Færslur: 2014 Febrúar

07.02.2014 16:17

Frá Sandgerði, 2008


                                         Frá Sandgerði ©  mynd Emil Páll, 16. maí 2008

07.02.2014 15:27

Egill I RE 123


                                                 2004. Egill I RE 123 © mynd Emil Páll

07.02.2014 15:04

Ísak AK 67


                                                 1986. Ísak AK 67 © mynd Emil Páll, 2008

07.02.2014 13:07

Hrafn Sveinbjarnarson GK 255


                              1972. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 © Emil Páll, 31. maí 2008

07.02.2014 12:20

Aldan ÍS 47


                                           1968. Aldan ÍS 47  © Emil Páll, 9. maí 2008

07.02.2014 11:40

Vending og Steini HU 45, er þeir mættust í Sandgerði í gær - í kvöld meira um Vending








           7641. Vending og 2445. Steini HU 45, mætast í Sandgerði, í gær © mynd Emil Páll, 6. feb. 2014. Í kvöld birtist mikil syrpa um þann fyrrnefnda og frásögn um ástæðuna fyrir ferð hans til Sandgerðis.

07.02.2014 10:36

Óli á Stað GK 99, að koma inn til Sandgerðis, í gær








         2672. Óli á Stað GK 99, að koma inn til Sandgerðis, í gær © myndir Emil Páll, 6. feb. 2014

07.02.2014 09:17

Signý HU 13, að koma inn til Sandgerðis, í gær












          2630. Signý HU 13, að koma inn til Sandgerðis, í gær © myndir Emil Páll, 6. feb. 2014

07.02.2014 08:20

Steini HU 45, í Sandgerði, í gær






             2443. Steini HU 45, í Sandgerði í gær © myndir Emil Páll, 6. feb. 2014

07.02.2014 06:20

Sæfari ÁR 170


                 1964. Sæfari ÁR 170, í Reykjavíkurhöfn © mynd Emil Páll, 12. júlí 2008


             1964. Sæfari ÁR 170, í Sandgerðishöfn © mynd Emil Páll, 12. okt. 2008. Liggur hann utan á 1639. Dalaröst GK 150, sem báðir stunduðu þarna Sæbjúguveiðar.


           Hér sjáum við veiðarfæri bátanna sem þeir nota á Sæbjúgun © mynd Emil Páll, 12. okt. 2008  

07.02.2014 05:24

Dísa GK 19, merktur með spegilskrift


               1930. Dísa GK 19, með spegilstafina í merkingunni © mynd Emil Páll, í júní 2008

AF FACEBOOK:

Ólafur Þór Zoega Hét hann þessi Emil ekki Dísa GK 19


Emil Páll Jónsson Jú jú, auðvitað prentvilla hjá mér.

06.02.2014 21:00

Elias ,,smellpassar í þetta kerfi"

Eins og vart hefur farið framhjá lesendum síðunnar, þá hefur þessi skipasíða verið í góðu sambandi við nokkra íslendinga í Noregi og hér er einn þeirra sem ég sló á þráðinn til í morgun til að fræðast um, en hann er nýlega farinn að gera út sjálfur og um leið er hann á minnsta bátnum sem hann hefur verið á. Báturinn er 11,6 metra langur og 3,6 metra breiður og rær hann enn með því nafni sem báturinn bar áður, en hann keypti hann, en síðar mun hann skipta um nafn á honum. Ástæðan fyrir því að hann hefur ekki gert það ennþá er að í Noregi er það heilmikið kerfi og því bauð seljandinn viðmælenda okkar sem er Ölver Guðnason, að halda áfram með bátinn undir þessu nafni meðan málin væru að fara í gegn. Játti, Ölver því að þetta væri minnsti báturinn sem hann hefur róið á, ,,hann væri minni en Cleópötrurnar sem dæmi, en öll aðstaða væri mjög góð um borð og t.d. væri gott vinnupláss og góð aðstaða til að matast um borð og báturinn smellpassar í það kerfi sem þarna væri". Þeir eru tveir um borð, hinn er einnig Íslendingur sem Ölver fékk til að koma á bátinn.

Um það hvernig gengi, sagði Ölver að það væri bara gaman, enda umhverfið mjög skemmtilegt. Allir mættu veiða þorsk eins og þeir vildu þessa daganna, en kvóti væri á ýsuna. Ýsukvótinn, hefði verið fyrstu daganna 7 tonn, hækkaði fljótlega í 16 tonn og væri nú 54 tonn.

Þessir róðrar sem væru í raun hans fyrstu róðrar, sækti hann á mið sem væru í tveggja og hálfstíma siglingu, meðan hann var að prufa þetta. Fljótlega mun hann færa sig á mið sem væru í hálfa klukkustund til eina klukkustundar siglingu. Réri hann með gamla línu sem fylgdi bátnum um væri að ræða 200 króka línu og hefði veiðin verið að jafnaði um 200 kg á bala.

Gert er út frá Båtsfjord og er aðallega róið innan þess fjarðar, enda fjörðurinn langur. Þeir hefðu allt til alls og því  munu þeir vera bjartsýnir varðandi framhaldið.

Fyrir þá sem ekki vita, þá er Ölver úr Hafnarfirði og sonur Guðna Ölverssonar, sem einnig býr í Noregi.

    
         Ölver Guðnason, lengst til hægri er hann var að leggja af stað með Arctic Star til Noregs, í ferjusiglingu frá Njarðvík og eru með honum áhafnarmeðlimirnir sem sigldu bátnum yfir hafið á sínum tíma © mynd Emil Páll. 8. júlí 2013








                                       Elias F-100-BD, bátur Ölvers Guðnasonar

AF FACEBOOK: 7. feb. 2014

Guðni Ölversson
Þetta er þrælgott. Talaði við hann áðan og þá sagði hann að loðnan væri komin á svæðið. Þá dregur verulega úr línuveiðinni. Spurning um að fara á net. Gallinn við það er að verðið er svo miklu lægra fyrir netafiskinn.

06.02.2014 20:21

Máni GK 109


                                     1920. Máni GK 109  © mynd Emil Páll,  2008

06.02.2014 19:20

Fylkir KE 102


                                1914. Fylkir KE 102  © mynd Emil Páll, 6. júlí  2008

06.02.2014 18:17

Erling KE 140, landaði í Sandgerði - og stuttu síðar kominn aftur út


                                  233. Erling KE 140, landar í Sandgerði í dag




             233. Erling KE 140, stuttu eftir að löndun lauk, var hann kominn út úr innsiglingunni til Sandgerðis og sést hér sigla fyrir utan Bæjarskerin á leið á miðin að nýju © myndir Emil Páll, í dag, 6. feb. 2014