06.06.2014 08:41
Ný fiskiskip fyrir yfir 13 milljarða króna
mbl.is:
Í litum Vinnslustöðvarinnar Mikil breyting verður er nýtt skip kemur til Eyja 2016 og leysir Jón Vídalín af hólmi.
Láta mun nærri að samið hafi verið um nýlega eða smíði sé í gangi á fimm fiskiskipum fyrir íslensk útgerðarfyrirtæki fyrir yfir 13 milljarða króna.
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum og Hraðfrystihúsið–Gunnvör í Hnífsdal sömdu nýlega um smíði á tveimur ísfisktogurum. Kostnaður við smíði hvors skips er áætlaður hálfur annar milljarður, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
HB Grandi samdi í fyrrahaust um smíði tveggja skipa hjá Celiktrans-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi til veiða á uppsjávarfiski og verða skipin afhent á næsta ári. Samningurinn hljóðaði upp á um sjö milljarða króna. Þá fær Ísfélagið í Vestmannaeyjum nýtt skip afhent á næstunni, en það er einnig smíðað í Tyrklandi.
