangandi vegfarendum sem vilja skoða skipið eða fá sér kaffibolla.“
Fá þeir skipið afhent í lok sumar. Síðan sé stefnt að opnun Bjarts sem fljótandi gistiheimilis á vor mánuðum 2017.
![]() |
1278. Bjartur NK 121 © mynd Bjarni Guðmundsson, 27. jan. 2011 |
12.03.2016 15:16
Guðborg NS 138, í Keflavíkurhöfn
![]() |
|
MarineTraffic, 1. mars 2016 |
12.03.2016 14:34
Festibolti í flotkví slitnaði í gær og var skip í kvínni
Eftirfarandi má lesa á mbl.is:
Festibolti í flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar í Hafnarfjarðarhöfn losnaði í gær en skipið Sóley, sem er í eigu Björgunar, er í flotkvínni og bíður þess að verða sett á flot. Slæmt veður var í nótt og verður áfram í dag.
„Það bilaði festibolti og þá losnaði dokkinn að hálfu leyti. Það fór fram bráðabirgðaviðgerð í nótt og verður skipinu komið á flot í nótt en svo verður farið í alvöruviðgerð þegar veðrið lægir,“ segir Eiríkur Ormur Víglundsson forstjóri vélsmiðjunnar.
Skipið Magni hefur verið á staðnum í dag og veitt aðstoð. „Hafnarfjarðarhöfn er ekki með vakt allan sólarhringinn. Magni var á leið frá Helguvík þannig að við fengum hann til að koma og hjálpa okkur. Hann verður hér svo áfram. Þetta er bara til þess að við getum verið örugg um að ekkert geti komið upp á,“ segir Eiríkur og bætir þeir hafi nú stjórn á aðstæðum og að beðið sé eftir að veðrið lægi og hægt verði að koma Sóleyju á flot.
„Þetta er bara óhapp sem enginn gat séð fyrir. En það breytir því ekki að boltinn á að halda í öllum veðrum. Hann hefur verið í flotkvínni frá því að hún var smíðuð, í ein 16 eða 17 ár, og þetta hefur aldrei komið fyrir áður,“ segir Eiríkur.
![]() |
|
© mynd Tryggvi, 14. júní 2013 |
12.03.2016 14:15
Mjölnir, á Akureyri
![]() |
1731. Mjölnir, á Akureyri © mynd Víðir Már Hermannsson, 11. mars 2016
12.03.2016 13:14
Amanda, M-219-G, í Alesundi, Noregi
![]() |
Amanda, M-219-G, í Alesundi, Noregi © mynd Aage, shipspotting 10. mars 2016
12.03.2016 12:13
Örfirisey RE 4, í vari á Stakksfirði
Um kl. 11.30 tók ég þessa mynd af togaranum. Tökustaður er Vatnsnes í Keflavík.
![]() |
|
Tekið frá Vatnsnesi, í Keflavík © mynd Emil Páll, 12. mars 2016
|






























