06.06.2016 21:55

Fleyting seiða á Tálknafirði - 6 myndir

Gunnar Þórðarson fór sýna fyrstu ferðar með seiði fyrir Arnarlax um síðustu helgi. Seiðin eru sótt á Gileyri í Tálknafirði hjá dótturfyrirtæki Arnarlax, Bæjarvík og farið með þau í kvíar við Hringsdal í Arnarfirði. Seiðunum er dælt í lítinn tank þaðan sem að þeim er fleytt um borð, flutt voru 290.000 seiði í fjórum ferðum og gekk allt að óskum.

Eldislausnir fyrirtæki af Suðurnesjum hefur haft veg og vanda að uppsetningu búnaðar á Gileyri.

Hér birtast 6 myndir sem Gunnlaugur Hólm Torfason, tók við þetta tækifæri.


 


 


 


 


 

 

     Gunnar Þórðarson, á Tálknafirði um síðustu helgi © myndir Gunnlaugur Hólm Torfason, í júní 2016