11.11.2014 20:27
Baldur væntanlegur til Stykkishólms annað kvöld og sá eldri fer til Grænhöfðaeyja
Nú er „Nýi“ Baldur væntanlegur til Stykkishólms miðvikudagskvöldið 12. nóvember kl. 21:00.
Hann mun síðan taka við af „Gamla“ Baldri strax á fimmtudaginn og fara í sína fyrstu áætlunarsiglingu yfir Breiðafjörðinn þann daginn.
Sama dag mun Baldur 2727 hefja siglingu sína til nýrra heimkynna á Grænhöfðaeyjum eftir rúmlega 8 og hálfs árs þjónustu á Breiðafirðinum. Sæferðir eiga að afhenda skipið nýjum eigendum í Oportó í Portúgal.
Sæferðir bjóða bæjarbúum, og þeim öðrum sem á því hafa áhuga, að koma um borð í „Nýja“ Baldur 2887 og skoða skipið og þiggja veitingar í leiðinni.
Verið öll velkomin.
Skrifað af Emil Páli

