09.09.2018 10:11
Áður þekkt hérlendis - Polar Pioneer ex Friborg ex Polar Star ex KASPRYBA I
Skip þetta var lengi í Reykjavíkurhöfn, svo og systurskip þess. Fyrst voru skipin i gömlu höfninni og svo við Skarfabakka. Að lokum fór annað skipið út, en hitt nokkrum árum síðar. Það sem síðar fór, fór fyrst upp á Akranes og eftir einhvern tíma til Noregs, en kom aftur til Akraness til breytinga og síðan út aftur. Skipin hétu Kaspryba 1 og Kaspryba 2 og hið fyrrnefnda fékk 2015 nafnið Friborg, og svo Polar Star og frá 2016 hefur það borið nafnið Polar Pioneer og er með heimahöfn í Tromsø, Noregi.
![]() |
| Polar Pioneer, í Tromsø, Noregi ex Polar Star ex Friborg ex Kaspryba I © mynd Geir Winnes, 5. sept. 2018 |
Skrifað af Emil Páli

