01.01.2014 21:19

Uppsagnir áhafna hjá Þorbirni hf.

mbl.is.:

 

 

 

                         1972. Hrafn Sveinbjarnarson GK 255, í Grindavík

                                 © mynd Jónas Jónasson, sumarið 2013

Þorbjörn hf. í Grindavík vinnur nú að endurskipulagningu útgerðar frystitogara sinna. Einn þeirra, Hrafn Sveinbjarnarson, verður lengdur og honum breytt og útgerð annars verður hætt.

Þetta kemur fram á vefsíðu kvotans.is

Vegna breytinganna hefur áhöfnum skipanna verið kynnt nýtt skipulag útgerðar þeirra. Endurskipulagningin leiðir til uppsagna áhafna og endurráðningar, vegna breyttrar útgerðar. Um 150 manns eru í áhöfnunum.

Flestir verða endurráðnir og verða tvær áhafnir á hvoru skipi eftir að breytingarnar hafa gengið yfir. Þá hefur fyrirtækið verið að auka vinnslu í landi verulega en hún hefur nær tvöfaldast á fjórum árum.

Nú gerir Þorbjörn út þrjá frystitogara, Hrafn Sveinbjarnarson, Hrafn og Gnúp og fjóra línubáta,  Ágúst, Sturlu, Tómas Þorvaldsson og Valdimar.

 

AF FACEBOOK:

Guðni Ölversson Gott fyrirtæki Þorbjörn hf. Líkaði verulega vel að vera á þeirra bátum. Það voru Fylkir NK 102 og Hrafn Sveinbjarnarson GK 255.
Emil Páll Jónsson Tek undir þetta með þér Guðni Ölversson. Ég hef átt þó nokkur samskipti við Þorbjörn hf. og líkar mjög vel við þá.