Færslur: 2011 Desember

21.12.2011 09:00

Vilborg GK 320 nú ÍS 103


           2632. Vilborg GK 320 nú ÍS 103 © mynd Emil Páll

21.12.2011 08:30

Ísbjörn ÍS 304


         Ísbjörn ÍS 304, við Ægisgarð í gær © mynd Jón Páll Ásgeirsson, 20. des. 2011

21.12.2011 00:00

Róbert RE 27 / Emma GK 46 / Guðmundur Arnar KE 200 / Ásborg BA 109 / Ásborg BA 84

Hér kemur saga af einum sem sökk, var náð upp aftur og gerður út í nokkur ár eftir það en endaði síðan líf sitt sem fóður á áramótabrennu.


                                  1185. Róbert RE 27 © mynd í eigu Emils Páls


                      1185. Emma GK 46 © mynd Snorrason


                 1185. Guðmundur Arnar KE 200 © mynd Snorrason


    1185. Guðmundur Arnar KE 200 © mynd Emil Páll


           1185. Guðmundur Arnar KE 200, sokkin í Sandgerðishöfn og eru næstu myndir frá þeim atburði © myndir úr safni Kristjáns Nielsen
























         Eins og sést á þessari neðstu hafði báturinn komið með rækju að landi um kvöldið, en ákveðið var að landa um morguninn, en þá var báturinn sokkinn.


                       1185. Ásborg BA 109 © mynd Snorrason


                       1185. Ásborg BA 84 © mynd Jón Páll Ásgeirsson, 1997

Smíðanúmer 18 hjá Skipasmíðastöð Austfjarða hf., Seyðisfirði 1984.   

Báturinn var tiltölulega nýkominn úr vélaskiptum og miklum endurbótum, er hann sökk í Sandgerðishöfn 1984. Náð upp strax og endurbyggður að nýju.    

Afskráður sem fiskiskip 2006. Brenndur á áramótabrennu 31. des. 2008, á Hauganesi við Skutulsfjörð.

Nöfn: Ásgeir ÞH 198, Róbert RE 27, Emma GK 46, Látraröst ÁR 198, Hinrik ÁR 198, Hinrik KE 200, Guðmundur Arnar KE 200, Ásborg RE 15, Ásborg BA 109, aftur Ásborg RE 15, Ásborg BA 169, Ásborg BA 84 og Sigurjón BA 23.

20.12.2011 23:00

Merkuriy


               Merkuriy, í Rússlandi © mynd shipspotting, Igor Torgashkin, 15. des. 2011

20.12.2011 22:00

Finnbogi Lárusson GK 500 / Mávur SI 76

Einn hinna þekktu Bátalónsbáta og lifði þessi tæpa þrjá áratugi og bar aðeins þrjár skráningar á þeim tíma og þar af eina í aðeins nokkra mánuði.


                 1177, Finnbogi Lárusson GK 500 © mynd úr Flota Patreksfjarðar


                     1177. Mávur SI 76 © mynd Snorrason


           1177. Mávur SI 76, nokkrum árum eftir afskráningu, þ.e. árið 2003


Smíðanúmer 391 hjá Bátalóni hf., Hafnarfirði 1971. Var fiskiskip til ársins 1998, en þá skráður sem skemmtibátur. Afskráður 1999.

Nöfn: Finnbogi Lárusson GK 500, Finnbogi Lárusson SI 80 og Mávur SI 76

20.12.2011 21:00

Þorsteinn Erlingsson o.fl. í Saltver

Enn eru það myndir sem ég tók og birti í kynningarblaði mínu um Njarðvík á því herrans ári 2002


      Þorsteinn Erlingsson ásamt þremur starfsmönnum í Saltveri, Njarðvík © mynd Emil Páll, 2002

20.12.2011 20:05

Erling KE 140

Hér koma tvær myndir sem tengjast Erling KE 140, þeim sem hogginn var í spað í gamla Drafnarslippnum í Hafnarfirði, en hann hét síðast Kambaröst RE 120. Myndir þessar tók ég úr kynningarblaði sem ég gaf út 2002


                              120. Erling KE 140, kemur að bryggju í Njarðvík


                                   Löndun úr Erling © myndir Emil Páll, 2002

20.12.2011 13:01

Íslensk-færeyskur Ægir TN 1083 / Gordrúgvin FD 359

Þessi er af gerðinni Gáski 1120D frá Mótun ehf. í Njarðvík og var i raun með framleiðslunúmer 9 frá Njarðvíkurstöðinni. Bátnum var rennt úr húsi á síðasta vetrardag, 24. apríl 2002 og sjósettur í Grófinni, Keflavík að kvöldi 2. maí og reynslusiglt daginn eftir og þann 8. maí var honum siglt til Reykjavíkur þar sem Eimskip hafði ekið að sér að flytja hann til Færeyja.

Hér birti ég myndir sem ég tók fyrir kynningablað sem ég gerði um fyrirtæki í Njarðvik á árinu 2002 og kaus Mótun að hafa eingöngu auglýsingar. Þá birtist nýleg mynd af bátnum, en hann hefur nú fengið nýtt nafn í Færeyjum

Er hann fór héðan hét hann Ægir TN 1083 og var frá Tórshavn, en nú er nafnið Gordrúgvin FD 359 og er frá Oyri.






      Ægir TN 1083, í Grófinni, Keflavík og á þeirri efstu í reynslusiglingu á Keflavíkinni © myndir Emil Páll, 8. maí 2002

              Gordrúgvin FD 359 © mynd shipspotting. Regin Torkilsson, 2011

20.12.2011 12:00

Pólskir/íslenskir/færeyskir togarar

Hér kemur mynd af tveimur togurum sem smíðaðir voru hér á landi fyrir færeyinga, en skrokkarnir voru áður smíðaðir í Póllandi.


        Polarhav FD 1196 og Stjörnan FD 1195 © mynd Snorrason. Skokkarnir voru smíðaðir í Póllandi en skipin að öðru leiti smíðuð á Íslandi fyrir Færeyinga

20.12.2011 11:05

Frosti ÞH, Snæfugl SU og Siglfirðingur SI


         F.v. 1976. Snæfugl SU 20, 1630. Frosti ÞH 229 og 1407. Siglfirðingur SI 150 © mynd Gísli Aðalsteinn Jónasson, 11. júlí 1992

20.12.2011 10:00

Bylgja VE 75




              2025. Bylgja VE 75 © myndir Gísli Aðalsteinn Jónasson, 18. ágúst 1992

20.12.2011 08:40

Ísl. framleiðsla fyrir Færeyjar, komin aftur hingað til lands

Færeyski plastbáturinn Sjoam SA 161, sem framleiddur var hjá Mótun í Njarðvik á árinu 2004 fyrir Færeyinga er nú kominn aftur hingað til lands, en hann hefur verið keyptur til Stykkishólms þar sem hann mun fá nafnið Álfur SH.

Um er að ræða bát að gerðinni Gáski 1100 sem var 19. báturinn sem Mótun ehf. framleiddi í Njarðvik og var sjósettur í Njarðvikurhöfn 6. sept. 2004 og þaðan sigldi Ragnar G. Ragnarsson honum til Reykjavíkur tveimur dögum síðar þar sem hann fór samdægurs í skip sem flutti hann til Færeyja og nú er hann kominn aftur hingað til lands.

Allan tímann í Færeyjum bar hann sama nafnið og númerið


                 Sjoam SA 161, í Færeyjum © mynd shipspotting Reginn Torkilsson, 2008

20.12.2011 07:31

Fjörurnar voru þaktar af rotnandi síld

skessuhorn.is:

 

 

19. desember 2011

Lárus Hallfreðsson bóndi í Ögri, skammt frá Stykkishólmi, fór á föstudag í Sellónseyjar sem tilheyra Ögri. Hann segir fjörur þar þaktar af rotnandi síld og mikið sé af síld, þar sem hann sá til botns við eyjarnar. "Þarinn í fjörunum var líka þakinn þykku grútarlagi og lyktin rosaleg. Þetta náði alveg upp í gras í eyjunum. Ég hef aldrei séð þetta þarna áður. Þetta voru mikið heilar síldar sem ég sá þannig að þetta var ekki afskurður eða neitt því um líkt. Í haust varð ég var við talsverða grútarlykt heima við fjárhúsin og þá var komin dauð síld á fjörur þar. Ég hef líka orðið var við þegar ég sigli út í eyjarnar að það koma loftbólur upp úr sjónum, eins og úr goshver, með mikilli grútarlykt." Lárus telur ekki líklegt að síldin sé að drepast vegna sýkingar. "Stóru bátarnir voru að veiða þarna á 5-6 metra dýpi og mér finnst líklegast að þetta komi frá þeim."

 

Fjörutíu hafernir í síldarveislu

Jóhann Kjartansson er einn eigenda jarðarinnar Jónsness. Hann segir mikið af dauðri síld á fjörum þar núna. "Það hefur nú verið ísilagt að hluta í voginum við Jónsnes og þessi síld sem ég sá um helgina var nokkuð heilleg og ekki komin mikil lykt af henni. Kannski hefur hún bara geymst svona vel í kuldanum. Þarna var mikið fuglalíf núna og ég sá eina fjörutíu haferni. Það gerist nú ekki oft að þeir sjáist svo margir í einu og var einstök upplifun að hafa þá svífandi þarna yfir sér. Svo var mikið af mávum og ég sá bæði tófu og minkaspor í fjörunni. Þetta er auðvitað veisla fyrir dýrin meðan síldin úldnar ekki. Ég hef nú verið lengi að fylgjast með þarna í Jónsnesi og allt frá 1980 róið þaðan á grásleppu hvert vor auk þess að halda til þarna meira eða minna á sumrin. Ég varð fyrst var við einstaka síld rekna á fjörur fyrir svona fimm árum, svo var mikið um þetta fyrir tveimur árum en síðan aftur núna. Ég gat nú ekki séð neitt á þessari síld, engin sár eða slíkt. Annars hef ég ekki þekkingu til að meta það hvers vegna þessi síld hefur drepist. Hins vegar finnst mér nauðsynlegt að vísindamenn taki sýni af síldinni og rannsaki. Það er ekkert eðlilegt við að sjá svona mikið af dauðri síld á fjörum. Það hefur síðustu árin verið ákveðin brækja þarna yfir Kiðeyjasundinu, þar sem mest er veitt af síldinni," sagði Jóhann Kjartansson

20.12.2011 00:30

Dauðinn í Dumbshafi - eftir Magnús Þór Hafsteinsson

 
Út er komin bókin Dauðinn í Dumbshafi - Íshafsskipalestirnar frá Hvalfirði og sjóhernaður í Norður-Íshafi 1940-1943 á vegum Bókaútgáfunnar Hóla. Höfundur hennar er Magnús Þór Hafsteinsson. Hér birti ég nokkrar myndir  sem teknar voru í tilefni útgáfu bókarinnar, en myndasyrpu um bókina er hægt að sjá á Facebókasíðu bókarinnar.







Varðandi myndir úr bókinni þá vísa ég sem fyrr á facebooksíðu hennar

20.12.2011 00:15

Flugaldan ST orðinn Skúli ST

.Á laugardaginn var kom nýr bátur til Drangnes Skúli ST 75 var áður Flugaldan ST 54 Djúpuvík


                 Hér er hann ennþá sem 2754. Flugaldan ST 54, frá Djúpuvík


         2754. Skúli ST 75 frá Hólmavík ex Flugaldan ST 54 © myndir Jón Halldórsson, holmavik.123.is 19. des. 2011