05.05.2017 22:17

Valur ST 43, frá Hólmavík - nánast nýr frá Sólplasti, afhentur í kvöld

Í kvöld var afhentur nánast nýr bátur hjá Sólplasti í Sandgerði. Bátur þessi hét er hann kom þangað Valur RE 3, en fór núna sem Valur ST 43, frá Hólmavík. Báturinn var lengdur og nánast allt nýtt í honum frá húsi og afturúr, nema ytra birðið. M.a. var sett á hann ný gerð af Flöbsum svo dæmi sé tekið og sjást þeir á einni myndanna sem hér fylgja, þar birtist líka mynd af formlegri afhentingu þar sem eigandinn Örn Steinar Arnarson tekur við honum frá hjónunum í Sólplasti Kristjáni Nielsen og Sigurborgu Andrésdóttur.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

        6684. Valur ST 43, heimahöfn Hólmavík, afhentur frá Sólplasti Sandgerði í kvöld © myndir Emil Páll, 5. maí 2017