10.10.2016 21:00
Glæsilegum breytingum á Guðbjörgu GK 666, lokið hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur
Í dag var sjósettur Kínabáturinn Guðbjörg GK 666, í Skipasmíðastöð Njarðvíkur, en eins og áður hefur komið fram hét báturinn síðast Kristbjörg. Báturinn er nú í Njarðvíkurhöfn og trúlega er eitthvað smávegis sem enn á eftir að ljúka, þó ég viti það ekki.
Meðan ég var að taka myndir af bátnum í dag, komu að máli við mig nokkrir útgerðarmenn, skipstjórar og aðrir er tengjast útgerðamálum og sögðu það áberandi hvað Kínabátarnir sem breytt hefur verið í slippnum í Njarðvík væru glæsilegir. Bátur þessi er sá fjórði, en tveir þeir fyrstu þ.e. Siggi Bjarna og Benni Sæm eru styttri en þeir tveir næstu þ.e. Faxaborg og Guðbjörg og nú er kominn í slippinn fimmti báturinn, en sá er grænlenskur í dag, en var upphaflega Grindvískur. Alls voru þessir kínvesku bátar sem komu upphaflega með stóru skipi til Hafnarfjarðar, alls 9 talsins.
Hér koma myndir af bátnum er hann er í sleðanum á leið niður úr slippnum. Þá eru myndir af honum við slippbryggjuna og síðan er hann siglir yfir í Njarðvíkurhöfn, í dag:
![]() |
||||||||||||
|
|
![]() |
||||||||||||||||||||
|
|

















