02.02.2014 17:51
Mjög umfangsmikil leit
Landhelgisgæslunni barst tilkynningu um leka í bát sem var á siglingu á Faxaflóa á þriðja tímanum í dag.
Mennirnir á bátnum tilkynntu um lekann á neyðarrás og að þeir væru allir komnir í flotgalla.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni var allt tiltækt lið kallað út og er gríðarlega umfangsmikil leit.
Ekki liggur fyrir hversu margir voru um borð í bátnum og hvort báturinn sé sokkinn.
Þyrla
Landhelgisgæslunnar leitar nú stöðugt á Faxaflóanum sem og sex
björgunarskip. Fjöldi minni báta taka einnig þátt í leitinni en þetta
staðfesti Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, upplýsinga- og kynningarfulltrúi
Slysavarnafélagsins Landsbjörg.
"Það hefur enginn bátur fundist en mjög umfangsmikil leit stendur nú yfir," segir Ólöf í samtali við Vísi.
"Ekki er vitað hvaða bátur þetta er en allir bátar sem vitað er um á sjónum hafa tilkynnt sig inn."
"Nokkuð erfiðar aðstæður eru á svæðinu og veðrið slæmt."
Uppfært:
Nú
eru tvær björgunarþyrlur Landhelgisgæslunnar, TF-GNÁ og TF-LIF, við
leit að báti á Faxaflóa. Auk þess eru tvær finnskar björgunarþyrlur, sem
staddar voru hér á landi vegna loftrýmisgæslu, nýttar við leitina en
þær fljúga nú yfir norðanverðan flóann.
Björgunarskip
Slysavarnafélagsins Landsbjargar frá Grindavík, Sandgerði, Hafnarfirði,
Reykjavík og Rifi eru einnig við leit auk nokkurra minni björgunarbáta.
Björgunarsveitir og lögregla á svæðinu eru með eftirgrennslan frá landi.
Upphaflega neyðarkallið heyrðist í báti við Akranes og í kerfi
LHG og þar kom fram að leki væri komin að bátnum og að menn væru að fara
í björgunargalla. Engar frekari upplýsingar hafa borist síðan og ekki
vantar skip inn í tilkynningaþjónustuna hjá Vaktstöð siglinga.
Leitarsvæðið
er víðfemt, en segja má að það nái frá Reykjanestá að austasta hluta
Snæfellsness en áhersla er lögð á að leita innarlega í Faxaflóa þar sem
báturinn sem heyrði neyðarkallið var staddur rétt utan við Akranes.
Veðurspá á leitarsvæðinu gerir ráð fyrir norðaustan 10-20 m/sek, skýjuðu
með köflum og hita í kringum frostmark.
