04.04.2017 21:00
Síðasti tappatogarinn sem verður sextugur eftir 2 ár, er á leið vestur
Um kvöldmatarleitið í kvöld var landfestum á Ísborg ÍS 250, sleppt í Njarðvíkurhöfn, en beðið hafði verið með að sigla vestur þar til veður lægði. Skip þetta sem er nokkuð merkilegt t.d. fyrir þær sakir að vera síðasti tappatogarinn og verður sextugur eftir tvö ár. Skipið hefur frá aldarmótum verið í eigu sama aðila Arnars Kristjánssonar á Ísafirði og í heimsiglingunni var með honum við stjórnvölinn Ólafur Halldórsson, en þeir luku báðir stýrimannaskólanum á árinu 1997. Hefur Ólafur oft verið með honum á þeim skipum sem hann hefur gert út, auk þessa skips þá bendi hann mér á annan sem liggur í Njarðvíkurhöfn, en það er ,,Seniverinn" sem bar þá nafnið Kolbrún ÍS. Sagði Ólafur að hann hefði oft verið með honum á þessu skipi.
Tók ég myndasyrpu í kvöld t.d. af þeim félögum og auðvitað bátnum þegar hann fór frá bryggju og síðan þegar hann var kominn á fulla ferð út Stakksfjörðinn og sigldi því fram hjá Vatnsnesinu í Keflavík þar sem ég tók líka myndir. En hér sjáið þeið myndirnar.
![]() |
Ólafur Halldórsson, í brúarglugganum
![]() |
Arnar Kristjánsson, einnig í brúarglugganum
![]() |
Þeir félagar Ólafur og Arnar í gluggunum
![]() |
Ísborg ÍS 250 að bakka frá í Njarðvík nú í kvöld
![]() |
Báturinn er fallegur, annað er ekki hægt að segja
![]() |
Ísborgin siglir út Stakksfjörðinn og þar með fram hjá Vatnsnesinu í Keflavík
![]() |
Ísborgin siglir út Stakksfjörðinn og þar með fram hjá Vatnsnesinu í Keflavík
© myndir Emil Páll, 4. apríl 2017







