Færslur: 2014 Febrúar
24.02.2014 15:19
Ómerktur bátur, á Akureyri, í gær
![]() |
||
|
|
Ómerktur bátur á Akureyri, í gær © myndir Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014
24.02.2014 14:17
Sunnutindur NS 36 og annar ókunnur, á Akureyri, í gær
![]() |
5586. Sunnutindur NS 39 og annar ókunnur, á Akureyri, í gær © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014
24.02.2014 13:20
Rifsnes SH 44, í viðgerð á Akureyri
![]() |
2847. Rifsnes SH 44 í návígi viðgerð á skut sérst greinilega © mynd Sigurbrandur Jakobsson, í. feb. 2014
![]() |
2847. Rifsnes SH 44 nýkomið úr flotkvíni, á Akureyri © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014 |
24.02.2014 12:08
Malene S verður nýr Börkur
![]() |
|
Af heimasíðu Síldarvinnslunnar: |
Síldarvinnslan hefur fest kaupa á norska uppsjávarveiðiskipinu Malene S en Börkur NK 122 gengur upp í kaupin. Skiptin á skipunum munu fara fram miðvikudaginn 25.febrúar nk. og mun nýja skipið fá nafnið Börkur NK 122.
Malene S er glæsilegt skip, smíðað í Tyrklandi og var afhent hinum norsku eigendum í desembermánuði árið 2012. Skipið er 3588 tonn að stærð, 80,30 metrar að lengd og 17 m á breidd. Aðalvél þess er 4320 KW af gerðinni MAK, auk þess er skipið búið tveimur ljósavélum 1760 KW og 515 KW. Skipið er búið svo kölluðum „Diesel Electric“-búnaði sem þýðir að hægt er að keyra skipið eingöngu með ljósavél og kúpla út aðalvélinni.
Skipið er búið öflugum hliðarskrúfum 960 KW og er vel búið til tog- og nótaveiða. Burðargeta skipsins er 2500 tonn, skipið er búið öflugum RSW kælibúnaði eða 2 milljón Kcal með ammoníak kælimiðli. Ekkert fer á milli mála að hið nýja skip verður á meðal best búnu og glæsilegustu fiskiskipa íslenska flotans.
Allur aðbúnaður áhafnar er eins og best verður á kosið, í áhöfn skipsins verða 7-8 menn á trollveiðum og 10-11 á nótaveiðum.
Börkur NK gengur upp í kaupin eins og fyrr greinir en Síldarvinnslan festi kaup á honum í febrúarmánuði árið 2012. Börkur var byggður árið 2000 og er 2190 tonn af stærð. Lengd skipsins 68,3 metrar og breidd 14 metrar. Burðargeta Barkar er 1750 tonn, skipið hefur reynst afar vel í þau tæplega tvö ár sem það hefur verið í eigu Síldarvinnslunnar hf.
Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri segir eftirfarandi um skiptin:
„Á síðastliðnum mánuðum erum við búnir að skipta út báðum uppsjávarskipum okkar Berki og Beiti. Við vorum vissulega með góð skip en stærsti munurinn í þessum skiptum felst í því að við erum að fá mun hagkvæmari skip hvað snertir olíunotkun og vonast ég til að sjá allt að þriðjungi minni olíunotkun á nýju skipunum. Sem dæmi þá var gamli Beitir með 11 þúsund hestafla vél en sá nýi er búinn tveimur 3200 hestafla aðalvélum þar sem dugir að keyra á annarri. Gamli Börkur var með 7500 hestafla aðalvél en nýi Börkur er með 5800 hestöfl, auk þess sem hann getur keyrt eingöngu á ljósavél sem er 2300 hestöfl. Samantekið þýðir þetta að við þurfum að ræsa 5500 hestöfl til að færa skipin á milli staða í stað 18500 hestafla áður.
Auk minni orkunotkunar mun aukin burðargeta einnig nýtast okkur vel við veiðar á kolmunna og til að hjálpa okkur þegar loðnukvótar verða stórir.
Skipið mun styðja við ennfrekari uppbyggingu á uppsjávarfrystingu okkar. Það mun styðja við þá stefnum okkar að auka verðmæti þeirra aflaheimilda sem við höfum aðgang að með minni tilkostnaði“.
24.02.2014 11:35
Anna EA 305, á Akureyri, í gær
![]() |
2870. Anna EA 305, við Vesturbakkann, á Akureyri, í gær © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014 |
24.02.2014 10:25
Sæfari ÞH 149, á Akureyri, í gær
![]() |
6393. Sæfari ÞH 149, á Akureyri, í gær © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014
24.02.2014 09:26
Kraka EA 59 við hlið 2190. Eyborgar, á Akureyri
|
|
||
|
6648. Kraka EA 59 við hlið 2190. Eyborgar, á Akureyri © myndir Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014
24.02.2014 08:33
Flugaldan ÓF 25, Fálkatindur NS 99, Sjöfn EA 142, Esther EA 3 og Smári ÞH 59, í gær
![]() |
2289. Flugaldan ÓF 25 og 2866. Fálkatindur NS 99, 1848. Sjöfn EA 142 1491. Esther EA 3 og 1533. Smári ÞH 59 í slippnum á Akureyri © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014
24.02.2014 07:00
Sleipnir, á Akureyri
![]() |
2250. Sleipnir, á Akureyri © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2104
24.02.2014 06:00
Eyborg ST 59, Neptune og Mjölnir
![]() |
2190. Eyborg ST 59, 2266. Neptune og sést ofaná 1731. Mjölnir, á Akureyri © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014
23.02.2014 21:01
Helguvík í dag: Vilhelm Þorsteinsson EA 11 að landa loðnu og Mimer að taka þyrlur og önnur hergögn
Hér kemur smá myndasyrpa sem sýnir Vilhelm Þorsteinsson EA 11 og flutningaskipið Mimer í Helguvík í dag. Sá fyrrnefndi var að landa loðnu, en sá síðarnefndi að taka herþyrlur og fleiri hergögn, sem notast var við heræfinguna sem loksins er lokið á Keflavíkurflugvelli. Já loksins segi ég því þó maður hafi vanist við það áður fyrr að vera með stanslausan þotugný frá herþotunum var sú hávaðamegun úr sögunni, þegar þetta ævintýri hófst fyrir nokkru og þá kom Mimer með þyrlur og hergögnin til Helguvíkur og beið þar síðan til að taka þau til baka.
En talandi um hávarðamengunina, þá vonaðist maður svona innst inni til að þoturnar færu þó ekki væri nema einu sinni og notuðu Reykjavíkurflugvöll með öllum sínum hávaða og tækju svo á loft yfir miðbæinn og þar með Alþingishúsið og tækju svo sveig fyrir austurborgina í Reykjavík. Bara svo þetta lið sem býr í höfuðborginni og sérstaklega þeir sem eiga heima í 101, eða starfa þar fengju aðeins smá sýnishorn af því sem við höfum fengið að hafa þennan tíma. Því miður var þetta bara von, sem auðvitað varð ekki raunveruleg, því miður.
Hér sjáum við skipin tvö í Helguvík í hádeginu í dag, tvær þyrlur og eins eitthvað annað af hergögnum á bryggjunni við Vilhelm Þorsteinsson, því þau voru þar sem annarsstaðar í víkinni í dag og í gær.
![]() |
||||||||
|
|
23.02.2014 20:21
Víðir ÞH 210, á Akureyri, í morgun
![]() |
2174. Víðir ÞH 210, á Akureyri, í morgun © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014
23.02.2014 19:20
Nunni EA 87, á Akureyri, í morgun
![]() |
1851. Nunni EA 87, á Akureyri, í morgun © mynd Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014
23.02.2014 18:19
Meya ex 1809. Jóna Eðvalds SF 200, í Las Palmas með ónýta vél
![]() |
Meya ex 1809. Jóna Eðvalds SF 200 - Gamall íslendingur, með ónýta vél, í Las Palmas © mynd Baldur Sigurgeirsson, 22. feb. 2014
23.02.2014 17:18
Ugla og Rakel, á Akureyri, í morgun
![]() |
1754. Ugla og sá litli heitir Rakel, á Akureyri, í morgun © Sigurbrandur Jakobsson, 23. feb. 2014






















